janúar 29, 2003
Petrocrats
Ég hafði ekki séð þetta orð áður en það kom fyrir í grein í The Economist um São Tomé.Í greininni er fjallað um gömul sannindi og ný, olía spillir. Fjallað er um tvö afrísk olíuríki (já, það er fleiri sem eiga olíu en Arabar), Gabon og Miðbaugs-Guineu, annars vegar og svo lítið eyríki (150 þús. íbúar), São Tomé og Príncipe, sem eru í Atlantshafi skammt suður af Nígeríu (en öll ríkin á svæðinu eiga töluvert af olíu).
Gabon var frönsk nýlenda og hefur forsetinn, Omar Bongo (hann heitir það, án gríns) stjórnað í spillingu síðan 1967. Í stað þess að pynta og drepa óvini sína mútar hann þeim. Ekkert fúnkerar einsog það á að gera. Spillingin er út um allt. Frakkar hafa herlið við forsetahöllina og gagnrýna Bongo ekki þegar hann spillir kosningum o.þ.h. Í staðinn fá Frakkar að sitja nánast einir að öllum innflutningi (62%) og nemur hann að verðmæti tæpum 600 milljónum dala á ári. Á móti kaupa Frakkar aðeins 17% útflutningsins (rúml. 400 milljónir dala á ári) en 4/5 útflutningsins er hráolía og fer helmingur heildarútflutnings til USA (aðeins 5% innflutnings eru bandarískar vörur).
Forseti Miðbaugs-Guineu, Obiang Nguema, komst til valda með hefðbundnum hætti í valdatöku hersins 1979. Hann ræður núna yfir þeim 500 þús. sálum sem landið byggja. Þrátt fyrir svipað magn framleiðslu á hráolíu (G: 256 þús. tunnur á dag, MG: 213 þús tunnur á dag) og að þjóðin er aðeins þriðjungur nágrannaþjóðarinn Gabon, þá eru meðaltekjur í Miðbaugs-Guineu innan við 1/4 af því sem það er handan landamæranna. Nguema lýður ekki lýðræðislegar kröfur og er duglegur að taka í lurginn á þeim sem ekki eru honum sammála. Hann er samt aðallega í því að skjóta undan olíugróðanum. Landið þjáist bæði illa af hollensku veikinni og er líka hreinlega svo illa stjórnað að allt er í rjúkandi rúst sem áður
Bæði Gabon og Miðbaugs-Guinea eru hluti af BEAC-myntbandalaginu ásamt Kamerún, Mið-Afríku lýðveldinu, Tsjad og Kongó ("Brazzaville-Kongó"). Án þess að ég hafi kynnt mér það nokkuð virðist það bandalag hafa gert þessum löndum ýmislegt gott.
Allavega, ágæt grein fyrir áhugasama, aðalumfjöllunarefnið eru breytingar sem eiga sér stað í São Tomé. Forsetinn er nýlega búinn að reka þingið heim og fleira í þeim dúr. Fannst skemmtilegt nýyrðið (ég hef allavega ekki séð það áður) petrocrats, og þá væntanlega er líka til petrocraty.
Og talandi um mið-afrísk olíuríki, þá má ekki gleyma Cabinda.
Agust skrifaði 29.01.03 16:40
Flokkun: Afríka , Hagfræði , Meðmæli , Stjórnmál , Viðskipti