janúar 29, 2003
Samkynhneigð á vinnumarkaði
Mér finnst þetta áhugavert málþing. Þarna verður fjallað um samkynhneigð á vinnumarkaði, bæði út frá lögfræðinni og stjórnuninni. Árelía sem kennir mér Stjórnun II er einmitt með fyrirlestur þarna. Mér finnst þetta áhugavert umræðuefni, út frá mannréttindapælingunni. Væri ekki síður áhugasamur um að sitja svipað málþing um innflytjendur á vinnumarkaði.Agust skrifaði 29.01.03 19:44
Flokkun: Daglegt líf , Jafnréttismál , Mannlíf á jörðu , Viðskipti