janúar 31, 2003
Morðið á Carlosi Cardoso
Nýjar fréttir af morðinu á Carlosi Cardoso. Búið er að dæma sex menn í allt að 29 ára fangelsi fyrir morðið.Cardoso var blaðamaður í Mósambík sem rannsakaði svik í stærsta banka landsins. Nyimpine Chissano, sonur forsetans, er sagður bendlaður við málið en neitar allri aðild. Hann hefur ekki verið ákærður fyrir neina aðild að málinu.
The Economist hefur birti grein um málið í nóvember s.l. Who killed the fly?
Beil
Komst ekki á málþingið í dag, því miður. Verkefnavinnan fór langt fram úr áætlun. Kíkti svo á síðustu mínúturnar af Framadögum. Það er ljóta tímaeyðslan. Var brunninn á tíma með að komast á málþingið þannig það var svo sem allt í lagi.Langaði á það, en verður að hafa það. Þar sem ég er hvorki verðandi verkfræðingur, tæknifræðingur eða endurskoðandi var lítið á þessu að græða fyrir mig.
Er enn pirraðari yfir að hafa misst af fundinum um rasisma hjá Vöku í gær (af hverju lét enginn mig vita?!?!). Fúlt.
Ljósi punkturinn er þó að Osbournes er byrjað aftur. Yndislegir þættir :-) SHARON!!!
janúar 29, 2003
Útlegðarhugmyndin
Thinking About Iraq (3): Thomas Friedman skrifar um útlegðarhugmyndina sem margir hafa talað fyrir undanfarið. Ég er ekki alveg að sjá hana ganga upp, því miður.Það er aftur á móti farið að tala um hana í fúlustu alvöru. Ef ég sé almennileg rök fyrir henni getur mér snúist hugur en í augnablikinu sé ég ekki hvernig dæmið gengi upp. Ekkert mál að fjarlægja Saddam og senda hann í gamla Sovétið, til Egyptalands eða Saúdi-Arabíu en hvað með alla hina? Hver vill taka við honum (í fúlustu alvöru þegar á það reynir)?
Það lægi reyndar einna beinast við að senda karlinn til Kyrgistan/Kirgistan/Kyrgyztan/Kyrgyzstan (fá lönd eiga jafn margar stafsetningarútgáfur á nafni sínu). Þar ræður gaur sem Saddam gæti fílað og landið er aðeins að finna á betri landakortum. Auk þess er þetta fyrrum Sovétlýðveldi, þannig það uppfyllir það skilyrði líka.
ps. The Office eru fyndnir þættir.
Samkynhneigð á vinnumarkaði
Mér finnst þetta áhugavert málþing. Þarna verður fjallað um samkynhneigð á vinnumarkaði, bæði út frá lögfræðinni og stjórnuninni. Árelía sem kennir mér Stjórnun II er einmitt með fyrirlestur þarna. Mér finnst þetta áhugavert umræðuefni, út frá mannréttindapælingunni. Væri ekki síður áhugasamur um að sitja svipað málþing um innflytjendur á vinnumarkaði.Petrocrats
Ég hafði ekki séð þetta orð áður en það kom fyrir í grein í The Economist um São Tomé.Í greininni er fjallað um gömul sannindi og ný, olía spillir. Fjallað er um tvö afrísk olíuríki (já, það er fleiri sem eiga olíu en Arabar), Gabon og Miðbaugs-Guineu, annars vegar og svo lítið eyríki (150 þús. íbúar), São Tomé og Príncipe, sem eru í Atlantshafi skammt suður af Nígeríu (en öll ríkin á svæðinu eiga töluvert af olíu).
Gabon var frönsk nýlenda og hefur forsetinn, Omar Bongo (hann heitir það, án gríns) stjórnað í spillingu síðan 1967. Í stað þess að pynta og drepa óvini sína mútar hann þeim. Ekkert fúnkerar einsog það á að gera. Spillingin er út um allt. Frakkar hafa herlið við forsetahöllina og gagnrýna Bongo ekki þegar hann spillir kosningum o.þ.h. Í staðinn fá Frakkar að sitja nánast einir að öllum innflutningi (62%) og nemur hann að verðmæti tæpum 600 milljónum dala á ári. Á móti kaupa Frakkar aðeins 17% útflutningsins (rúml. 400 milljónir dala á ári) en 4/5 útflutningsins er hráolía og fer helmingur heildarútflutnings til USA (aðeins 5% innflutnings eru bandarískar vörur).
Forseti Miðbaugs-Guineu, Obiang Nguema, komst til valda með hefðbundnum hætti í valdatöku hersins 1979. Hann ræður núna yfir þeim 500 þús. sálum sem landið byggja. Þrátt fyrir svipað magn framleiðslu á hráolíu (G: 256 þús. tunnur á dag, MG: 213 þús tunnur á dag) og að þjóðin er aðeins þriðjungur nágrannaþjóðarinn Gabon, þá eru meðaltekjur í Miðbaugs-Guineu innan við 1/4 af því sem það er handan landamæranna. Nguema lýður ekki lýðræðislegar kröfur og er duglegur að taka í lurginn á þeim sem ekki eru honum sammála. Hann er samt aðallega í því að skjóta undan olíugróðanum. Landið þjáist bæði illa af hollensku veikinni og er líka hreinlega svo illa stjórnað að allt er í rjúkandi rúst sem áður
Bæði Gabon og Miðbaugs-Guinea eru hluti af BEAC-myntbandalaginu ásamt Kamerún, Mið-Afríku lýðveldinu, Tsjad og Kongó ("Brazzaville-Kongó"). Án þess að ég hafi kynnt mér það nokkuð virðist það bandalag hafa gert þessum löndum ýmislegt gott.
Allavega, ágæt grein fyrir áhugasama, aðalumfjöllunarefnið eru breytingar sem eiga sér stað í São Tomé. Forsetinn er nýlega búinn að reka þingið heim og fleira í þeim dúr. Fannst skemmtilegt nýyrðið (ég hef allavega ekki séð það áður) petrocrats, og þá væntanlega er líka til petrocraty.
Og talandi um mið-afrísk olíuríki, þá má ekki gleyma Cabinda.
Kaffi
Ég ætlaði ekki að snerta kaffi í dag. Sprakk á limminu. Búinn með stórt glas af kaffi... fékk mér m.a.s. Rís með því (við hverju er að búast þegar þeir setja kassa af súkkulaði á tilboði við hliðina á kaffikönnunni!).Reyndar... "Kaffi er gott". Skv. þeirri kenningu er þetta ekki kaffi því ekki er háskólakaffið gott!
Ritstjórnarstefna
Ég er alveg sammála Unni. Það er óþolandi þegar fjölmiðlar hafa ekki skýra ritstjórarstefnu sem kemur fram í leiðurum blaðsins. Fréttir eru ekki hlutlausar, fréttamenn eru ekki weberskir hlutleysingjar, þeir hafa skoðun einsog aðrir. Hver sú skoðun (fjölmiðilsins) er á að vera á hreinu.Sama á um kennara. Kennari sem lætur ekki í ljós skoðanir sínar í málum sem eru hápólitísk, svosem hagfræði, lögfræði o.fl. er ekki góður kennari. Hann á að miðla efninu eins vel og hægt er en skoðanir viðkomandi smitast alltaf eitthvað út í kennsluna, enda ekki hægt að ætlast til annars. Því verður að vera ljóst hver skoðun hans er.
Einstakir fréttamenn sem eru áberandi eru betri sé skoðun þeirra ljós. Það er þá vitað mál hvaða skoðun viðkomandi hefur og hægt að meðtaka upplýsingarnar (fréttirnar) með þeim forsendum. Auðvitað eiga fréttir ekki að vera áróður, það er óprofessional fréttflutningur en skoðun þess sem miðlar fréttinni á að vera ljós, svo framarlega sem einhver broddur á að fá að vera í fréttinni.
Dæmi um þetta er að NYT segir frá ræðu Bush (raunar margar fréttir um hana) í nótt. Leiðari blaðsins fjallar um ræðuna, þar sem hún er lítt lofuð. Lesið sérstaklega síðustu tvær efnisgreinarnar.
Maureen Dowd hefur hinsvegar ýmislegt að segja um ræðuna hjá Bush og skefur ekki utan af því fremur en venjulega: The Empire Strikes First
janúar 28, 2003
Com'on Barbie, let's go party a-a-a-ye!
Allir kannast við lagið Barbie Girl með Aqua (og hafa sjálfsagt margsinnis fengið það á heilann). Óþolandi lag sem er samt svona skemmtilega-óþolandi. Það var gefið út '97 eða '98. Mattel (framleiðandi Barbie) súaði Aqua, þar sem "the song [...] infringed on the toy maker's trademark and sullied Barbie's reputation". MCA, sem gaf út lagið, sem seldist í 1,4 milljón eintökum í USA (vá!), varði hinsvegar textann sem "social commentary". Mattel tapaði í héraði (Kaliforníu) og nú hefur málinu verið vísað frá Hæstarétti, þangað sem Mattel áfrýjaði því.Tilvitnanir: Toy maker loses Barbie song battle
Líbanir og bílprófslausir
Skemmtilegur pistill um fræga Líbani hjá SP. Ég hefði reyndar viljað sjá nokkur selebrití í viðbót á listanum. Líbanir eru nefnilega alveg ótrúlega klárir í að verða annaðhvort rosalega frægir eða rosalega ríkir, nema hvorttveggja sé.
Frægir Líbanir sem ég sakna af listanum hjá SP eru t.d.: Carlos Ghosn forstjóri Nissan, Jacques Nasser sem áður stjórnaði Ford, Rony Seikaly sem var center hjá Miami Heat þegar ég fylgdist ennþá með NBA, Jamie Farr sem margir þekkja sem Klinger í M*A*S*H, leikarinn F. Murray Abraham (aldrei skilið hvað er málið með þetta F.), Keanu Reeves (reyndar bara fæddur í Beirút en ekki ættaður þaðan), Antoine Zinni "special envoy" í Palestínu, George Mitchell sem var foringi meirihluta demókrata í öldungadeildinni fyrir nokkrum árum og sjálfur Frank Zappa! Auk þess mætti nefna óteljandi mis(ó)frægir bissnissmenn og pólitíkusar (aðallega í nokkrum fylkjum í USA). Ok ég viðurkenni að þessir sem ég nefndi eru ekki svakalega frægir - en að sleppa Frank Zappa er algjör óþarfi, sem margir halda að sé Tékki, sem er misskilningur.Líbanir eru mjög öflugur minnihlutahópur (a.m.k. m.v. stærð líbönsku þjóðarinnar) í USA og einnig t.d. í Mexíkó og Ástralíu auk þess sem þeir stjórnuðu a.m.k. áður fyrr demantaviðskiptum í V-Afríku. Þeir voru líka einna frægastir í viðskiptum af Aröbum á Vesturlöndum, en oft vísað til þeirra sem e.Levantine(s). Þrátt fyrir aðeins þriggja milljóna þjóð heima fyrir eru Líbanir búsettir víðsvegar um heiminn taldir 6-9 milljónir til viðbótar við þá sem búa í landinu litla.
Á einkaveitu SP er svo að finna þennan texta:
Í gær skutlaði ég manni sem ekki hefur bílpróf. Hann skellti bílhurðinni svo fast að bíllinn ætlaði sundur að ganga. Hvers vegna er þetta einkenni á fólki sem ekki ekur bíl sjálft? Var virkilega kennt í ökuskólanum hvernig skella eigi bílhurð? Alveg var ég búinn að gleyma því...Undir þetta tek ég fullkomlega, hafði bara ekki spáð í þetta fyrr. Aftur á móti veit ég um einn ónefndan einstakling sem er annálaður fyrir miskunnarlausar bílhurðaskellingar, þrátt fyrir ökuskýrteini í vasanum. "Afsökunin" sem maður fær þegar maður hvæsir á viðkomandi fyrir umgengnina er "Hvað er þetta, þetta er ósjálfrátt, við áttum Lödu þegar ég var krakki. Það þurfti alltaf að skella fast á henni". Maður skyldi ætla að þetta "af-vendist" með auknum þroska, en nei, greinilega ekki.
Homo economicus
Þetta er meiri vitleysan: Homo economicus leggur ekki flísarÞað sem vantar í dæmið er tvennt. Annars vegar raunsæi varðandi skiptingu tíma fólks á milli vinnu og frístunda, hins vegar sá ávinningur sem fólki finnst felast í því að gera hlutina sjálft og stíga út úr venjubundnu starfi sínu, t.d. við tölvuskjáinn eða á tannlæknastofunni.Ok. frístundir eru fínar en "ávinningurinn við að gera hlutinn sjálfur"? Pass.
Ég á bíl sem þarf að skipta um loftsíubox í (þar forskrúfuðust festingarnar á lokinu og þurfti því að rífa það úr með stórvirkum vinnutækjum). Nú er ég búinn að kaupa boxið og tilheyrandi festingar. Til að skipta um það þarf að rífa hjólskálina úr vinstra megin að framan (dekkið undan og nokkrar skrúfur). Svo þarf að koma þessu fyrir og ganga frá þessu.
Þar sem verkstæðisreikningar eru háir í eðli sínu er það vissulega möguleiki að gera þetta sjálfur. Geri ég það? Nei. Ég á 17 ára gamlan frænda með bíladellu í háu stigi og nýti mér þjónustu hans. Sem við hann að hann ditti að því sem þarf að ditta fyrir lítinn pening, bið hann þá að sjæna bílinn fyrir mig í leiðinni, bóna og þrífa að innan. Gauka að honum smá pening og báðir eru sáttir.
Ef ég ætti að gera þetta sjálfur myndi ég fljótlega enda í strandi. Ég skipti um kerti um daginn. Það er ekki mikið mál svosem. Engu að síður tókst mér að týna einu kertinu sem datt einhvers staðar niður með ofan í helv. vélina. Þurfti að rífa allt sem hægt var að rífa til að loksins finna það einhvers staðar inn í miðri vél (þá var himnesk tilviljun að frændi kíkti við út af allt öðru).
Ég kann ekki á bíla. Ég kann hinsvegar á ýmislegt annað. Ég reyndar kann t.d. að mála en læt vera að leggja parket og hvað þá flísar. Ég hef ekki próf á hamar en ég skal gera mitt besta með pensil - svo framarlega sem það er í fáum fermetrum. Ég met tíma minn mikils og ef ég legg út í verklegar framkvæmdir er það nær eingöngu þegar þær eru mjög einfaldar og tekur ekki að láta aðra (hæfa) framkvæma þær eða að kostnaðurinn er svo ósanngjarn að jafnvel ég get stórgrætt á að framkvæma verkið.
Ætli ég sé ekki bara "homo economicus"!
Með morgunkaffinu
Even in the Age of Prozac, Some Still Prefer the CouchIraq War: The First Question
janúar 27, 2003
Leiðari Economist um Palestínu
Í nýjasta tbl. Economist er leiðari um Palestínu, Can Sharon make peace?. Þar segir í lokaorðum:Palestine contains Jews who still want all the land, and Arabs who still hope to wipe Israel from the map. In America itself there are so-called friends of Israel who will accuse Mr Bush of “appeasement” the moment he pushes hard for territorial compromise. They, above all, should be ignored. Of the 10m people who now live between the Jordan and the Mediterranean, some 5.5m are Jews and 4.5m are Arabs. Before the end of the decade, the Arabs will be a majority. Israel cannot hold these lands and remain the Jewish democracy it wants to be. Even the Israelis who will vote next week for Mr Sharon know that. It is time their friends in America admitted it too.Ég er ekki sammála ritstjórnarstefnu Economist í Palestínumálinu í öllum atriðum en hún er um margt mjög raunsæ engu að síður, því neita ég ekki. Þarna undirstrika blaðið í leiðara sínum nokkuð sem mér hefur fundist vanta í umfjöllun þess.
Ætli Economist sé ekki með fáum blöðum þar sem leiðararnir eru það sem maður les fyrst af öllu. Ég veit ekki um neitt annað blað sem stenst samanburð við leiðara þess, nema New York Times auðvitað.
Gæslan
Addi Kidda Gauj (Guðjón A. Kristjánsson) þingmaður Frjálslynda flokksins fór fram á utandagskrárumræðu um Landhelgisgæsluna í dag. Hann kvartar undan því að aðeins séu þrjú varðskip hjá Landhelgisgæslunni. Óðinn, sem er bundinn við bryggju, feyskinn og fúinn og farinn og lúinn og brotinn og búinn að vera. Úthaldið hefur verið circa 6 mán. en úthaldið á Tý og Ægi hefur verið um 9 mán. Nú á að dubba þá upp og koma þeim upp í 10-11 mán. úthald.
Hvað um það, mér finnst fólk vera að gleyma einu; fjórða skipi Gæslunnar, Baldri.Baldur er tæplega 12 ára gamall, 18m. álbátur, 64 brúttótonn með 326 hp Caterpillarvél. Hann var smíðaður á Seyðisfirði 1991.
Tanguy
Þetta er franskt karlmannsnafn, ekki borið fram Tan-guy (einsog ég myndi gera á engilsaxneskan hátt).Þetta er líka heitið á alveg hreint prýðilegri gamanmynd sem er sýnd í síðasta skiptið í kvöld, á Franskri kvikmyndahátið, klukkan átta í Háskólabíói.
Við Sigga fórum á hana í gærkvöldi, í pökkuðum sal miðaldra fólks og frönskunema. Við mættum fáeinum mínútum of seint (ha, mér að kenna? getur það verið?) og lentum því í einu samliggjandi lausu sætunum í salnum - á fremsta bekk. Það var svosem allt í lagi, ef maður lagðist skakkur/á ská í sætið og hvíldi hausinn á sætinu við hliðina, þá náði með næstum öllu tjaldinu. Nei, í alvöru talað, eini plúsinn við fremsta bekk er nóg fótapláss, allt hitt er í mínus.
Hvað um það, það var alveg þess virði að vera hálf aumur eftir óþægileg sætin (því ekki eru þau þægileg í grunninn, sætin í Háskólabíói) því myndin var góð.
(Nú kemur að því að ég eyði nokkrum orðum í myndina. Hver annar en ég eyðir mestu púðri í að röfla um sæti og sjoppur í umsögn um bíóferðir! Jæja...)
Tanguy er 28 ára og er að klára doktorsritgerðina sína í kínversku. Foreldrar hans, Paul og Edith, eru af '68 kynslóðinni og hafa alið son sinn upp í ást og hlýju. Þau eru fórnarlömb ákveðinnar þróunnar sem hefur átt sér stað í Suður-Evrópu síðustu ár; Tanguy unir sér svo vel heima fyrir að hann hreinlega vill ekki flytja að heiman. Bregða foreldrarnir þá á það ráð að reyna allt sem þau geta til að koma honum út af heimilinu. Úr verður stórskemmtilegur farsi og afsannast þarna að franskar gamanmyndir séu ekki fyndnar.Foreldrarnir eru vel leiknir enda báðir leikarar með marglaunaðan feril að baki. Tanguy er ótrúlega óþolandi á mjög kurteisan og ljúfan hátt og það eina við hans karakter sem mér fannst full mikið út fyrir karakterinn var að hann virðist ekki þurfa að hafa neitt fyrir því að draga hvert næturgamanið af fætur öðru heim (til pabba og mömmu), en maður veit ekki, kannski er bara svona mikið stuð að vera nördalegur Frakki með próf í kínversku og japönsku.
Allavega, á Íslandi þekkist þetta vart sem slíkt vandamál sem það er í Suður-Evrópu, sér í lagi eru ítalskar mæður þjakaðar af heimalingshætti sona sinna. Dæturnar eru litlu skárri. Það er þó minna um að þær sendi þvottinn heim til mömmu þegar þær eru (loksins!) fluttar að heiman. Skv. skýrslu Mannfjöldarannsóknarstofunarinnar á Ítalíu býr 22-23% Ítala á aldrinum 30-34 ára ennþá heima á Hótel mömmu. Til samanburðar býr rétt rúml. 5% einir. Flestir aðrir búa í sambúð, enda meðalgiftingaraldur tæplega þrítugt (en fer sífellt hækkandi).
Hótel mamma, einsog myndin er kölluð á íslensku tekur á þessu málefni - og gerir grín að því, snýr því upp í farsa.
Myndin er sýnd (í síðasta sinn) í kvöld klukkan átta í Háskólabíói og hvet ég áhugasama að skella sér. Skemmtileg mynd, hálfgerður farsi en með alvarlegum undirtóni.
Those were the days
![]() |
Where we used to raise a glass or two
Remember how we laughed away the hours
And dreamed of all the great things we would do
Those were the days my friend
We thought they'd never end
We'd sing and dance forever and a day
We'd live the life we choose
We'd fight and never lose
For we were young and sure to have our way.
La la la la...
Those were the days, oh yes those were the days
Then the busy years went rushing by us
We lost our starry nations on the way
If by chance I'd see you here in Baghdad
We'd smile at one another and we'd fight
Those were the days my friend
We thought they'd never end
We'd sing and dance forever and a day
We'd live the life we choose
We'd fight and never lose
For we were young and sure to have our way.
La la la la...
Those were the days, oh yes those were the days
Just tonight I stood alone in Baghdad
Nothing seemed the way it used to be
In the glass I saw a strange reflection
Was that lonely dictator really me
Those were the days my friend
We thought they'd never end
We'd sing and dance forever and a day
We'd live the life we choose
We'd fight and never lose
For we were young and sure to have our way.
La la la la...
Those were the days, oh yes those were the days
From the White House there came familiar laughter
I saw your face and heard you call my name
Oh my friend we're older but no wiser
For in our hearts the dreams are still the same
Those were the days my friend
We thought they'd never end
We'd sing and dance forever and a day
We'd live the life we choose
We'd fight and never lose
For we were young and sure to have our way.
La la la la...
Those were the days, oh yes those were the days
Með og á móti II
Tómas Friedman skrifaði seinni hluta greinaparsins Thinking About Iraq í NYT í gær - Thinking About Iraq (II)In short, we can oust Saddam Hussein all by ourselves. But we cannot successfully rebuild Iraq all by ourselves. And the real prize here is a new Iraq that would be a progressive model for the whole region. That, for me, is the only morally and strategically justifiable reason to support this war. The Bush team dare not invade Iraq simply to install a more friendly dictator to pump us oil. And it dare not simply disarm Iraq and then walk away from the nation-building task.© 2002 The New York Times Company.
[...]
My gut tells me we should continue the troop buildup, continue the inspections and do everything we can for as long as we can to produce either a coup or the sort of evidence that will give us the broadest coalition possible, so we can do the best nation-building job possible.
But if war turns out to be the only option, then war it will have to be — because I believe that our kids will have a better chance of growing up in a safer world if we help put Iraq on a more progressive path and stimulate some real change in an Arab world that is badly in need of reform. Such a war would indeed be a shock to this region, but, if we do it right, there is a decent chance that it would be shock therapy.
Skytturnar
Ég get ekki verið meira ósammála Stefáni Pálssyni um að Skytturnar sé besta bíómyndin sem Íslendingar hafa gert. Ekki bara af gömlum vana, heldur fannst mér myndin alls ekki standa undir væntingum.Ég sá hana fyrst á laugardaginn þegar Skjár(e)inn sýndi hana (með auglýsingahléum) og verð ég að segja að þetta er gott framtak hjá Skjásmönnum að bjóða upp á íslenskar bíómyndir á laugardögum. Ég hef séð fáránlega fáar íslenskar myndir og er alveg til í að láta þær valda mér vonbrigðum.
Hvað um það, myndin er að mörgu leyti góð, því ber ekki að neita. Aftur á móti endalok þeirra félaga eru bara OF vitlaus til að ég geti sætt mig við þau. Ég sá brot úr heimildarmynd í gær um bíófíkla (fólk sem gerir ekki annað en að fara í bíó) og þar sagði einhver gaur að oft þyrfti ekki nema eitt smávægilegt tæknilegt atriði til að eyðileggja bíóferðina fyrir hardcore bíófíklunum. Ég er að vissu leyti einsog þessir bíófíklar. Ég þoli ekki augljósar sagnfræði- eða staðreyndarvillur. Maður getur alveg sætt sig við að vitlausar gamanmyndir (eða Bond-myndir) gangi fram af manni í vitleysunni en þegar myndir eiga að vera alvöru, þá mega ekki augljósar villur vera í myndinni.
Endalok þeirra félaga voru of gjörsamlega út í hött til að ég gæti sætt mig við þau. Eyðilagði alla myndina fyrir mér. Ég hefði m.a.s. verið tilbúinn til að fyrirgefa versta söng sem ég hef heyrt á Suzanne með Leonard Cohen!
Margt gott í þessari mynd, margt íslenskt í henni. Lýsir skammlaust broti úr íslenskum veruleika sem maður ólst upp í.
Það tók mig smá tíma að fatta að Aggi sjálfur af Djöflaeyju-ættinni færi með aðalhlutverkið. Tæknivinnslan á myndinni er einsog margar íslenskar myndir frá íslenska kvikmyndavorinu, hljóðið lélegt, lýsingu ábótavant og taka og klipping oft helst of mikið amatör. Allt í lagi samt, maður fyrirgefur svoleiðis - ef sagan væri ekki eyðilögð í lokaatriðinu með einhverjum fáránlegum spaggetívestra!
Niðurstaðan: *½ - ein og hálf stjarna.
Shinui
Oft er athyglisvert að skoða pöpulísku flokkana fyrir kosningar. Þar má oft sjá hvaða mál skipta máli fyrir stóran hlusta kjósenda. Í Ísrael er líklegast pöpulískasti flokkurinn miðjuflokkurinn Shinui. Stefnuskráin gengur að miklu leyti út á að draga úr völdum orþadox Gyðinga í Ísrael, taka marga þeirra af ríkisspenanum en stór hópur últraorþadox Gyðinga nýtur styrkja ríkisins auk þess að þurfa ekki að gegna herskyldu o.fl.Shinui segist hafa "pragmatíska" stefnu gagnvart Palestínumönnum, vilja ræða við þá en ekki við Arafat.
Flokksforinginn Tommy Lapid er 71 árs fyrrverandi sjónvarpsþáttastjórnandi sem lifði af helförina. Hann vill skapa nútímalegt, veraldarlegt lýðræðisríki í Ísrael. Fyrir vikið er orþadox Gyðingum og flokkum þeirra mikið í nöp við hann. Engu að síður virðist flokkurinn eiga möguleika á að verða næststærsti flokkurinn í Knessetinu á eftir Líkúd. Það getur þó breyst, því oft sýna skoðanakannanir nýja (og sér í lagi pöpulíska) flokka stærri en þeir verða svo þegar í kjörklefann er komið.
Mugabe og Harry Potter
Í dag eru 23 ár liðin síðan Róbert Mugabe snéri aftur til Rhódesíu, sem síðar varð Zimbabve. Hann náði völdum í landinu í mars 1980 og hefur ráðið þar síðan. Á þessum tíma sagði hann m.a.: "We will not seize land from anyone who has a use for it. Farmers who are able to be productive and prove useful to society will find us co-operative."Áður fyrr var honum lýst sem marxískum terrorista og var í útlegð í 10 ár. Í dag verður honum vart lýst öðruvísi en sem einum versta einræðisherra álfunnar. Marxisti og ekki marxisti, honum hefur allavega tekist að skapa alræði öreiganna, því honum hefur tekist að gera alla landsmenn að öreigum (nema örfáa flokkshesta) og sveitir stuðningsmanna hans hafa algjört alræði, ræna, drepa og nauðga þeim sem taldir eru óvinveittir forsetanum.
Dýr væri Harry allur - Fifth Potter book 'too pricey' for US libraries
Þjóðarmorð Armena
Einar skelfilegustu þjóðernishreinsanir á seinni tímum fékk umfjöllun hjá BBC um helgina: Armenians say US failed themjanúar 26, 2003
Einstaklingsframtak dagsins
Þetta finnst mér alveg magnað! Bjarni&Unnur endurheimtu debet/kreditkortin hennar og það sem var stolið af henni sólarhring fyrr. Þjófurinn var svo vitlaus að panta sér pizzu með kreditkortinu hennar og var því hægt að hafa upp á heimilisfangi þjófsins.Þetta hlýtur að vera einstaklingsframtak dagsins :-)
Annars finnast mér sögur af heimskum þjófum stórskemmtilegar oft á tíðum. Keypti mér um daginn heila bók um heimsku þjófa (og reyndar í sumu tilfellum venjulegs fólks) sem hefur leitt það til dauða (eða gert það óhæft til að fjölga sér).
Darwin verðlaunin verðlauna bara þá sem drepa sig eða stórslasa. Þjófar þurfa þess ekki endilega til að sýna óbærilega heimsku. Mér finnst t.d. sagan af þjófunum sem brutust inn í ljósmyndavöruverslunina um hánótt ógrímuklæddir mjög fyndin. Þeir tóku myndir af sér á Polaroid-vél við innbrotið en föttuðu ekki að það tekur myndina smá tíma að framkallast. Skyldu því myndina og vélina eftir þegar þeir fóru með góssið með sér. Lögreglan var því ekki í vanda með að hafa upp á þeim með þessa fínu tækifærismynd í höndunum.
I did not...
Í dag eru víst fimm ár liðin frá því að ein frægasta yfirlýsing síðari ára var flutt.I did not have sexual relations with that womanÞetta var ljóta ruglið á sínum tíma. Fjögurra ára rannsókn Keneths Starr (engin tengsl við Ringo Starr) kostaði bandaríska skattgreiðendur hundruðir milljóna dala og skilaði litlu öðru en langri skýrslu (sem var lögð fram 11. september 1998) og fólk hafði eitthvað til að tala um á kaffistofunni og um eitthvað annað að hugsa en landsins gagn og nauðsynjar. Svo viðurkenndi Clinton um haustið að hafa logið að almenningi og ef ég man rétt lét hann bomba Írak í nokkra daga í kjölfarið. Merkileg tilviljun það.
Tvær klassískar frá þessum tíma: [1 | 2]
janúar 25, 2003
Dean Jones og Idi Amin
Sá það á Sjónvarp.is að stór-Disney-leikarinn Dean Jones er 72 ára í dag. Hann er frægur fyrir að hafa m.a. leikið upprunalegu Herbie-myndinni (og einni eða tveimur framhaldsmyndum) og sést í aðal- eða aukahlutverki margra Disney-myndanna sem RÚV sýnir núna á föstudagskvöldum.
Idi Amin tók líka völdin í Úganda þennan dag árið 1971. Hann stjórnaði síðan landinu út 8. áratuginn með blóðugu harðræði. Hann afrekaði m.a. að reka alla af asískum uppruna úr landinu '72 sem leiddi af sér efnahagsrun í landinu (sjá mjög athyglisverða fréttaskýringu um afdrif þeirra). Hann gerði líka út á þjóðflokkaerjur í landinu og lét drepa 100-300 þús. manns í þeim tilgangi. Þegar hann hrökklaðist frá völdum 1979, eftir að Tansaníuher hafði náð höfuðborginni en hann hafði sjálfur ráðist inn í Tansaníu árið áður.Í dag hafa einar athyglisverðustu skæruliðasveitir heims, LRA undir stjórn Jósephs Kony, sig í frammi í norðurhluta Úganda. "Athyglisverðar" segi ég, því þessar skæruliðasveitir hafa það að stefnu sinni að ná völdum og stjórna í takt við boðorðin tíu og local hjátrú og hefðir. Mér vitanlega eiga þessar sveitir sér ekki hliðstæðu utan Suður-Súdans og Norður-Úganda. Meðal þess sem LRA eru alræmdir fyrir er blátt bann við notkun reiðhjóla og drepa eða höggva fæturna af þeim sem brjóta það bann. Einsog svo margar afrískar skæruliðasveitir stunda LRA-skæruliðar það að ræna börnum og unglingum, drengir eru notaðir sem hermenn en stúlkurnar sem kynlífsþrælar. Sjá nánar frétt um LRA.
janúar 24, 2003
Gagnrýn hugsun
Ég hef vart lesið pólitísku vefritin síðustu vikur. Las fyrirsagnirnar áðan, sem er nánast það eina sem ég les orðið af þessum skrifum. Rak augun í áhugaverðan pistil á Tíkinni - og m.a.s. hann allan :-) - Gildi gagnrýninnar hugsunarÁ þessum degi
Skemmtileg síða á BBC-vefnum, On this Day.Í dag er það helst að á þessum degi árið 1965 lést Winston Churchill. Hann nýtur mikillar virðingar í sögunni, nema hjá hard-core vinstrimönnum.
Það er þó önnur gömul frétt sem vakti mína athygli, LSE closes over student clashes, gamli sósíalistaskólinn barðist við mótmæli stúdenta þegar reist voru stálhlið við innganginn í aðalbyggingar skólans. Dr. Gautam Appa, sem var nemandi í skólanum á þeim tíma en kennir núna við hann rifjar upp atburðina og kemst skemmtilega að orði:
I find there is such a big difference between students' concerns nowadays and what our concerns were.Og að því sögðu... Mikið finnur maður til með hægrimönnum þegar þeir mála sig út í horn um leið og þeir opna munninn um alþjóðastjórnmál.
Now they are interested in their own career, how much money they can make and perhaps having a good time.
For us, discussing world politics and the latest happenings in Vietnam were more important things.
Hello Tokyo!
Öllu áhugafólki um skemmtilegan hár-, meik- og fatastíl er bent á þetta myndasafn: tokyolifeJapansk götulíf er mjög furðulegt. Sumt sem þar fyrir augu ber minnir á 50's outer-space kvikmyndir.
Gianni
Gianni Agnelli er látinn. Líklegast sá maður sem hefur haft mest áhrif á Ítalíu eftirstríðsáranna. Hann stjórnaði Fiat-samsteypunni og öllu því sem henni tilheyrði auk þess að auka banka, fjölmiðla o.fl.Einhvern tímann heyrði ég þá skýringu, sem átti að lýsa mikilvægi hans í þjóðfélaginu, að í kringum 1980, þegar hryðjuverk og mannrán voru daglegt brauð á Ítalíu, þá voru öryggisráðstafanirnar í kringum Agnelli meiri en í kringum sjálfan forsetann (eða nokkurn annan Ítala). Hafði hann á að skipa einkaher sem varði hann og fjölskylduna fyrir árásum hryðjuverkamanna.
Fiat hefur verið nær gjaldþrota síðustu misseri og m.a. mikið rætt um að Agnelli fjölskyldan drægi sig út úr fyrirtækinu og GM (sem á 20% á móti ca. 30% Agnelli-fjölskyldunnar) taki fyrirtækið yfir. Sérfræðingar í bílaiðnaðinum hafa varað við því, þar sem GM kunni aðeins eitt þegar kemur að yfirtöku erlendra bílaframleiðenda: setja þá endanlega á hausinn.
Gianni hefur neitað að láta Fiat frá sér, enda sagður tilheyra öðru tímabili, annarri tegund stjórnenda. Sumir hafa líkt honum við Henry Ford og Rockefeller á sínum tíma í Bandaríkjunum. Gianni hefur verið holdgervingur gömlu ítölsku viðskiptajöfrana, sem hugsuðu um meira en marginur og ebitur.
Fyrir rúmum fimm árum lést Giovanni, frændi Giannis, sem átti að taka við stjórn samsteypu fjölskyldunnar. Hann hafði m.a. verið látinn vinna á öllum stigum framleiðslu Fiat, undir dulnefni, til að kynnast af eigin raun öllum innviðum fyrirtækisins.
Fjárhagserfiðleikar Fiatsamsteypunnar munu e.t.v. ríða fyrirtækinu að fullu. Við fréttirnar af andláti Giannis hækkuðu bréf í fyrirtækinu um 5%. Markaðurinn virðist meta það sem svo að fyrirtækið sé betur statt án hans.
janúar 23, 2003
deCode og IBM semja
Ég var að fá reglulegt fréttabréf sent frá Forbes. Þar er þetta efsta frétt: IBM Signs Deal With DeCode GeneticsÍ sama fréttabréfi er þessi stutta frétt: The Ten Most Dangerous Travel Destinations. Þar segir m.a.:
For a cheekier take on travel safety, visit the Web site "Come Back Alive," written by Robert Young Pelton, author of books such as The World's Most Dangerous Places (HarperResource, 2000). Pelton offers a highly political--and politically incorrect--take on current events and volatile countries. [Editor's note: As of Wednesday, Jan. 22, Pelton is believed to be one of three journalists kidnapped in Panama City. Panamanian media said the men were seized on Sunday by a right-wing paramilitary group, the United Self-Defense Forces of Colombia, just north of the Colombian border in Panama. At press time, he is still believed missing.]Kannski er ég bara með skrítinn húmor, en mér finnst þetta skondið - á mjög kaldhæðinn hátt.
Uppfært 240103: Nýjustu fréttir (CNN) herma að búið sé að sleppa Pelton og félögum.
Franskur exodus?
French Jews leave with no regretsLeiðindarfrétt frá Frakklandi þess efnis að helmingi fleiri Gyðingar flytji núna frá Frakklandi til Ísraels (2 þús. í stað 1 þús). Hvergi annars staðar í Evrópu býr jafn mikill fjöldi Gyðinga og í Frans eða 600.000.
Condi skrifar
Condoleezza Rice skrifar í NYT í dag: Why We Know Iraq Is LyingHún lýkur grein sinni með orðunum:
By both its actions and its inactions, Iraq is proving not that it is a nation bent on disarmament, but that it is a nation with something to hide. Iraq is still treating inspections as a game. It should know that time is running out.Og talandi um Írak, ég fór á fyrirlestur í gær hjá Michael Corgan. Meira um það síðar.
Hiti: 0°
Kuldakastinu virðist vera að ljúka, sem er hið besta mál.Aftur á móti er ég ekki eins sáttur við að mæta í skólann og koma að lokuðum dyrum á stofunni. Jújú, ég var fimm mínútum of seinn og hélt að kennarinn hefði bara læst, einsog þeir eiga stundum til að gera.
Svo var ég núna að hitta Sigurbjörgu sem var að segja að það væri frí í þessum tíma (bara einn tvöfaldur tími hjá mér á fimmtudögum), kennarinn væri í útlöndum.
Ég er ekki sáttur. Ef ég hefði ekki sofið í 13 klst. í nótt þá væri ég virkilega ósáttur.
Ekki það að það er nóg annað að gera, þannig ágætt að koma sér almennilega á fætur fyrir hádegi, þar sem ég virtist geta sofið endalaust í morgun.
Best að koma sér út í frostleysið að útrétta.
ps. Furðulegt þegar mann dreymir í sketchum... nihilistar voru að ásækja mig og á tímabili var ég staddur í Monthy Pythonsku atriði (a la dead parrot). Frekar súrt allt saman.
janúar 22, 2003
Með og á móti
Tómas Friedman skrifar í dag grein í NYT, þar sem hann gagnrýnir afstöðu "líberalista" (semsé þeirra sem eru á móti Íraksinnrás): Thinking About Iraq (I)Hann lofar að gagnrýna afstöðu konservatívra (sumsé þeirra sem vilja helst "njúka helvítin") á sunnudaginn. Bíð spenntur eftir því. Margt gott í grein dagsins en ekkert sem breytir afstöðu manns.
Eilífðarmálið
Það stefnir í að ég sé að fara að skippa tveimur alþjóðafjármálatímum fyrir þennan fyrirlestur.Finsbury Park
One thing I hadn't quite expected was the extent to which the lads who follow this extreme strain of Islam are obsessed with gender politics. Their main problem with British society is the "sluttish" way women dress, the fact that "we allow our women – all our women – to be whores, dirty fucking whores". No conversation would go for five minutes without returning to this topic. These are, after all, sexually frustrated young men who are convinced that even masturbation is immoral – so, like all people who fanatically suppress their sexuality, they have begun to hate the thing they desire.Úr ágætlega áhugaverðum pistli Jóhanns Hari í Independent.
30 ára frelsi
US abortion debate intensifieswhile the president has said that in its landmark 1973 Roe v. Wade case, which legalised abortion, the Supreme Court "overstepped the Constitution," he has to tread cautiously [...] because polls show that a majority of Americans still broadly support the right to abortion by a two to one majorityFóstureyðingum hefur fækkað stöðugt frá 1981, þegar þær náðu hámarki sínu. Ástæðurnar eru (taldar) bæði betra aðgengi að getnaðarvörnum/færri óvæntar þunganir og að aðgengi, sérstaklega í Vestur- og Suðurríkjunum, hefur verið skert, bæði af löggjafanum og t.d. þeirri staðreynd að spítalar sem hafa sameinast kaþólskum spítölum hafa hætt að framkvæma fóstureyðingar. Því eru fóstureyðingar margfalt algengari í NA-ríkjunum en vestast og syðst.
Nú ætla demókratar að keyra á þessu, þar sem mikið af sveifluatkvæðum, sérstaklega meðal kvenna í Norðurríkjunum, blöskrar hörð andstaða Bush&Co. gegn fóstureyðingum. Pro-choice samtökum hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarið og er það helst vegna þess hve andstæðingar þeirra hafa verið mikið áberandi (enda oft mun skipulagðari með heilu kirkjuherdeildirnar á bak við sig).
Það er nokkuð ljóst að deilan vestan hafs um frelsi kvenna mun harðna á næstunni ef eitthvað er.
PC dauðans
Beatles Abbey Road cigarette airbrushedEr ekki í lagi með fólk????
Eigum við ekki bara líka að afná alla vindlana af myndum af Churchill í sögubókum?
Heimska fólk!
janúar 21, 2003
Lenin død
Hér má sjá forsíðu New York Times á þessum degi árið 1924, fyrir 79 árum.Þar er sagt frá því að Nikolai Lenin sé látinn. Mjög mögnuð mynd af karlinum á forsíðunni.
"victims of Islamist terror"
Inayat Bunglawala, talsmaður Muslim Council í Bretlandi, skrifar grein í Telegraph í dag: We Muslims are also the victims of Islamist terrorÞar koma fram skoðanir sem Bunglawala er án efa ekki einn um að hafa.
To summon the courage to speak out against young hotheads is also to risk abuse from them. They tolerate no opinion other than their own. It is a form of intellectual terrorism. Not surprisingly, many Muslims prefer to keep their heads down, just hoping that the situation improves. What should be done?Grein sem er alveg þess virði að lesa.
First, it should be acknowledged that recent events have shown that there is a genuine and widespread concern that some violent individuals have arrived in this country, ostensibly as asylum seekers. Recent arrests have created an impression that Britain's asylum policies are failing and that it is only a matter of time before there is a mass terrorist strike on our country. The fear is quite palpable.
Frá S&M til CNN
Skondin lýsing:To be sure, Mr. Kim is not the crazy playboy he was said to be in the 1980's and 90's, when intelligence reports on him were full of lurid stories of Swedish blondes and S-and-M videos. As better defector evidence emerges, it turns out that the Great Leader is actually a smart and self-confident sophisticate who surfs the Internet and watches CNN; any day now we may find that he's a fan of Wall Street Journal editorials.Kaldhæðnin er í boði Nikulásar Kristof: Tunneling Toward Disaster
janúar 20, 2003
Anti-Íslendingur
Við Þórir vorum að diskútera það sem ég skrifa hér fyrr í kvöld. Hann lætur líka skoðun sína í ljós á síðunni sinni. Ég vil benda Þóri á eitt atriði í viðbót (án þess að ég nenni að eyða meira púðri í þetta umræðuefni), við vorum komnir í rökræður um sjálfstæðismál Færeyinga og Grænlendinga áður en ég kom þessu atriði að: Þórir virðist kjósa að einblína á orðið Íslendingur í fullyrðingunni (hans orð, ekki mín) "Íslendingar eru ömurlegir". Pointið er frekar það að til þess að fá þessa niðurstöðu þarf að gefa sér: x er ömurlegt -> Íslendingar eru x -> Íslendingar eru ömurlegir (frekar mikil einföldun). Í stað þess að einblína á síðasta atriðið ætti Þórir að skoða það fyrsta. Þá sér hann kannski að við erum ekkert svo ósammála... jú reyndar :-)Ef menntamálaráðherra Frakklands hefði sagt það sem Tómas Ingi Olrich sagði, finndist mér það jafn hallærislegt.
Ef ég sæi fréttir í Noregi af norskum áhættuleikara í nýjustu Scorsese-myndinni, þá væri það jafn hallærislegt í mínum augum.
o.s.frv.
Reynum að halda okkur á jörðinni :-)
Meira
Fyrst ég er byrjaður þá verð ég að koma þessu að:Um helgina var Íslendingabók opnuð á netinu. Að því tilefni talaði háttvirtur menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, sem á norskan föður, fjálglega um að Íslendingar væru allir skyldir í gegnum Jón Arason... Spurning hvaða skýring er lögð í orðið Íslendingur.
Yfirleitt eru það aðrir hlutir sem tengja heilu þjóðirnar saman en að allir séu undan sama kaþólska byskupnum!
*dæs*
Merkilega land
Einhver íslenskur jólasveinn vann við það í ítölsku kvikmyndaveri að vera áhættuleikari í kvikmyndinni Gangs of New York. Hann var einn af tvöhundruð og fimmtíu!Í gærkvöldi sýndi Stöð 2 Golden Globe verðlaunahátíðina, sem er einu leveli fyrir ofan Edduna, í beinni útsendingu. Í kvöld er hún endursýnd á besta tíma. Hver horfir eiginlega á þetta!
Og að lokum, og líklegast það sem er mest hneykslanlegt, HÍ kennir ekki einn einasta kúrs í þróunarhagfræði (economic development). Það breytir því ekki að HÍ er vitanlega eini háskólinn á Íslandi sem verðskuldar titilinn rannsóknarháskóli/University hér á landi (lesið bara miðopnuna í Mogganum í dag) - a.m.k. ef maður spyr spekingana vestur við Suðurgötu.
Mikið fer þessi þjóð í taugarnar á mér.
Og nú ætla fjórir fræknir spekingar að analæsera hvað Íslendingar eru frábærir í handbolta í Kastljósinu. Ég sá einu sinni þátt um íþróttir um víða veröld. Þar var m.a. alltaf tekin fyrir ein "furðuíþrótt" í hverjum þætti, t.d. tennis sem spilaður er í Asíu án tennisspaða (en fæturnir notaðir til að sparka boltanum yfir netið). Nema hvað, í einum þættinum var tekin fyrir furðuíþróttin "handball" og Rússar sagðir helstu spilarar hennar, auk Þjóðverja. Þetta er eina íþróttin sem Íslendingar geta spilað (yfirleitt) skammlaust. Já, og stangastökk kvenna, þ.e.a.s. þangað til aðrar þjóðir fóru að æfa það sport. Þá hættu Íslendingar að sjást á verðlaunapalli fyrir stikkdjömpið.
*dæs*
Bic Mac vísitalan
Í nýjasta tölublaði Economist birtast nýjustu tölur í Big Mac vísitölunni. Þið megið geta þrisvar hvaða land er með hæst skráða gengið m.v. hamborgarann alræmda... sjá hér.Í USA kostar Big Mac 212 í.kr. ($2,65 x 80).
Í sama tölublaði er survey um Íran... ég get ekki beðið eftir að sökkva mér í hana. Aftur á móti kýs ég frekar að kaupa mér blaðið og lesa það á prenti, þannig ég þarf að heimsækja bókabúðina á morgun. Ég fór einmitt í bankann að kaupa mér sterlingspund til að senda út til að endurnýja áskriftina mína. Þannig næ ég að spara mér nokkrar krónur og fæ hana á stúdentaafslætti. Reyndar verð ég búinn að kaupa svo mörg tölublöð í bókabúðinni þegar áskriftin loksins endurnýjast að ég verð sjálfsagt kominn í mínus.
Chill'í lummu
Langt síðan maður hefur heyrt þetta orðatiltæki. Ég mæli eindregið með að skoða baksíðu DéVaff í dag. Þar er stór mynd af tveimur landsliðsmönnum í handbolta að leika sér í PlayStation, þeim Ólafi Stefánssyni og Sigfúsi Sigurðssyni. Af rýnt er í myndina sést dós með sænsku munntóbakki á borðinu fyrir framan gulldrengina.Heilbrigð sál í hraustum líkama. Amen.
Mæting
Ég veit ekki hvað það á að þýða en ég hef aldrei séð jafn góða mætingu á mánudagsmorgni. Varla búið að vera autt sæti í salnum í öllum tímunum frá átta. Mætingin hefur nokkrum sinnum farið niður í 8 stk. og einu sinni sátu fjórir í tíma fyrir jól. Núna voru rétt tæplega 100! Reyndar hafa örfáir látið sig hverfa fyrir seinni stjórnunartímann en hér sátu 100 manns og kynntu sér andlitslyftingu Icelandic-vörumerkisins hjá SH.Alkinn Bush
Off the WagonPaul Krugman líkir fjárlagagerð Bush-stjórnarinnar við alka sem smá saman sannfærir sjálfan sig um að það sé allt í lagi að fá sér sjúss við og við... þangað til hann er farinn að sannfæra sjálfan sig um að það sé hvort eð er ekkert svo spes við að vera edrú.
Ekki svo vitlaus samlíking, þegar litið er á þróunina síðustu tvö ár, bæði í orði og á borði.
janúar 18, 2003
Ferðin til vesturheims
TOEFL-prófið í morgun gekk bærilega. Krossahlutinn, hlustunin, málfræðin og lesskilningurinn gekk vel. Aftur á móti var hálf-níu reglan í góðu gildi. Aldrei búast við hálfum afköstum í heilastarfsemi fyrir hálf-níu á morgnanna. Ég hélt að endað væri á ritgerðinni en aftur á móti var byrjað á henni. Var að rifjast upp fyrir mér a.m.k. ein vitlaus stafsetning á 8.-bekkjar orði, en það þýðir ekkert að svekkja sig á því, svona er þetta.Ég vaknaði semsagt klukkan 6:45 og var kominn á Keflavíkurveginn hálf-átta. Ekki var erfitt að finna hliðið (en skiljanlega ef ég aldrei komið til Ameríku fyrr). Þar tók á móti mér private Benjamin með byssu í hönd og spurði einfaldlega "here for the test?". Hann vísaði mér svo á hæskúlinn sem er nokkuð stór bygging og stendur, einsog önnur hús þarna (af þeim sem ég sá), í gróðurlausu umhverfi þarna á heiðinni og er langt á milli allra húsa. Útsýnið er aftur á móti nokkuð, maður sér yfir Vatnsleysurnar og hraunið allt yfir að Sveifluhálsi og þar í kring.
Eftir að hafa parkerað bílnum kom ég inn í hæskúl í fyrsta skipti. Á móti mér tók glaðlegur og almennilegur karl með skegg, svolítið þybbinn og líklegast um fimmtugt. Konan hans, tveimur, þremur árum yngri, og ansi amerísk í útliti var þarna líka og sátu þau yfir mínum hóp.
Á veggjum stofunnar var vart hægt að sjá í hvítmálan vegginn fyrir skólaverkefnum krakkanna sem eru þarna dags daglega. Myndir af Martin Luther King jr., Einstein, Ghandi, Hemingway, Edgar Allan Poe og fleirum. Engin mynd af forsetanum sjáanleg. Sá heldur engan fána. Þau orð sem komu oftar fyrir í verkefnunum en önnur voru "peace" og "paradise". Kannski ekki skrítið þegar börn alast upp í herstöð að læra snemma að meta friðinn.
AH Mahan Elementary School hefur 22 kennara og 14 sérfræðingastöður (hjúkka, námsráðgjafar o.þ.h.). AH Mahan High School hefur aðeins 17 kennara sökum fárra nemenda. Báðir skólarnir eru staðsettir í sömu byggingunni. Skólinn er sagður ágætlega búinn (src).
Prófið sjálft var mjög amerískt, þ.e.a.s. leiðbeiningarnar sem voru lesnar upp af bandi voru mjög nákvæmar. Svosem skiljanlegt þegar um er að ræða próf sem 700 þús. manns víðsvegar um heiminn taka á ári hverju, að menn vilji hafa þetta formlegt og staðlað. Gott dæmi þar sem skrifræði er nauðsynlegt í stjórnun.
Karlinn glaðlegi spurði þegar hann var að fara í gegnum útfyllingu prófsins skref fyrir skref og kom að því þar sem skrá á númerin fyrir þá skóla sem maður vill láta senda niðurstöðurnar til, hvort einhver væri að sækja um í Ohio State (hans gamla skóla). Enginn ætlaði sér þangað en hann bætti við að þar séu fleiri við nám (fyrir utan þá sem eru í kvöldskóla) en allir íbúar Íslands! Ég velti fyrir mér hversu margir kennarnir séu!
Hvað um það, prófið hófst klukkan hálf-níu. Langan tíma tók að skrá sig á prófblöðin tvö eftir kúnstarinnar reglum. Byrjað var á TWE-ritgerðinni, einsog áður sagði, og gekk mér ekkert sérstaklega vel með hana. Kom mér ekki í gang á þeim hálftíma sem við höfðum til að skrifa. Efnið var "a person's childhood years are the most important years of a person's life" (eða eitthvað álíka). Röflaði eitthvað um Freud og lengi-býr-að-fyrstu-gerð pælingar. Náði ekki að skrifa nema fylla fyrri síðuna. Rétt náði að renna yfir textann. Vona að ég nái nauðsynlegum 4 1/2 (topp 84%) en gæti svosem fengið skitinn fjarka fyrir þetta, sem er ekki nógu gott (gefið 1-6). Krossahlutinn gekk bara vel, hlustunin var nánast öll örugg, málfræðin gekk framar vonum og lesskilningur var svona 85% pottþéttur. Ég var að slá það saman skv. upplýsingunum í bæklingnum að líklegast á ég bara góða möguleika á 600 stigum. Enda var eina vandamálið í prófinu að, einsog svo oft áður þegar ég tek daginn alltof snemma og reyni að borða eitthvað snemma morguns, þá gerði maginn uppreisn gegn mér í 1. og 2. hluta. Ætla mér að fá helst 600 stig á þessu prófi (topp 82%), þar sem það er sagt sambærilegt við 250 stig á tölvuprófinu. Minna má það vart vera.
Þegar út var komið var allt jafn hreyfingarlaust úti fyrir og fyrr um morguninn. Á móti skólanum, hinum megin við East Avenue stendur kirkjan, Chapel of Light. Þar er stór billboard fyrir utan með rauðum stöfum. Þar var verið að auglýsa morgunmat fyrir karla annars vegar og konur hinsvegar (?) þegar ég kom. Núna sá ég auglýsingar fyrir guðsþjónustu morgundagsins. Nóg að gera í Kapellu ljóssins á sunnudögum. Hálf-níu eru það babtistarnir, meþódistarnir og aðrir liturgical protestants, kaþólikkarnir fá sína messugjörð 9:45 á sunnudögum, eftirmiðdaginn á laugardögum og 12 í hádeginu alla aðra daga nema fimmtudaga. Almenn mótmælendamessa er svo klukkan 11 á sunnudögum og hálf-eitt er gospel-messa. Gyðingar fá sína þjónustu líka, á annan og fjórða föstudag í hverjum mánuði. Sunnudagaskólar, biblíuskólar og öll almenn kirkjuþjónusta er veitt í Kapellu ljóssins. Auk þess er boðið upp á háamerískt fyrirbæri þar, SALT (Single unaccompanied Adults Linked Together).
Ók út á East Avenue og beygði á gatnamótunum hjá Andrew's Theater niður Airport Avenue og ók aftur heim til Íslands. Hugsaði um það þegar ég ók meðfram girðingunni hvernig í sjálfu sér eini augljósi munurinn á blokkunum sem sjást frá veginum var ameríski bílaflotinn fyrir utan. Velti líka fyrir mér hvað það væri heillandi að gera félagsfræðilega rannsókn á því hver væri munurinn að búa innan þessarar girðingar eða úti á landi í týpísku íslensku sjávarplássi. Þarna snýst allt lífið um að þjónusta eitt kompaní, helsta skemmtunin er að horfa á vídjó. Augljósasti munurinn er líklegast að þarna er kirkjusókn líklegast margföld m.v. þá íslensku og á Vellinum hafa þeir Wendy's.
Mér varð líka hugsað til þess, þar sem ég sat og beið í stofunni eftir að prófið byrjaði, í stól með áföstu borði (sem mátti ekki vera hálfu númeri minni til að maður kæmist almennilega fyrir í honum), hvað það hlýtur að vera furðulegt að alast upp á svona stað - innan girðingar. Á margan hátt fann ég til með fólkinu, svona á svipaðan hátt og sumstaðar úti á landi, þar sem maður finnur hvernig einangrunin er þrúgandi.
Og talandi um Völlinn, þá er þetta alltaf jafn skemmtileg "frétt": Learning about Iceland
janúar 17, 2003
Vegabréfavandræði
Yfirleitt þarf nokkuð mikið til að ég panikki. Þegar þú þarft að nota vegabréfið þitt á laugardagsmorgni og klukkan er hálf-fjögur á föstudegi... þá panikkar maður.Í fyrramálið fer ég út á Keflavíkurflugvöll (nánar tiltekið í A.T. Mahan High School) til að taka TOEFL-prófið. Þegar ég var að hafa mig til í dag uppgötvaði ég að passinn minn rann út í desember (úps!). Á undraverðum tíma náði ég að komast að því hvar ég gæti fengið passa strax. Rauk niður í bæ að láta taka mynd af mér. Kom í ljós að framköllunarþjónustan er hætt svoleiðis löguðu en sem betur gat ég fengið myndir á öðrum stað. Brunaði svo inn í Útlendingaeftirlit þar sem ég fékk passa. Hjúkk!
Ég hef sjaldan panikkað jafn mikið og þvílíkt og annað eins stress! Næsta próf átti að vera í mars en var fellt niður og því næsta próf í maí. Það var því ekki fræðilegur möguleiki að ég gæti tekið TOEFL öðruvísi en í fyrramálið. Náttúrulega heimsins versta heimska í mér að vera ekki með þetta á hreinu, en svona get ég verið stundum. Þetta reddaðist, sem betur fer, enda kyssti ég konuna inn í Útlendingaeftirliti fyrir að hafa bjargað mér.
Á móti kemur að núna er ég með mynd í passanum mínum þar sem ég er með úfið hárið, móður eftir hlaup í leit að ljósmyndastofu og í flíspeysu. Sést líka greinilega að ég þarf að fara í klippingu.
Ég er allavega, ég er fegnast maður á Íslandi í dag og ennþá hálf eftir mig af spennufalli.
...og þó, Þórir er jafnvel fegnari en ég, því hann náði lögfræðinni!! Húha!
janúar 15, 2003
Með kvöldkaffinu
BBC: Pressure increases on Turkish Cypriot leaderDowd on Bush: Running Fast Into the Past
Frisk: New crisis, old lessons
15. janúar
Í dag er fæðingardagur Martins Lúthers King jr. (1929-1968). Þennan dag fæddist líka Aristóteles Onassis árið 1906 í Anatolíu í Tyrklandi (þó ekki fullvíst með nákv. dagsetningu). Ég sá ágæta heimildarmynd um hann á BBC um daginn. Merkilegur karl. Var einn af mörgum Grikkjum sem voru hraktir frá Tyrklandi í fyrri heimstyrjöldinni. Ein af mörgum sorgarsögunum í samskiptasögu Tyrkja og Grikkja. Þessir grísku flóttamenn settust að miklu leyti að í Aþennu og gerði hana að þeirri stórborg sem hún er í dag. Þangað má rekja að einhverju leyti skilst mér hvers vegna mörg hverfi borgarinnar þykja afspyrnu ljót á að líta. Þess má geta að Onassis varð ríkur í Argentínu (hvar annars staðar!) á sígarettusölu.Í dag hefði líka afi minn og alnafni orðið áttræður hefði hann lifað. Hann kenndi mér ágæta lífsreglu sem var, að maður miðar sig aldrei við annað en það besta. Ágæt regla það. Blessuð sé minning hans.
La
La dí da. Ég er í alls engu stuði fyrir þrefaldan alþjóðafjármálatíma. Einn tími búinn, tveir eftir.Vakti alltof lengi í nótt. Svosem ekkert nýtt en ég er óvenju þreyttur í dag. Tæklaði fyrsta kaflann í arabísku bókinni sem ég keypti mér frá Amazon um jólin. Hún veldur mér ekki vonbrigðum, virðist vera mjög góð. Þetta er þýtt kennslubók úr þýsku og er útgefin árið 2000. Fyrsti kaflinn reyndi á stafróð og framburð. Það var ágætt að rifja það upp. Reyndar kannaðist ég við lítið úr orðaforðanum í framburðaræfingunum, þannig ég lærði eitthvað nýtt líka. Þar sem maður hefur engan kennara til að spyrja, þá velkist ég í vafa um hvernig framburður á لَوح (borð) er. Ég ber það alltaf fram einsog "la" (لا), sem er nei! Þar sem þetta er lem-vá-ha [lawh] þá er mér ómögulegt að lesa það öðruvísi en sem "la".
Auðvitað get ég borið fram "laH" (eða öllu heldur hóstað því út úr mér) ef ég vanda mig extra mikið en í setningu er mér fyrirmunað að bera fram orðið einsog það er skrifað eftir framburði [lawh].
janúar 14, 2003
Kýpur
Thousands rally for united Cyprus.Aldrei að segja aldrei en ég leyfi mér að vera mjög skeptískur á að Kýpur verði sameinuð á allra næstu árum. Reyndar hefur Erdogan sagt að hún sé ekki stóra málið í tyrkneskum stjórnmálum núna en herinn er enn á því að Kýpur eiga að vera tyrknesk áfram (þ.e.a.s. nyrðri hlutinn af henni). Ef herinn segir eitthvað, þá vitum við að það er svoleiðis.
ESB eða ekki ESB, Tyrkir eru ekkert á leiðinni þar inn, þannig ég hef enga trú á að Kýpur-málið verði leyst á næstu (5+) árum. Reyndar er Denktash að nálgast grafarbakkann, þannig það er aldrei að vita svosem. Ef almenningur þrýstir mjög á sameiningu þá gæti svosem orðið af henni. Ef það verður úr er það að sjálfsögðu hið allra besta mál, sundrungin er í nær öllu tilliti gjörsamlega út í hött.
Í tyrkneska hluta eyjunnar búa núna rúml. 100 þús. innflytjendur frá meginlandi Tyrklands. Nú eru tyrkneskir Kýpverjar aðeins 88 þús. en voru 104 þús. þegar landið fékk sjálfstæði 1960. Af heildaríbúafjölda sem telur 785 þús. búa einungis 141 þús. í tyrkneska hlutanum (meginlands-Tyrkirnir sem eru tyrkneskir ríkisborgarar ótaldir). Því mótmælti a.m.k. fimmtungur íbúanna (BBC segir rúmur fjórðungur). (skv. því sem ég finn upplýsingar um á netinu)
En einsog ég sagði, sameining kæmi mér talsvert á óvart - en ég vona að ég hafi rangt fyrir mér að þessu sinni.
Albínóar
Maður vissi að albínóar hefðu það slæmt í Afríku en eitt fannst mér stinga í augun í þessari frétt, Albinos hit by Zimbabwe's race divide: "These are the more than 15,000 blacks with albinism [in Zimbabwe]".Ég vissi ekki að þetta væri svona algengt. Þjóðin telur ekki nema 11,4 milljónir manna og þýðir það, að m.v. sama hlutfall séu albínóar á Íslandi um 370! Nú þekki ég ekki hvað veldur þessu nákvæmlega og hvort albínismi sé algengari í Zimbabve eða óalgengari. Mörg börn sem fæðast með albínisma eru borin út í Afríku o.fl. sem spilar inn í. En gefum okkur að þessi tala (370) sé ekki fjarri lagi, þá verð ég að segja að það finnst mér rosalega há tala - m.v. að ég hef aldrei (mér vitandi) vitað um/hitt/séð albínóa hér á landi.
Auðvitað spilar mikið inn í að albínóar eru jú hvítir og hvar finnur maður hvítara fólk en norður við heimskautsbaug? Við með keltneska blóðið náum því líklegast að vera næst því að vera með líka húð og albínóar (þó hárið sé fjarri því að vera hvítt í okkar tilfellum). Albínói sker sig því aldeilis meira úr fjöldanum í löndum svartra en bleikra.
Núna rifjast reyndar upp fyrir mér að ég sá einu sinni strák á förnum vegi sem var alveg hvíthærður og svona fölbleikur í andliti. Má vera að hann hafi verið albínói - hver veit.
Annars er eftirminnilegasti albínóinn þessi sem elti bókasafnsfræðinginn Goldie Hawn á röndum í Foul Play.
Og talandi um föla fólkið. Alltaf jafn skondin staðreynd að Ítalir voru sameinaðir af hinum rauðhærða Garibaldi. Og Vivaldi var ekki kallaður "rauðhærði klerkurinn" fyrir ekki neitt.
Rauðhærði skoski íslamistinn í Berkeley
Á námskeiðinu í gær var m.a. farið í brot af skrifum Khomeinis. Þá kom fram að sá sem hefur þýtt mestan hluta þeirra yfir á ensku er Hamid Algar, rauðhærður Skoti sem convertaði til íslam fyrir 30+ árum og hefur mikla trú á Khomeini. Hann kennir við Berkeley University og hefur það stundum þótt vandræðalegt fyrir þá virðulegu menntastofnun.ps. Í dag eru sextíu ár síðan að Casablanca-fundurinn var settur.
Shítar og Saddam
Mjög aðgengileg grein sem fjallar um mikilvægt (en flókið) málefni: Shiites Pose Threat to HusseinÍ landi leiðtogans
Nicholas Kristof skrifar góðan pistil í dag: North Korea's Secret.Hann spyr grundvallarspurningar:
So how can we undermine North Korean propaganda and totalitarianism? By imposing sanctions and increasing its isolation? Or by engaging it and tying it to the global economy?Og svarar:
The answer should be obvious, for there is no greater subversive in a Communist country than an American factory manager.Tilvitnanir: ©2003 The New York Times Company
[...]
If only President Clinton had instituted the 1994 agreement with gusto, flooding North Korea with diplomats, investors, traders and pot-bellied bankers who ostentatiously overeat — without exploding — then monuments to the Great Leader might already have been replaced by American-run Internet cafes.
Viðbót: Daily Telegraph: US offers N Korea fuel to ease nuclear row
janúar 13, 2003
Kurds at the Gates
Ég held að ég hafi örugglega minnst á það hérna á síðunni en í haust las ég grein í ME Times um að klerkarnir í Íran séu með íslamista við landamærin við í NA-Írak í einskonar verktakavinnu við að berjast við Kúrda. (Reyndar var fjallað betur um þau tengsl í annarri grein en þeirri sem ég vísa á, en ég finn hana ekki.)Þessir íslamistar kallast Ansar al-íslam og hafa (að því er virðist öruggt) tengsl við Al-Qæda. (Ansar þýðir "fylgjendur" eða "hjálparar".)
Í dag fjallar NY Times um þetta: Kurds Face a Second Enemy: Islamic Fighters on Iraq Flank
Í grein NYT er ekki eins mikið gert úr írönsku tengslunum en vitnaði í Kúrda sem segja Írani sjá Ansar fyrir vopnum og vistum.
M.v. þetta kort af Írak (úr World Fact Book) þá er svæðið sem um ræðir ekki langt austan við As Sulaymaniyah.
Múrinn leiðréttur
Ein af hugdettum haukanna við undirbúninginn fyrir árás á Írak er að gera landið að konungsríki og sækja kónginn til Jórdaníu þar sem sonur Husseins fyrrum Jórdaníukonungs og, eðli málsins samkvæmt, bróðir Abdullah konungs mun vera á lausu.Þarna er væntanlega verið að tala um Hassan prins, fyrrum erfingja krúnunnar í Jórdaníu. Hann er yngri bróðir Husseins heitins konungs og því föðurbróðir Abdúllah, ekki bróðir.
janúar 12, 2003
Tölfræði
Tölfræði getur sagt margt. Maður verður alveg orðlaus þegar maður skoðar þessar tölur.(Fjöldi kaþólskra presta í USA sakaðir um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum)
Friedman dagsins
The good news is that Saddam is no longer viewed as any kind of folk hero, and most people, it seems, would welcome his demise. The bad news is that George Bush and U.S. policy are disliked even more. What gives?Thomas Friedman: Sealing the Well
Viðskiptabannið á Kúbu
New York Times er einstaklega gott í dag. Ekki bara leiðara gagn stefnu Bush & Co. í fóstureyðingum (sem ég var búinn að minnast á) heldur líka "editorial observer" eftir Adam Cohen um viðskiptabannið á Kúbu.Which means that in these crazy times, when it's difficult to see even one step into the future in many parts of the world, in Cuba it is possible to see two: the end of the embargo and — just as inevitably — embargo nostalgia.Sjá: Two Things Linger in Cuba: Fidel and a Pointless Embargo
Stétt með stétt
David Brooks, ritstjóri The Weekly Standard, skrifar skemmtilega grein um stéttleysið í Bandaríkjunum: The Triumph of Hope Over Self-InterestFrekar skondin staðreynd að 19% Bandaríkjamann telja sig tilheyra ríkasta prósenti þjóðarinnar. Og einsog Brooks bendir á "Most Americans do not have Marxian categories in their heads." Allavega, skemmtileg stutt grein, sérstaklega fyrir marxista :-)
Silfrið
Ég held að Egill Helgason hafi verið uppvís að mesta klúðri ferils síns í dag - og er þá mikið sagt.Að brenna inni á tíma með jafn marga leiðinlega viðmælendur og sátu hjá honum. Afskaplega óáhugavert viðtal við einhvern stjórnmálafræðing um minnilhlutastjórnir (Uppfyllingarefni með stóru u-i) og svo eitthvað tuð um fjölmiðla á Íslandi þar á undan og "ástand og horfur" umræða sem einungis undirstrikaði hvað sumt fólk er alltaf hvumpið.
Á meðan varð án efa áhugaverðasta umræðan, um Írak og Norður-Kóreu, úti í kuldanum og komst ekki að. Ég hef öruggar heimildir fyrir því hverjir áttu að taka þá umræðu og hefði orðið úr skemmtilegar "rökræður".
Því sat maður yfir þessu í dag og beið og beið eftir þessari einu umræðu sem ég hafði áhuga á þarna. Mánudags-Mogginn, sænskar minnihlutastjórnir og Ingibjörg&Össur hafa lítið mikilvægi í mínum huga samanborið við það málefni sem alls staðar er efst á baugi núna - nema hjá Agli.
Bush og fóstureyðingar
On the surface, the Bush administration's war against women's rights is a series of largely unnoted changes. It is intended to look that way. In reality, it is a steady march into the past, to a time before Roe v. Wade, when abortion was illegal and pregnancy was more a matter of fate than choice.Lokaorðin í góðum (og frekar löngum) leiðara í NYT í dag: The War Against Women
People can debate whether Mr. Bush's various efforts to dismantle Roe and block women's right to choose around the globe flow from his own deeply felt moral or religious beliefs, or merely cater to extreme elements within his party. What is important is the actual impact of the presidential assault: women's constitutional liberty has been threatened, essential reproductive health care has been denied or delayed, and some women will needlessly die.
Pandóra
Ingibjörg nú boxið opnar,Össur verður nömber tú.
Daman núna yfir drottnar,
Davíðsleg er sú frú.
Who?
Og meira um tónlistarmenn, reyndar ekki látna heldur ákærða. Þetta mál er allt frekar furðulegt:Music figures back Townshend
I'm no paedophile, says Who star
Pete Townshend's statement in full
Í stuttu máli er Pete Townshend einn af þeim sem eru rannsakaðir vegna stórs barnaklámhringsmáls og þykir fullvíst að hann hafi nýtt sér pay-per-view þjónustu fyrirtækis til að skoða barnaklám á netinu. Hann aftur á móti segist ekki vera pedófíll, heldur hafi hann verið misnotaður sjálfur þegar hann var fimm til sex ára (einsog textar eftir hann í Tommy báru merki um) og haft miklar áhyggjur af útbreiðslu barnakláms á netinu. Hann hafi bæði verið að "kynna sér efnið" vegna þess og þar sem hann sé að vinna að sjálfsævisögu þar sem hann m.a. tekur fyrir misnotkun á honum í bernsku. Hann segist hafa skrifað um þetta á heimasíðu sinni, þyki þetta leitt en hafi ekkert að fela.
BeeGees
BBC greinir frá því að Maurice Gibb sé látinn, 53 ára gamall. Hann var, einsog allir vita, hluti af BeeGees ásamt tvíburabróður sínum Robin og Barry stóra bróður.Hann hafði sigrast á alkahólisma fyrir nokkrum árum eftir að hafa lifað sukksömu líferni. Andy, yngsti bróðirinn sem gerði það gott með tónlist sinni (en var aldrei hluti af BeeGees), lést fyrir aldur fram 1988 af hjartaáfalli (eftir að hafa dópað og drukkið ótæpilega í mörg ár). Maurice lést nú úr því sama, þ.e.a.s. hann fór í aðgerð á meltingarvegi en fékk þá hjartaáfall og lést eftir stutta legu.
BeeGees eiga sér langa sögu, enda byrjuðu þeir bræður kornungir í bransanum. Þeir áttu vinsælasta lagið í Ástralíu (þangað sem fjölskyldan flutti '58) 1966, þá tæplega tvítugir. 1968 höfðu þeir bæði náð inn á vinsældalista Bretlands og Bandaríkjanna. Tónlistarferillinn spannaði því fjóra áratugi.
Mér er sama hvað hver segir, BeeGees eru ein besta hljómsveit tónlistarsögunnar. Aðeins Abba myndi vera sambærileg frá svipuðu tímabili. Ég hef, einsog svo margir aðrir, tekið út algjört ofnæmi fyrir þessari tónlist en séð að mér. Því hvort sem manni líkar það betur eða verr, þá er það á valdi sárafárra að búa til tónlist sem þeirra og hvað þá í slíku magni sem þeir gerðu (þó auðvitað hafi þeir gert líka algjört drasl). Það sem er líka merkilegt við BeeGees er að þeir sömdu sína eigin tónlist (rétt einsog Abba, Bítlarnir o.fl.), og sömdu m.a.s. fyrir aðra tónlistarmenn með góðum árangri, ólíkt því sem að flestar stórstjörnur dagsins í dag gera.
Á myndinni sjást BeeGees-bræður, (f.h.) Maurice, Barry og Robin fagna ásamt Andy, bróður þeirra, afmæli þess síðastnefnda, þegar þeir voru líklegast frægustu bræður tónlistarheimsins.
Ég trúi ekki...
Ég trúi því ekki að ég sé að horfa á mann tala um "alvöru mál" hjá Jay Leno!Ég trúi ekki að hann sé að segja ýmislegt af viti!
Ég trúi því ekki að þetta er Al Gore!
Hinn mikilfenglegi leiðtogi
Kristof skrifaði líka merkilega grein um Noður-Kóreu í vikunni ('The Greatest of Great Men'). Þar minnist hann m.a. á "The Speaker", sem er e.k. útvarp í Norður-Kóreu. Það er aðeins ein útvarpsstöð sem útvarpið er stillt á. Í gegnum það býður "Hinn mikilfenglegi leiðtogi" góðan dag og góða nótt. Alveg magnað fyrirbæri.Kristof kemst skemmtilega að orði um þá sem hann átti viðtal við:
It was eerie to interview groups of North Koreans and then hear them praise Kim Jong Il in unison, like synchronized robots, a feat of hagiography unmatched except in Washington when White House aides give interviews.Hann segir síðan, á mun alvarlegri nótum:
Unless the administration switches gears, here's what may happen: North Korea will reprocess spent fuel at its Yongbyon reactor, giving it enough plutonium for five to eight nuclear warheads by May 1. The North will also resume construction of a much bigger reactor at Taechon, accelerate its enriched uranium program, possibly drop out of the Nonproliferation Treaty, and test a Taepodong 2 missile that, in three stages, could reach New York (although it might be so inaccurate that it would miss and wipe out Newark).Síðan þetta var skrifað hafa Norður-Kóreumenn rifst samningnum um bann við útbreiðslu kjarnavopna.
Kristof lýkur með orðunum:
The only way out that I can see is to negotiate with North Korea, despite the administration's legitimate concerns about rewarding bad behavior. We could save face by getting Vladimir Putin to sponsor an international conference on North Korea, and then working out a deal in which the Great Leader verifiably gives up his nuclear and long-range missile programs, while the West offers normalization, trade, Asian Development Bank loans and pledges of nonaggression.Svo bendi ég á þetta.
This would be a deeply unsatisfying solution, but it is less unsatisfying than the options we're now speeding toward: a nuclear factory peddling bombs on the North Korean Ebay, or Korean War II.
©2003 The New York Times Company
janúar 11, 2003
War on Condoms
Já Bandaríkjamenn heyja stríð. Ekki bara "war on terror" heldur einnig geysar stríð í Bandaríkjunum gegn smokkum (dæmi um fleiri stríð eru stríð gegn fóstureyðingum, stríð gegn fíkniefnum, svo eitthvað sé nefnt).Nicholas Kristof skrifaði um þetta stríð gegn smokkum í NYT í gær: The Secret War on Condoms
Tvær skemmtilegar tilvitnanir í Kristof:
"The only absolutely guaranteed, permanent contraception is castration," one Catholic site suggests helpfully. Hmmmm. You first.Þessir Ameríkanar, sei sei sei.
[og]
But young people have been busily fornicating ever since sex was invented, in 1963 (as the poet Philip Larkin calculated), and disparaging condoms is far more likely to discourage their use than to discourage sex.
Kennsla
Var að kenna þjóðhagfræði í mestallan dag. Er ekki frá því að það hafi gengið stórvel.Myndræn framsetning mín á peningamargfaldaranum opnaði ýmsar meinlokur.
Þetta var bara virkilega skemmtilegt og voru nemendurnir ánægðir. Það er gott.
Maður hefur gott af þessu, rifja upp grunninn og hafa gaman að þessu.
Gæti alveg hugsað mér að leggja þetta fyrir mig :-)
Bítlarnir og Popppunktur
Hvernig er hægt að þekkja ekki nafið á Ringo? Þetta fræga nef!Skemmtilegur Popppunktur sem endranær.
Það er ekki satt sem kom fram áðan að "eftirspilið" á Sgt. Peppers heyrist aðeins á gamla vínilnum. Ég á a.m.k. geisladisk þar sem þetta heyrist rétt rúmlega mínútu á eftir að plötunni lýkur.
Reyðarfjarðarrímur
Merkilegt hvað veltur upp úr manni þegar maður er í miðjum þjóðhagsreikningum. Stundum kemur andinn yfir mann. Þetta tók ekki nema rétt um 10 mín. að berja saman (með smá yfirlegu og lagfæringum) en kom að mestu smurt á blaðið. Læt þetta flakka í þetta sinn, þó ég sé ekki vanur að skrifa hérna í bundnu máli.Nú mása og blása um umhverfismat,Þetta er ekki dýrt kveðið, ég viðurkenni það alveg, og nokkrar mjög ódýrar lausnir. Ég ráðlegg hinsvegar fólki frá því að reyna að lesa einhvern boðskap út úr þessu. Ef ég ætla að skrifa um kjördæmapólitík, þá geri ég það í óbundnu (löngu) máli. Þetta er bara til gamans. Já, og ef einhver vill setja út á bragháttinn þá er þetta nógu nálægt ferskeytluforminu fyrir minn smekk - og já ég veit að rímur eru rangnefndi en rímur passa bara betur við Reyðarfjörð. Og hana nú!
miklir þeir spekingar allir.
Framsóknar-Völu segja þeir frat,
frekju sem reisir ál-hallir.
En kjördæmapot er kjarabót,
kjósi liðið þig næst.
Segir lýðnum bullshit og blót,
býður það sem ei fæst.
Og nú þarf svo rassinum að redda,
Reyðarfjörð frá í að detta.
Austanmenn fnýsa á virkjunar-Fredda
að flýta sér og klár'etta.
Fyrir austan þeir flagga og fagna,
„firðinum verður ei eytt!”
En þróunin mun ét'ann til agna
enginn því getur breytt.
janúar 10, 2003
Congrats
Jæja, Verzló-strákarnir höfðu þetta í spennandi keppni. Tryggðu sigurinn með Laxness. Man ekki stigatöluna, minnir að þetta hafi verið fimm stiga munur.Þeir stóðu sig vel. Einar og Stefán voru að taka mest allt sem þeir eiga að taka á góðum degi en skemmtilegast fannst mér að heyra hversu vel nýliðinn Hafsteinn var að standa sig. Greinilega góð nýliðun stofnsins einsog sagt er í haffræðunum. Hann var að taka þónokkuð af spurningum og fyllir greinilega í ýmis skörð þekkingarlega séð.
Nú þurfa þeir bara að afgreiða 2. umferð - ég veit ekki hvort maður þorir að óska þeim nóböddí-skóla sem andstæðings, það gafst ekki vel í fyrra.
Allavega, þeir stóðu sig vel strákarnir og unnu annars ágætlega æft lið Borgarholtsskóla, sem stóð sig feiknavel í hraðaspurningunum.
Annars fannst mér skemmtileg kenning hjá Verzló um járnbrautina til Hafnarfjarðar. Maður hefði vel þegið slíkan farkost þegar maður var rétt tæpan klukkutíma með strætó á milli bæjanna.
En jæja, áfram skal haldið með þjóðhagfræðiútreikninga.
ps. Ég lofa að beila ekki á að mæta á næstu keppni, insjallah.
Bók til sölu
Þessi bók er til sölu hjá mér. Hún er núna notuð hjá Ingu Jónu og Ástu Dís í Stjórnun II í viðskiptafræði í HÍ og heitir Organization Theory and Design og er eftir Daft (7.ed.). Hún kostar ný 6.280 kr. í Bóksölunni en er föl hjá mér fyrir litar 2.999 krónur. Á kassi.is er verið (að reyna) að selja þessa bók á 3.500-4.000 kr. Ekki hika, ég er við tölvuna núna. Sendu mér póst og bókin er þín fyrir aðeins 2.999,-Á sama stað er til Kotler:Marketing Management 10th ed. (tilboð).
Sending er ekki innifalin. Engin ábyrgð er tekin ef bókin er seld, fyrstur kemur-fyrstur fær.
Spjátrungsframburður og smjatt í útvarpi
Og þó. Ég ætla aðeins að nöldra meira. Fyrst ég var að minnast á útvarpsmenn. Útvarpsmenn íslenskir eiga það nefnilega til að apa upp erlendan framburð, ég veit ekki af hverju, ætli þeir haldi ekki að þetta sé meira kúl(?). Þessi "erlendi framburður" sem ég er að tala um er svosem ekki auðvelt að útskýra í texta en þetta er kannski hægt að kalla framburð, hik og áherslur í átt að því sem sumir kalla spjátrungsframburð og Laxness er frægastur fyrir og Thor Vilhjálmsson hefur tamið sér líka í vægari mynd. Slíkur framburður í léttvægri mynd er svosem alveg áhlýðilegur á ensku og e.t.v. einhverjum öðrum tungumálum en í íslensku verður hann mjög hallærislegur. Svona svipað og þegar fólk notar "hugsunarorðið" amm á ammerískan hátt: "Það var... amm á þriðjudaginn" eða "Hann er eitthvað svo... amm sjálfumglaður". Til hliðsjónar þá er yfirleitt notað í spjátrugnsframburði uuh (upp á Laxnessku) eða tsjah! og er það síðarnefnda einskonar ígildi well í ensku: "Myndir þú segja að neyslan væri... tsjah! algengari nú til dags?" eða "Þetta er náttúrulega... tsjah! sprengja sem hún varpar með þessu." Oft er jah! notað í stað tsjah!.Annað óþolandi í framburði sumra íslenskra útvarpsmanna er "smjattið". Ég t.d. hlustaði á stórskemmtilegan þátt dr. Gunna milli jóla og nýárs, þar sem hann spilaði mjög spes jólalög sem maður heyrir ekki annars staðar (t.d. White Christmas með einhverjum finnskum öskurlistamanni). Doktorinn smjattaði á orðunum þannig ég gafst upp á að hlusta (ég þoli ekki þetta smjatt-hljóð). Þetta er sérstaklega algengt þegar útvarpsmenn sitja einir í stúdíóinu og vita eiginlega ekki hvað þeir eiga að segja eða gera, eru að bíða eftir einhverjum gesti jafnvel o.s.frv. Menn teygja lopann milli þess sem þeir velja næsta lag og smjatta þá svona, líklegast ósjálfrátt. Smjattið myndast þegar munnurinn er lokaður og svo opnaður þannig það smellur í tungunni þegar hún fjarlægist efri góminn (úff, þetta hljómar einsog lýsingarnar í hljóðfræði í 5.bekk). Ég var frekar pirraður yfir þessu, þar sem ég hef áður hlustað á Doktorinn án þess að hann hafi þá smjattað á öðru hverju orði, hafði greinilega nóg að segja þá.
Og fyrst ég er farinn að nafna menn með nafni þá get ég svosem alveg nefnt týpískt dæmi um fyrra einkennið en það er Sveinn Guðmarsson í Dægurmálaútvarpinu (sá hinn sami og er nýr dómari í Gettu betur). Reyndar er þetta ótrúlega algengt á "lélegri" útvarpsstöðvum á borð við X-ið, Létt o.fl. Reyndar eru spekingarnir á Útvarpi Sögu ekki illa haldnir af þessum kvillum, þó ýmislegt annað mætti segja um ágæti þeirra. Það segir reyndar ýmislegt um þá stöð þegar maður Hallgrímur Thorsteinsson er í vandræðum með að finna einhverja frétt á netinu til að tala um - og reynir svo að þýða þær jafnóðum.
Íslenskir útvarpsmenn eru svipaðir og íslenska landsliðið í fótbolta. Það eru kannski einn og einn sem getur eitthvað en heildin er alveg fyrir neðan allar hellur.
Já, ég er pirraður í dag.
Gettu betur
Gettu betur hefst í kvöld. Þá keppa m.a. Verzló og Borgarholt. Það verður spennandi keppni.Aldrei þessu vant (líklegast í fyrsta skipti síðan '98) verð ég ekki meðal áhorfenda, upptekinn við annað (nema eitthvað breytist). Þetta er líka í fyrsta skipti síðan '98 sem ég hef ekki einu sinni hitt allt liðið!
Æji, ég veit það ekki, segir það ekki sitt um þróunina að spurningarnar þetta árið koma úr spurningabanka MR? Ef Gettu betur væri á Lengjunni væri stuðullinn 0,9 fyrir það lið.
Ef þetta á að verða skemmtileg keppni (fyrir utan MR-viðureignirnar sem verða ekki skemmtilegar án "tæknilegra mistaka" - fyrir utan MR-Borgarholt 2001) þá er vonandi að nýr dómari spyrji um eitthvað skemmtilegt. M.v. bakgrunninn ætti hann að vera með þessar "klassísku" Gettu betur spurningar sem er ágætt. Sjálfum fannst mér Ármann fínn (en hann sló vissulega feilnótur) og Illugi var oft með skemmtilegar keppnir (utan ónefndan víðfrægan skandal í 3ju umferð þegar m.a. var spurt um kanadískan landbúnað). Ólína var hundleiðinleg og spurningar síðhærða dómarans höfðuðu ekki til mín. Gunnsteinn var sá slakasti að flestra mati held ég en lengra aftur þori ég ekki að muna. Logi Bergmann er áfram skilst mér (er það ekki annars?) og er það ágætt. Mér finnst hann fínn, svona kammó náungi. Ekki það að Davíð Þór var mjög skemmtilegur sem spyrill en Stefán Jón Hafstein var jafn leiðinlegur með kattarkrúsina sína og hann verður. Ómar var þarna fyrir einhvern misskilning en ekki man ég lengra aftur. Tímaverðir eru víst nauðsynlegir en ég get bara nefnt tvo með nafni, svo eftirminnilegir hafa þeir nú verið.
Stigavörðurinn þetta árið er ein af þessum útvarpsröddum sem manni finnst eiga að líta allt öðruvísi út. Mér fannst þetta alltaf vera kona um fimmtugt en svo er alls ekki.
En nóg af þessu nöldri.
janúar 09, 2003
Camel Trophy
Önnur fræg rallýkeppni, en ólík þó - frekar off road-keppni, var Camel Trophy-keppnin. Þar var (flest árin) keppt á Land Roverum og farið um jafn ólík lönd og Tanzaníu, Síberíu og Súmötru.Keppninni lauk árið 2000 en tveimur árum fyrr hafði Land Rover fyrirtækið hætt aðild að keppninni. Einhvern tímann á 10. áratugnum tóku nokkrir Íslendingar þátt.
Sögu keppninnar má lesa hér.
Annars á ég úr sem heitir eftir Camel Trophy-keppninni.
París-Dakar
París-Dakar er heimsfræg rallýkeppni. Ég fylgdist með henni stundum hérna áður fyrr í þá gömlu góðu daga þegar Eurosport var í opinni dagskrá Stöðvar 3.Einsog nafnið gefur til kynna er þetta keppni sem hefst í París en endar í Dakar í Senegal. Keppnin er frönsk í grunninn og er keppt á bílum, trukkum og mótorhjólum. Nú sá ég hinsvegar frétt um að einn ökumaðurinn hefði slasast í "lýbísku eyðimörkinni". Þar sem alltaf hefur verið siglt með bílana yfir Miðjarðarhafið, þá er Lýbía augljóslega ekki á leiðinni til Dakar frá París. Ég skoðaði því heimsíðu keppninnar og sá þar að keppnin hefst í Marseille þetta árið. Það er í sjálfu sér ekkert skrítið, þar sem ég vissi að stundum hófst hún í Grenada í Andalúsíu. Hinsvegar endaði hún yfirleitt í Dakar en ekki þetta árið. Nú er siglt til Túnis og ekið í gegnum landið, í gegnum lýbísku eyðimörkina og austur til Egyptalands, þar sem keppnin endar í Sharm el-Sheikh á Sínaí-skaga. So much for Paris-Dakar!
Þetta er ekkert nýtt svosem. Í fyrra var ekin "klassíska leiðin" frá París til Grenada, með skipi yfir til Marokkó og þaðan ekið suður til Dakar (með krókaleiðum um Máritaníu og Malí). Árið 2000 var hinsvegar nafninu breytt í Paris-Cairo, enda var þá, sem var samt rangnefni, því keppnin hófst í Dakar, þaðan sem ekið var í gegnum Senegal austur til Malís, þaðan í gegnum Búrkína-Fasó, norður eftir Níger, í gegnum Lýbíu, fram hjá pýramítunum og endað í Kaíró.
1999 var byrjað í Grenada og ekið suður eftir "klassísku leiðinni" til Dakar. Árið áður, á tuttugu ára afmæli keppninnar var "klassíska leiðin" ekin frá Versölum til Dakar, með góðum spotta lengst inn í Malí. 1997 var hinsvegar annað upp á teningnum. Keppnin hét þetta árið "Dakar-Agadés-Dakar", enda byrjað í Dakar, ekið til Agadés í Malí og aftur til baka.
'95 og '96 var "klassíska leiðin" ekin en 1994 ákváðu nýjir eigendur að hafa keppnina París-Dakar-París. '93 var "klassíka leiðin" ekin frá Trocadéro til Dakar. Um keppnina 1992 stendur á heimasíðu keppninnar:
The start is from the Château de Vincennes, and Gilbert Sabine [...] decides to change the finish. The Paris-Dakar thus becomes the "Paris- Le Cap" and provides the competitors with breathtaking scenery.M.ö.o. var ekið suður alla Afríku 1992. Fyrsta keppnin var haldin 1979 og hófst í París en endaði í Dakar. 1979-91 var yfirleitt byrjað í París eða Versölum og endað í Dakar (eða senegalska þorpinu Lac Rose). Í kringum '90 var farið að aka í gegnum Lýbíu á leiðinni.
A great novelty also marks this Paris- Dakar : the arrival of GPS !
In spite of the change in direction, all does not go according to plan : a sand storm, a Tchad at war, an overflowing river in Namibia : the elements explode.
Jól
Aldrei þessu vant eitthvað skemmtilegt í Dagblaðinu (Vísi - DV). Mæli með að lesa kjallara-grein Sigríðar Víðis Jónsdóttur. Einsog talað út úr mínu hjarta.Hlemmur
Á laugardaginn var fór ég á heimildarmyndina Hlemm með Þóri og Jóni Svan.Við fórum í 10-bíó og þó það væri laugardagskvöld þá voru greinilega nokkrir tilbúnir til að fara á heimildarmynd um fólkið á Hlemmi.
Myndin er í stuttu máli yndisleg. Einhverjum kann að finnast það skrítinn dómur um mynd um þau málefni sem hún fjallar um. Mér finnst hún hinsvegar yndisleg, því hún segir sögu og fjallar um fólk án þess að reyni að fegra eða ritskoða nokkuð eða afsaka. Hún segir bara frá því sem fyrir augu ber og er ekki með neinn þul heldur eru það þeir sem kom við sögu sem segja frá.
Ég gæti útskýrt þetta betur með dæmum en ég held að myndarinnar sé best notið þegar farið er á hana án þess að vita nokkuð hvað mun fyrir augu bera - einsog var í mínu tilfelli.
Stjörnur: þrjár
Í miðasölunni bað hver á fætur öðrum um "einn miða á Hlemm" duttu mér í hug svona 12 fimmaurabrandarar en náði að bæla aulahúmorinn niðri. Þegar Þórir Strætóstrumpur bað hinsvegar um "uh, einn miða á... uh, Hlemm" gat ég ekki setið lengur á mér og bætti við "Þórir, ertu ekki með Græna kortið?"... já, ég er með aulalegan húmor.
janúar 08, 2003
Dæs
Hvað varð eiginlega um fara-rólega-af-stað-fyrstu-vikuna-regluna??Annars þarf ég að reikna þjóðhagfræðidæmi í kvöld eða á morgun. Er með tvö fyrstaársnema í aukatímum fyrir endurtektarprófin. Þetta verður bara skemmtilegt held ég.
Það er ekki eins skemmtilegt að strax eigum við að vera búin að lesa heilmikið fyrstu vikuna. Um helgina þarf ég t.d. að lesa heila bók um branding fyrir markaðsfræði 2.
Næsti formaður Íhaldsflokksins
Skemmtileg grein í The Times: Tory leaders ... or only fools?Þarna er dulítið frábrugðinni mælistiku brugðið á líklega umsækjendur um djobbið. Rýnt er í stjörnuspá þeirra, stíl o.fl.
"What is your S.U.V. doing to our national security?"
Merkilegt: TV Ads Say S.U.V. Owners Support TerroristsMun innri skoðun meðal Araba leiða af sér lýðræði?
Friedman segir í pistli dagsins þessa spurningu verða þá mikilvægustu næstu árin: After the StormNámskeiðið
Námskeiðið í gær um Írak og Íran var einkar skemmtilegt, einsog gefur að skilja. Kom mér á óvart hversu margir voru á námskeiðinu, greinilega mikill áhugi, svo mikill að fólk er tilbúið að sitja 4x 2 klst. og borga 15 þús. kall fyrir.Allavega, skemmtilegur tími - þó ég hefði viljað að síðustu mínúturnar hefðu verið fleiri, þegar hann sagði frá Íran fram til byltingarinnar '53.
Bíð spenntur eftir fimmtudagstímanum.
Ferðin til tunglsins
Í gærkvöldi horfði ég á frönsku "heimildamyndina" Ferðin til tunglsins á vídjói. Ég verð að viðurkenna að ég hef sjaldan verið jafn ráðvilltur eftir að horfa á sjónvarpsþátt og í gær. Hvað hafði ég eiginlega verið að horfa á??Það sem mér fannst óþægilegast var að sumt var einum of sannfærandi. Sumt var alveg gjörsamlega ósannfærandi, t.d. þetta með að kvikmyndaiðnaðurinn hafi fengið "einn af sínum" sem forseta (Reagan). Þó það sé ekki tilviljun hvaða fylki fengu verkefni í geimferðaáætluninni (Kalifornía, Texas og Flórída), þá var það varla vegna viðskipta Bush-feðga. Þannig vissi maður að ýmislegt var byggt á frekar langsóttum samsæriskenningum en... plottið með að taka upp "back-up upptöku" af tunglendingunni virkaði mjög sannfærandi á mig. Kannski ekki að Kissinger hafi verið andandi ofan í hálsmálið á Kubrick allan tímann en svo framarlega sem maður getur ekki hrakið ýmislegt, einsog þetta með myndavélina í Barry Lindon, 2001... ýmislegt gæti vel staðist í þessari sögu.
Þegar sagt var að fyrrv. yfirmaður CIA hafi fengið hjartaáfall nóttina áður en hann ætlaði að veita frönskum sjónvarpsmönnum viðtal vegna Appóló-áætlunarinnar og aðildar CIA að henni... sýnd var frétt úr IHT... ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að taka því.
Allavega, ég var ansi ringlaður, þessi "heimildarmynd" ruglaði ansi mikið í kollinum á mér... ekki það að ég hef lengi vel verið mjög móttækilegur fyrir þeirri kenningu að sjónvarpsefnið af tunglendingunni hafi ekki endilega allt verið tekið upp á (rétta) staðnum.
Eðvarð Jón Bjarnason skrifar pistil um þáttinn á Deiglunni í gær.
janúar 07, 2003
Gleðileg jól
Í gær var jóladagur armensku orþadox kirkjunnar.Í dag eru aftur á móti jólin hjá koptísku kirkjunni - almennur frídagur í Egyptalandi (í fyrsta sinn sem koptísku jólin eru almennur frídagur) - eþíópísku kirkjunni og rússnesku og úkraínsku orþadox kirkjunni.
Pistill dagsins á Frelsi
Íran: í höndum unga fólksinsÍranir munu upplifa aðra byltingu. Hvenær hún verður og hvernig verður að koma í ljós. Hvort það verða blóðug átök eða, sem er óskandi, þetta verði friðsamleg bylting, verður einnig að koma í ljós. Það eina sem er víst er að núverandi stjórnarhættir munu ekki skila írönsku þjóðinni þangað sem hún vill fara, í lýðræðisátt til hagsældar og hófsemdar.Það tók mig heillangan tíma í gær að finna íslenska heitið á "Guardian Council"
