febrúar 03, 2003
20. öldin
Ég verð að játa að ég finn alltaf til með vinstrimönnum þegar ég horfi á 20. öldina í Sjónvarpinu. Þessir þættir ættu frekar að heita "20. öldin með augum Hannesar Hólmsteins". Það mætti halda að hinn stjórnmáladoktorinn hafi bara lagt nafn sitt við þættina til að fá hluta af greiðslunum (og starfsbróðir hans, höfundurinn, gert það að til að skapa "trúverðugleika") en ég ætla honum það nú ekki.Það er mjög skondið hvernig ráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru alltaf sérstaklega nafngreindir þegar þeir gerðu eitthvað "gott" og að sama skapi vinstrimenn sérstaklega nafngreindir þegar þeir gerður eitthvað "vont".
Hannes er svosem ekki fyrstu til að skrifa Íslandssöguna með eigin áherslum. Ekki ómerkari pólitíkus en Jónas frá Hriflu mótaði söguvitund heillrar kynslóðar (og gott betur). Þessir þættir snúa svosem engum vindáttum en engu að síður eru þeir framleiddir að mestu af Sjálfstæðismönnum (framleiðandinn er t.a.m. fyrrv. ritstjóri Hamars, blaði Flokksins í Hfj.) og seldir Ríkisútvarpinu - Sjónvarpi án efa fyrir talsverðan pening. Ekkert að því - þ.e.a.s. ekkert meira en Ríkissjónvarpinu almennt séð.
Ég er alls ekki að segja að þættirnir séu slæmir. Ég hef mjög gaman að þeim. Þeir verða ekki sakaðir um að vera sögufölsun, ég er ekki að halda því fram, en áherslurnar eru oft þannig að vandræðalegt verður á að horfa. Engu að síður algjör hátíð miðað við margt annað sem frá höfundi kemur.
Hvað sem því líður þá horfi ég á þessa þætti og hef gaman að. Þeir eru skemmtilega unnir að því leyti að leitast er við að sýna ýmis gömul myndskeið til að "fanga andrúmsloft" mismunandi tímabila.
Að því sögðu er ekki úr vegi að rifja upp fimm punkta um hversu samkvæmur sjálfum sér HHG er og ritaðir voru af Friðbirni Orra fyrir nokkru.
Viðbót: Stefán Einar.com er ekki sammála. Hér má sjá hans skoðun á þáttunum (og vætanlega annarra orþadox Sjálfstæðismanna)
Agust skrifaði 03.02.03 01:27
Flokkun: Saga , Stjórnmál , Ísland