febrúar 03, 2003
Warwick
Í dag fór ég á kynningu á University of Warwick. Kynningin var haldin á Hótel Sögu og var nokkur hópur mættur til að hlusta á kynningu á skólanum og námi í UK almennt. Held að mun fleiri hefðu mætt ef þetta hefði ekki verið á sunnudagssíðdegi heldur í miðri viku.Warwick er einn virtasti (en jafnframt einn stærsti) háskólinn í Bretlandi en engu að síður ekki nema tæplega 40 ára gamall. Hann er staðsettur skammt frá Coventry og Birmingham, þar sem hann var reistur á "greenfield" svæði og er þar nú myndarlegur háskólabær í (að því er virðist) mjög grænu umhverfi.
Síðustu mánuði hefur Warwick verið einn af þremur háskólum sem mig langar mest til að sækja framhaldsnám í (allt breskir háskólar). Þar er jafnframt sú mastersgráða sem myndi falla einna best að því sem ég er að spá (í dag). Warwick er jafnframt eini háskólinn sem er staðsettur utan London, sem hefur mjög marga kosti í för með sér (lesist: mun minni kostnaður). Þegar þetta er allt lagt saman kemur í ljós að í raun væri Warwick líklegast besti skólinn fyrir mig. Ég hafði samt mínar efasemdir. En í dag "seldu" þeir mér skólann. Ég væri alveg til í að fara strax á morgun.
Ýmislegt getur þó breyst. Það eru líka mörg ljón í veginum. Það er aftur á móti nægur tími til stefnu, því ég þarf að byrja á að ljúka þessari BSc-gráðu minni og jafnvel fá mér aðra til. Þangað til verður Warwick alveg örugglega inn í framtíðarspánum.
ps. Þetta er alveg hreint magnað!
Agust skrifaði 03.02.03 02:52
Flokkun: Daglegt líf