febrúar 05, 2003

Krókur á móti bragði

Svo virðist sem klerkurinn með krókinn, Abú Hamza, verði nú mögulega hrakinn frá Bretlandi. Margir yrðu dauðfegnir að losna við þenna fanatíker en hann hefur fram að þessu fengið að vera tiltölulega óáreittur í Finsbury Park moskunni. Nú hefur "Charity Commission for England and Wales" vikið honum úr starfis sem iman í Finsbury Park. Imanar á vesturlöndum eru mun mikilvægari í öllu starfi moskunnar en í löndum múslima. Abú Hamza er sagður vera mjög karismatikur og hefur hann aflað öfgasamtökum múslima marga stuðningsmenn.
Abú Hamza er líklegast frægasti klerkur múslima á vesturlöndum (eða bara yfirhöfuð alls staðar). Hann er ekki síður hataður af múslimum sjálfum og jafnvel starfsbræðrum sínum í moskum Bretlands, þar sem stendur fyrir allt það illa sem margir sjá í trúnni og því sem henni fylgir.
Sjá frétt NYT: London Imam Is Removed as Leader of Mosque
Agust skrifaði 05.02.03 11:37

Flokkun: Fréttir , Heimspeki , Hnattvæðing/Globalisation