febrúar 07, 2003

Íslendingabók

Ég held að ég sé eini maðurinn á Íslandi sem hef ekki sótt um aðgang að Íslendingabók. Hver vegna ekki? Veit ekki. Kannski bara vegna þess að allir eru búnir að sækja um aðgang og ég vil ekki taka þátt í "ættfræðiæðinu". Kannski vegna þess að mér er nokk sama um hverjum ég er skildum og hverjum ekki. Held að fyrri skýringin sé líklegri:)
Maður er búinn að heyra ýmsar sögur af vitleysum - og nýjum uppgötvunum fólks um eigin uppruna og fjölskyldu - í Íslendingabók. Þannig komst Sigga að því að hún getur rakið ættir sínar til danskra dýralækna en ekki Norðmanna. Einhver millinöfn, fæðingardagar, brúðkaupsdagar og fleira smávægilegt voru vitlaus hjá hinum og þessum og þar fram eftir götunum - yfirleitt ekkert alvarlegt.
Hinsvegar finnst mér sagan hennar Ólafar slá allt út. Þið verðið bara sjálf að lesa hvað er svona spes við hana. Þetta er nú grófasta vitleysan sem maður hefur heyrt.
Miðað við þessa sögu þá ætti maður kannski að fá sér aðgang. Hver veit hvað gæti vantað eða verið vitlaust...

Ég hef aldrei skilið þennan ættfræðiáhuga þjóðarinnar. Það er þó allt í lagi, en þegar ræðan um að "allir Íslendingar eru skyldir" kemur (einsog hjá menntamálaráðherra þegar hann "opnaði" Íslendingabók.is) þá er mér öllum lokið. Það er sjálfsagt ekkert að marka mig, enda fátt sem fer meira í taugarnar á mér en þjóðernisremba á tyllidögum.
Ætterni fólk skiptir mig litlu og skyldleiki þess við mig enn minna máli. Ekki það að ég hef mjög mikinn áhuga á fólki. Ég hef bara mun meiri áhuga á því hvað fólk segir, hvað því finnst, hvað það hugsar og fyrir hvað það stendur en hverra manna það er. Það getur reyndar verið skemmtilegt þegar maður finnur tengsl á milli fólks, en sé það lengra aftur en í 3. lið skiptir slíkt litlu máli. Ég hef mun meiri áhuga á því hvaðan fólk er, hvað á daga þess hefur drifið etc. en hvort ég þekki Jón frænda þess eða hvort við séu fjór-, fimm- eða sexmenningar (voru Bítlarnir ekki fjórmenningar?). Ætli ég sé ekki bara svona mikill einstaklingshyggjumaður inn við beinið :-)
Agust skrifaði 07.02.03 20:56

Flokkun: Daglegt líf , Ísland