mars 02, 2003

Bókasafnið brennur Söguþekking Mbl-manna er

Söguþekking Mbl-manna er oft skemmtileg. Í frétt í dag segja þeir frá bruna í Bókasafninu í Alexandríu (hinu nýja), sem var opnar ekki alls fyrir löngu: "Eldur kom upp í hinu fornfræga Alexandríubókasafni í Alexandríu í Egyptalandi í dag. Fræðamiðstöðin var opnuð á ný í október." og svo "Safnið, sem er á 11 hæðum, var opnað á ný í október eftir endurbætur sem stóðu í 20 ár og kostuðu 200 milljónir dala."
Það er ekki hægt að skilja fréttina öðruvísi en að þarna hafi verið opnað eftir endurbætur "Bókasafnið [sem] var ein fyrsta miðstöð námsfúsra manna í heimi og var sett á fót eftir að Alexander hinn mikli stofnaði borg á Miðjarðarhafsströnd Egyptalands árið 332 fyrir Krist."
Stórbruni var í Bókasafninu í Alexandríu árið 48 f.Kr. í átökum Kleópötru, sem var studd af Júlíusi Sesari, við bróður hennar. Þá brunnu einhvers staðar á bilinu 40-400 þús. rit (heimildum ber ekki saman). Markús Antoníus gaf 200 þús. rit til safnsins skömmu síðar. Á þriðju öld brann það svo aftur í innanríkisdeilum.
Það er hinsvegar ekkert launungamál að Bókasafnið í Alexandríu hið fyrra var endanlega brennt undir lok 4. aldar af biskupnum í Alexandríu í kringum 400, Theófílusi að nafni. Nafnið bar hann með rentu því ástæðan fyrir brunanum var að í því voru geymdar "heiðnar bækur". Hann var þarna að bregðast við tilskipun Theódósíusar keisara í Róm sem árið 391 bannaði öll ókristin (heiðin) trúarbrögð. Nokkrum árum síðar var síðasti "alexandríski fræðimaðurinn" myrtur og var því ekkert bókasafn af þessari stærðargráðu í Alexandríu frá fimmtu öld og fram á okkar daga. Hið nýja bókasafn er reist með tilvísun í hið fornfræga safn, þó auðvitað muni það aldrei öðlast þá sérstöðu sem það hafði.
Heimildir: Bibalex.gov.eg o.fl.
Agust skrifaði 02.03.03 15:13

Flokkun: Fréttir , Menning , Mið-Austurlönd