mars 07, 2003

Baugur

Án þess að ég nenni að tjá mig frekar um Baugs-fárið, þá verð ég að segja að þessi frétt kemur mér ekki á óvart: Guðfinna og Þorgeir segja sig úr stjórn Baugs
Ég veit ekki til þess að Þorgeir í Odda hafi verið þekktur fyrir annað en að vera heiðarlegur (en harður) í viðskiptum og ekki fyrir neitt bullshit. Guðfinnu er að sjálfsögðu ekki sætt í stjórninni, verandi rektor háskóla sem leggur mikið upp úr siðareglum í viðskiptum sínum.
Það kemur svosem ekkert á óvart að Norðmaðurinn sitji áfram, enda eiga þeir frændur stóran hlut í fyrirtækinu og þurfa að standa vörð um hann (og ættu því aldeilis að vera ósáttir eftir atburði síðustu daga). Jóhannes situr auðvitað áfram, af skiljanlegum ástæðum.
Sá trúnaðarbrestur sem átt hefur sér stað innan stjórnarinnar, með birtingu Fréttablaðsins á upplýsingum úr samskiptum stjórnar, er mun athyglisverðari en sá lágpólitíski skrípaleikur sem mann hafa staðið í undanfarið.
Hvernig nokkuð traust eigi að vera borið til þeirra sem stóðu í þeim birtingum skil ég ekki. Ég skil allavega ekki hvernig nokkur með almenna siðgæðisvitund ætti að geta setið í stjórninni áfram. Því hefði það komið mér verulega á óvart ef þessi frétt af útgöngu Þorgeirs og Guðfinnu hefði ekki borist. Sér í lagi í ljósi þess hvaða einstaklingar eiga í hlut.

Skemmtileg tilviljun að nú hengir þessi frétt inni á Moggavefnum: Jón Ásgeir tekur sæti í stjórn Flugleiða
Agust skrifaði 07.03.03 17:33

Flokkun: Fréttir , Viðskipti