mars 18, 2003

Woody Allen

Vildi bara minna á heimildarmynd um Woody Allen (Woody Allen: A Life in Film) í kvöld á RÚV kl. 23:10.

Hún verður endursýnd eftir hádegi á sunnudaginn fyrir þá sem missa af henni í kvöld. Ég er ánægður með margar af þessum sem RÚV hefur verið að sýna undanfarnar vikur, sérstaklega að þær skuli síðan vera endursýndar fyrir þá sem missa af þeim. Endursýningar eru af hinu góða, sparar manni oft stress með tæmerinn í vídjóinu.
Agust skrifaði 18.03.03 21:16

Flokkun: Menning