mars 25, 2003

Basra

Nú hafa bandamenn gefist upp á að frelsa Basra og ætla bara að sprengja hana í loft upp í staðinn.
Munurinn er víst að hið fyrrnefnda er tímafrekari útgáfa af hinu síðarnefnda. Menn nenna þessu dúttli ekki lengur. Opinbera ástæðan fyrir þessari stefnubreytingu, að skilgreina Basra sem "lögmætt stríðssvæði", er að skaffa íbúunum vatn. Hvað ætli gerist þegar þeir fara að skaffa íbúunum mat líka?

Viðbót: Basra: Why they are not cheering, ágætis útlistun í styttra lagi eftir Paul Reynolds hjá BBC.
Agust skrifaði 25.03.03 09:15

Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd