mars 31, 2003
Kort af Írak
Fyrir þá sem vilja skoða kort af Írak er alveg ógrynni af þeim hér. Merkilegt nokk að þetta er Bókasafn Texas-háskóla sem hefur sankað þessu saman. Fullt af áhugaverðum kortum þarna.
mars 30, 2003
Andvarp!
Í tölfræði ei slingur telstog tómur er hjá mér kofinn.
Í formúlunum eitthvað felst,
svo fúll ég verð og dofinn.
mars 27, 2003
Fréttamannafundur í Camp David
Það var athyglisvert að fylgjast með fréttamannafundi B&B í Camp David áðan.Þar sá maður muninn á Bush og Blair þegar kemur að því að svara fyrir stríðið. Annar svaraði í 5 orða setningum, sem hann endurtók a.m.k. tvisvar sinnum og talaði einsog hann væri með enskukennslu í sjónvarpinu "ee-vil peo-ple". Hinn svaraði spurningum fréttamannanna.
Nú eru fréttaskýrendur að velta svörum Tonys Blair fyrir sér. Minna er talað um enskukennsluna.
Rachel Corrie
Mjög grafísk lýsing (og óhugnaleg mynd) af láti Rakelar Corrie, sem lést er ísraelsk (her)jarðýta ók yfir hana. Vitnað er í tölvupóst sem hún sendi stuttu áður."I am amazed at [my Palestinian friends'] strength in being able to defend such a large degree of their humanity – laughter, generosity, family-time - against the incredible horror occurring in their lives and against the constant presence of death. I am also discovering a strength and basic ability for humans to remain human in the direst of circumstances. I think the word is dignity. [...] – February 28Sjá: frétt METimes
Mannfall
Skv. þessum lista hjá Jordan Times hafa 175 íraskir borgarar fallið í kjölfar innrásarinnar í landið. Engar trúverðugar upplýsingar hafa fengist um fall íraskra hermanna. 22 Bandaríkjamenn hafa fallið og 20 Bretar, auk tveggja sem er saknað úr herjum beggja aðila. Auk þess hafa fimm Jórdanir og fimm Sýrlendingar fallið í Írak.Annars er það að frétta af "frelsuninni" að nýjustu fréttir herma að matvæladreifingin, þar sem hún er byrjuð, sé bara engan veginn að ganga, menn nota orð á borð við disaster: Convoy hijacked in aid 'disaster':
Svína- og kjúklingaskítur stuðlar að aukinni þorskgengd
Ekki á hverjum degi sem maður sér fyrirsögn á borð við þessa.Afstaða Írana til innrásarinnar í Írak
MEMRI var að senda frá sér ágæta úttekt á afstöðu Írana til innrásarinnar í Írak.Athyglisverð lesning fyrir áhugasama.
mars 26, 2003
Hólmsteinn ex Machina
Í morgun á leið í skólann heyrði ég í átta-fréttunum um einhvern fund sem rithöfundar héldu um andlegt frelsi sitt. Þar töluðu m.a. Ragnar Aðalsteinsson og Hallgrímur Helgason.Hallgrímur kom eitthvað inn á kenningu sína um "bláu höndina". Þegar hann hafði lokið máli sínu skaut Hannes Hólmsteinn Gissurarson og flutti Sálminn um Davíð.
Nú veit ég ekki hvort Hallgrímur hefur vitað af Hannesi en mér finnst það mjög fyndin tilhugsun ef Hannes hefur bara poppað þarna upp úr áhorfendahópnum.
Þetta er allavega mjög kómískt einsog maður sér þetta fyrir sér.... sannkallaður Hólmsteinn ex Machina.
Rúv fær hrós
Rúv fær hrós fyrir að hafa banner á skjánum hjá sér þegar fréttir eru sagðar frá Írak sem segir "Innrás í Írak". Það er algjört rangnefni að tala um "stríð" í Írak. Stríð lúta ákveðnum leikreglum. Fyrir 12 árum gerðu Írakar innrás í Kúveit og í kjölfarið var Persaflóastríðið háð, það var stríð.Þetta er aðeins byggt á mínum skilningi á þessum hugtökum. Ég hef talað um innrás í þessari umræðu, ekki stríð. Ég legg til að aðrir geri hið sama.
Að sjálfsögðu hafa skoðanir mínar á innrásinni áhrif á mína orðanotkun. Stríð hljómar miklu "betur" en innrás og því í sjálfu sér eðlilegt að Bandaríkjamenn tali um war en ekki invasion.
Stríðsfangar
BBC hefur verið með ágæta umfjöllun um málefni stríðfanga. Í grein á BBC-vefnum, When are pictures of POWs propaganda?, er vitnað í breskan flugmann sem var í haldi Íraka fyrir 12 árum.
Although such images may be demoralising for the public back home, at least the families know their loved ones are still alive. "My family drew strange comfort from the fact that, even though I was in Iraqi hands, they knew I had survived the missile attack on my Tornado," Mr Nichol has said.Ég skrifaði um málefni réttindalausu fanganna á Guantanamo fyrir rúmu ári síðan. Enn eru um 650 fangar þar og lúta sjálfsettum reglum hers þess lands sem vill kalla sig voldugasta lýðræðisríki heims.
mars 25, 2003
Nýjustu fréttir frá Mið-Afríku lýðveldinu
Einsog Sverrir Jakobsson er búinn að benda á, þá er það helst að frétta frá Mið-Afríku lýðveldinu að nýr forsætisráðherra, Abel Goumba, hefur verið settur í embætti.Menn eru ekkert að leita að nýjum mönnum frekar en fyrri daginn í M-A.L. - Goumba var forsætisráðherra í einn mánuð 1959 en '57-'58 var hann fyrst varaforseti og svo líka forseti "ríkisráðsins" (Government Council). Hann hefur verið leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Front Patriotique pour le Progrès. Hann er 76 ára.
Bozize foringi uppreisnarmannanna telst forseti frá 15. mars skv. mínum heimildum.
Hér má lesa ýmislegt um M-A.L.
A Readers' Guide to the War
Nicholas Kristof er núna staddur í Kúveit. Hann skrifar góðan pistil í NYT í dag.Instead, quite predictably, we're now besieging Basra, where one million people have been without electricity and clean water since Thursday — a deprivation that's likely to make them more hostile to U.S. occupation.Ég var áðan að skrifa tölvupóst þar sem ég tilgreindi þrettán atriði sem veigamikil rök gegn þessari innrás. Veit ekki hvort ég birti þau skrif hérna. Þarf þá aðeins að lesa það betur yfir áður en ég varpa því á internetið.
We have such firepower that we can win the war without sensitivity to Iraqis, but we can't survive the occupation that way. Raising the American flag on Iraqi territory the other day was the best boost we could have given Saddam. And Arabs flinch each time American officials torture pronunciations of the names of Iraqi cities and, worse, the country itself. Granted, proper Arabic pronunciation of "Iraq" is difficult because it actually begins with a consonant, the ayn, that doesn't exist in English and sounds like a person being strangled.
Einsog Einar Sús var búinn að benda á, þá er grein eftir Paul Krugman í NYT (Channels of Influence) þar sem hann segir frá því hvernig útvarpsfyrirtækið Clear Channel Communications notar 1.200 útvarpsstöðvar í sinni eigu til að reka áróður fyrir innrásinni í Írak. Sömu stöðvum er einnig beitt gegn þeim sem eru andvígir innrásinni, einsog t.d. Dixie Chicks hafa fengið að kynnast, sem voru teknar út af playlista stöðvanna fyrir andstöðu sína.
Basra
Nú hafa bandamenn gefist upp á að frelsa Basra og ætla bara að sprengja hana í loft upp í staðinn.Munurinn er víst að hið fyrrnefnda er tímafrekari útgáfa af hinu síðarnefnda. Menn nenna þessu dúttli ekki lengur. Opinbera ástæðan fyrir þessari stefnubreytingu, að skilgreina Basra sem "lögmætt stríðssvæði", er að skaffa íbúunum vatn. Hvað ætli gerist þegar þeir fara að skaffa íbúunum mat líka?
Viðbót: Basra: Why they are not cheering, ágætis útlistun í styttra lagi eftir Paul Reynolds hjá BBC.
mars 24, 2003
Stríðsfangar
Það var alveg með ólíkindum að hlusta á Rumsfeld (og Tommy Frank) í dag tala um meðferð Íraka á stríðsföngum. Hvernig á maður að taka mark á mönnum sem bera ábyrgð á Guantanamo.mars 23, 2003
Hamfarir
Platan Hamfarir eftir Gunnar Jökul þótti aðhlátursefni þegar hún kom út. Verk manns sem gekk ekki heill til skógar. Hann taldi heimsfrægðina á næsta leiti en fólk hló og gerði grín að sköpun hans.Ég hló líka. Reyndar man ég bara eftir viðtalinu við hann hjá Eiríki Jónssyni ('94 eða '95) en ég heyrði ekki plötuna sjálfa fyrr en í 4. bekk í Verzló, þegar Beggi Reynis spilaði hana fyrir mig í einhverri verkefnavinnu. Ég hló, þetta var fyndið.
Það var samt eitthvað í einlægninni, svona þegar maður fór að hlusta á tónlistina fordómalaust, þessari miklu einlægni sem var lögð í þetta verk. Þegar maður hlustar á tónlistina og lítur fram hjá því að allt undirspil er á hljómborð - en þó kannski að hluta til einmitt vegna þess, vegna þeirrar bágru aðstæðna sem platan er unnin við - þá getur maður ekki annað en hrifist með.
Það er fínt að hlusta á þessa tónlist með skólabókunum meðan rigningin hamast fyrir utan. Ekki úr vegi að vitna að lokum í Gunnar Jökul (úr laginu "Einskis virði").
Lesa áfram
mars 22, 2003
Galdra-blogg?
Skv. frétt Mbl er sá sem kennir kúrsinn í Háskóla Íslands um blogg vorið 2004 Matthías Viðar Sæmundsson. Hann hefur verið þekktastur fyrir að vera sérfróður um galdra á Íslandi fram að þessu (einsog sjá má á heimasíðu hans). Eftir því sem ég kemst næst bloggar Matthías Viðar ekki en var/er ritstjóri Kistan.is (src).Ég held að maður verði að smygla sér inn á fyrirlestra hjá honum næsta vor, svona fyrir forvitnissakir. Hinn sjálfhverfi ég finnst einsog þarna sé verið að grufla í einhverju sem ég er hluti af/á hluta í.
Fréttaflutningur frá Írak
Vitið þið hvernig maður veit hvort maður er að horfa á bandaríska fréttastöð eða ekki?Það vantar kvikmyndatónlistina undir myndunum á hinum stöðvunum ;-)
mars 21, 2003
Athyglisvert
Hef ekki heyrt þetta seinna áður, athyglisvert.As one savvy official observed, occupying Baghdad comes at an "unpardonable expense in terms of money, lives lost and ruined regional relationships." Another expert put it this way: "We should not march into Baghdad. . . . To occupy Iraq would instantly shatter our coalition, turning the whole Arab world against us, and make a broken tyrant into a latter-day Arab hero . . . assigning young soldiers to a fruitless hunt for a securely entrenched dictator and condemning them to fight in what would be an unwinnable urban guerrilla war. It could only plunge that part of the world into even greater instability."Sjá: Losses, Before Bullets Fly (Nicholas Kristof)
Those comments may overemphasize the risks, but they are from top-notch analysts whose judgments I respect. The first comment was made by Colin Powell in a Foreign Affairs essay in 1992; the second is in "A World Transformed," a 1998 book by the first President Bush.
Nicholas Kristof hefur ferðast um Tyrkneska Kúrdistan undanfarna daga:
Hatreds Steeped in Blood (11/3)
Torture, Beyond Saddam (14/3)
Cassandra Speaks (18/3)
Í síðasta pistlinum reynir Kristof að draga lærdóm af sögunni, Tróju-stríðinu. Hef ekki áður heyrt þessa sögulegu skýrskotun, sem er nokkuð skemmtileg.
The philosophical gulf between 41's gulf war and 43's gulf war
Maureen Dowd er þekkt fyrir kaldhæðni í pistlum sínum. Hún þarf hinsvegar ekkert að vera kaldhæðin þegar hún ber saman Persaflóastíð 41. og 43. forseta Bandaríkjanna. Staðreyndirnar eru nægilega kaldhæðnar sjálfar.Sjá: The Perpendicular Pronoun
Ég mæli líka með lestri á nýjasta pistli Tómasar Friedman. Þar rekur hann í stuttu máli hvers vegna hann styður stríð gegn Saddam Hussein, en getur ekki skrifað undir þessa aðferðafræði.
Lesa áfram
Hentugur misskilningur
Polls show that the public is terribly confused about what's going on, so much so that some 40 percent believe that Saddam Hussein was personally involved in the Sept. 11 attacks. That's really scary. Rather than correct this misconception, the administration has gone out of its way to reinforce it.- Bob Herbert í Ready for the Peace? í New York Times.
mars 20, 2003
Franskar kartöflur
Áðan varð mér það á að horfa á Jay Leno. Reyndar hló ég að einum brandara sem hann sagði í mónóloggnum, sem gerist ekki oft: Bandaríkjamenn nota seli og höfrunga til njósna og sprengjuleitar. You know you have no allies, when you have to turn to other species!Í "Jay Walk" var fólk ekki sammála hvort Írland væri í Miðjarðarhafinu, Kyrrahafinu eða landlukið (og nágrannarnir eru? -Evrópa!).
Hvað um það, Bill O'Reilly frá Fox-stöðinni kom til Lenos og kallaði á alla Ameríkana að sniðganga franskar vörur (hér má lesa transcript af viðtali sem hann tók við franskan blaðamann og gefur til kynna hver málflutningur hans er). Annað sem hann kom inn á var að Bandaríkin hefðu bjargað Frökkum og ef það hefði ekki verið fyrir okkur þá væru þýska töluð í Frakklandi í dag og allir væru á Volkswagen.
Hvað um það, ég rakst á þessa síðu á netinu (í gegnum Kristján og Stellu), Belgianfries.com, þar sem segir m.a.:
In fact, the explanation is quite simple: in English, 'to french' means (or at least meant) 'to cut into lengthwise pieces'. You probably know 'frenched beans'. So logically, French Fries is short for 'frenched and fried potatoes'. In fact, the English call them 'chips', a word which has a similar meaning (a chipped piece of wood). (scr)Ég verð samt að segja, talandi um að sniðganga vörur, að ég veit um fá uppátæki til "mótmæla" vitlausari en einmitt að sniðganga vörur frá hinni eða þessari þjóðinni. Ég skal eyða fleiri orðum í það við betra tækifæri.
Nú rétt í þessu var fréttaskýrandi að tala um það á BBCWorld hvað bandamenn Bandaríkjamanna væru litlar þungavigtarþjóðir, að ÍSLAND væri meðal þessara ríkja, land sem hefur ekki einu sinni sinn eigin her!!
Fríverslunarsamningar EFTA
Í nýjasta eintaki Stikla, vefrits viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir frá því að samkomulag hafi náðst milli Egypta og EFTA um viðskipti. Egyptar höfðu fram að þessu neitað að opna markaði sína fyrir fisk en í samningnum, sem gert er ráð fyrir að ljúka við fyrir áramót, náðist samkomulag um fisksölu til Egypta, en á móti þurftu EFTA-löndin að slaka á hindrunum með innflutning á landbúnaðarvörum frá Egyptalandi.Á síðasta ári var seldur fiskur til Egyptalands frá Íslandi fyrir tæpar 50 milljónir en flutt inn frá Egyptalandi vörur fyrir 21 milljón.
Fyrir hafa fríverslunarsamningar verið gerðir við Ísrael, Palestínu (PA), Jórdaníu, Tyrkland og Marokkó. Eistrasaltsríkin þrjú, Pólland, Tékkland, Slóvakíu, Ungverjaland, Slóveníu, Króatíu, Búlgaríu, Rúmeníu og Makedóníu af gömlu Austantjaldslöndunum. Auk þess eru fríverslunarsamningar við Mexíkó (frá 2001) og Singapore (frá upphafi ársins í ár).
Þá hafa verið gerðar yfirlýsingar, "Declarations on Co-operation", við nokkur ríki: Alsír, Egyptaland (sem nú er verið að gera fríverslunarsamning við), GCC (Bahrein, Kúveit, Khatar, UAE, Óman og Saúdí-Arabía), Líbanon, Túnis, MERCOSUR-löndin (Brasilía, Uruguay, Paraguay og Argentína), Albaníu, Serbía og Svartfjallaland og Úkraínu.
mars 19, 2003
Nationalismi og ESB
Á fimmtudaginn fyrir tæpri viku fór ég á málþing um "Þjóðernishyggja, sambandsríkjastefnan og Evrópusambandið", þar sem Brendan O'Leary flutti gott erindi.Þar sem ég sá að heil síða í Mogganum fór í viðtal við hann á laugardaginn, þá held ég að ég sé ekkert að reyna að endursegja það sem þarna kom fram. Það sem kom hinsvegar fram í örstuttu máli var að ESB sem "Bandaríki Evrópu" er ekki að ganga upp, nokkuð sem flestir raunsæir menn sjá og skilja.
Kenning hans um "herraþjóð" voru athyglisverðar og hægt að færa mjög góð rök fyrir henni, því miður.
Skemmtilegur fundur og nýttist nokkuð að hafa lesið Íslenska þjóðríkið e. Guðmund Hálfdánarson. Þar eru miklar pælingar um þjóðir og fleira sem þarna var rætt.
Reyndar kláraði ég aldrei Íslenska þjóðríkið alveg, þyrfti að klára hana einhvern daginn - ekki það að bókastaflinn sem ég á eftir að lesa telur líklegast núna einar 10-15 bækur! Ég er mjög duglegur að sanka að mér bókum, bæði kaupi ég alltof mikið af þeim og tek allar áhugaverðar bækur sem ég rekst á á bókasafninu (og safna svo sektum á þær þegar ég kemst ekki yfir að lesa þær). Spurning um að reyna að skipuleggja sig aðeins betur til að koma því í verk að lesa eitthvað af þessu.
Skólabókardæmi um afrískt valdarán
Á BBC-vefnum er valdaránið í Mið-Afríku lýðveldinu kallað skólabókardæmi um afrískt valdarán.Í sömu fréttaskýringu kemur m.a. fram að landið var nýlega að ganga í gegnum ferli til að fá lán hjá IMF/Alþjóðabankinn, sem hefði borgað opinberum starfsmönnum og hermönnum.
Talið er að það muni skapa mikla ólgu ef sannast að Tsjad (Chad) hafi bakkað upp uppreisnarmennina. Á götum Bangui, höfuðborgar Mið-Afríku lýðveldisins, hafa sést arabískutalandi (Tsjaddar) og hefur það skapað töluverða tortryggni.
mars 18, 2003
Woody Allen
Vildi bara minna á heimildarmynd um Woody Allen (Woody Allen: A Life in Film) í kvöld á RÚV kl. 23:10.Hún verður endursýnd eftir hádegi á sunnudaginn fyrir þá sem missa af henni í kvöld. Ég er ánægður með margar af þessum sem RÚV hefur verið að sýna undanfarnar vikur, sérstaklega að þær skuli síðan vera endursýndar fyrir þá sem missa af þeim. Endursýningar eru af hinu góða, sparar manni oft stress með tæmerinn í vídjóinu.
48h
Jæja, 48 stundir (46?) í innrás.Að tilkynna svona lagað á degi heilags Patreks, fussusvei!
Skotinn Robin Cook hlýtur að vera stjarna dagsins, ræðan sem hann flutti í þinginu í dag var áhrifrík. Hann er einn af þessum stjórnmálamönnum sem maður sveiflaðist á milli þess að elska eða hata þegar hann var utanríkisráðherra, en nú er hann vissulega í náðinni.
mars 17, 2003
Fleiri fréttir
Það er fleira í fréttum en að innrás inn í Írak sé væntanleg í vikunni.Valdaránið í Mið-Afríku lýðveldinu er gagnrýnt af Sambandi Afríkuríkja (á BBC-vefnum er prófíll fyrir Bozize sem stendur á bak við uppreisnina).
Palestínska þingið felldi tillögu Arafats um forsætisráðherra, 49 á móti 22. Tillagan hefði haldið meiri völdum hjá forsetanum (Arafat). Eftir sem áður hefur forsetinn (Arafat) vald yfir öryggissveitunum, getur skipað og rekið forsætisráðherrann og hefur lokaorðið um samninga við Ísrael. Forsætisráðherrann (Abbas/Abu Mazen) hefur innanríkismál á sinni könnu. Abbas vill ekki taka við djobbinu fyrr en skýrt er hvert vald hans verður.
Vinir og samverkafólk syrgja Rachel Corrie, bandaríski friðarsinninn sem lést í aðgerðum Ísraelshers, þegar hún reyndi að verja palestínska borgara og eigur þeirra (líkt og nokkrir Íslendingar hafa gert undanfarið). Minnir mann á, á sama tíma og Bandaríkin eru hötuð í Arabaheiminum, að þjóðir eru aðeins stór hópur einstaklinga, sem allir hafa sjálfstæðar skoðanir, viðhorf og lifa sjálfstæðu lífi.
Og svo fréttin sem mér finnst einna sérstökust: Hans Adam af Lúxemborg fær aukin völd.
Skoðanakönnun meðal Araba
Ég var að heyra í fréttakynningunni á Ríkisútvarpinu að m.a. verði fjallað um nýlega könnun sem gerð var í nokkrum Arabalöndum.Mér var bent á hana fyrir helgi og ekki úr vegi að vísa á hana á heimasíðu Maryland-háskóla.
mars 16, 2003
Friedman
Kominn tími á nokkra Friedman-pistla:Fire, Ready, Aim:
Again, for a war of no choice against the 9/11 terrorists in Kabul, we didn't need anyone's permission. But for a war of choice in Iraq, we need the world's permission — because of what it would take to rebuild Iraq.Grapes of Wrath:
Lesa áfram
Three Amigos
Þeir háu herrar sem nú funda á Asoreyjum eru svo samstíga að þeir ganga m.a.s. allir í eins fötum.
Veikara kynið
"Það sem drepur þig ekki, styrkir þig," er þetta ekki haft eftir Nietzsche? Nokkuð til í þessu. Veit þó ekki hvort það hafi eitthvað með þetta að gera: The Weaker Sex. Þarna er rakið í örstuttu máli hvernig standi á því að þrátt fyrir að 15% líklegra sé að vísir að sveinfóstri verði til við getnað þá eru konur orðnar fleiri en karlar strax um miðjan fertugsaldurinn. Og ef út í það er farið, eru átta sinnum fleiri konur yfir 100 ára en karlar.
Sveinfóstur eru líklegri til að ná því ekki að fæðast, drengir eru líklegri til að hafa allt frá lit- og lesblindu til ofvirkni og taugasjúkdóma, unglingsstrákar eru líklegri til að farga sér, fara sér á voða og m.a.s. á efri árum eru karlmenn í meiri hættu að fara sér á voða.
Bandaríkjamenn, himnaríki og helvíti
Ég hlustaði á þennan pistil í útvarpinu í gær. Góður punktur:According to that faith there is such a thing as heaven - 86% of Americans, we are told by the pollsters, believe in heaven.Satt að segja hafði ég ekki heyrt þessar tölur áður og komu þær mér á óvart, ég bjóst ekki við þeim svona rosalega háum. Hélt að nær helmingi Bandaríkjamanna trúi á tilvist helvítis, ekki 3/4.
But much more striking to me, and much more pertinent to current world events, is the fact that 76% or three out of four people you meet on any American street believe in hell and the existence of Satan.
They believe that the devil is out to get you. That evil is a force in the world - a force to be engaged in battle.
mars 15, 2003
Uppreisn í Mið-Afríku lýðveldinu
Átök í Mið-Afríku lýðveldinu. Einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að flestum sé nokk sama.Þetta litla, 3,5 milljón manna ríki er eitt hið fátækasta í Afríku (PPP=$1300). Núverandi forseti, Patesse, hefur a.m.k. staðist sjö uppreisnartilraunir. Þetta virðist vera sú áttunda. Hann var kosinn forseti 1993 og er frá norðurhluta landsins. Ættflokkar frá suðurhluta landsins, sem eru betur menntaðir, höfðu fram að því haft töglin og halgdirnar í stjórnkerfi landsins og hefur Patesse ekki notið stuðnings meðal þeirra. Mikil ólga hefur verið í landinu og vakti það athygli þegar Khaddafi sendi her til Mið-Afríku lýðveldisins til að hjálpa Patesse til að ráða liðurlögum uppreisnar sem gerð var undir forystu fyrrverandi forseta landsins, Kolingba. Einnig hefur hann notið liðsinnis kongósku skæruliðasveitarinnar MLC undir forystu Jean-Pierre Bemba, sem hefur völd í norðurhluta L.l. Kongós.
Lesa áfram
Snúinn aftur?
Mér finnst Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður hjá Stöð 2/Bylgjunni, hafa ansi líka rödd og Þórir Guðmundsson, fyrrv. fréttamaður og núverandi Rauða kross-maður.Það sem gerir þá enn líkari er að þeir eru að flytja nokkuð líkar fréttir, þ.e.a.s. af erlendum vettvangi.
mars 13, 2003
Þjóðernishyggja, sambandsríkjastefnan og Evrópusambandið
Málþing Stofnunar um stjórnsýslufræði og stjórnmál þann 13. mars í samstarfi við breska sendiráðið. Aðalfyrirlesari verður Brendan O'Leary forstöðumaður við Solomon Asch Center for the Study of Ethnopolitical Conflict og prófessor í stjórnmálafræðum við University of Pennsylvania. Stutt innlegg munu ennfremur flytja Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, ennfremur Ólafur Stephensen aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, sem hefur oft gert þjóðernishyggju að umfjöllunarefni í greinum í blaðinu og skrifaði á sínum tíma MSc-ritgerð við LSE um minnihlutaþjóðernishyggju í Evrópusambandinu. Fundar- og umræðustjórnendur verða Arnar Másson stjórnmálafræðingur og Davíð Logi Sigurðsson sagnfræðingur, stundakennarar í námskeiði um þjóðernishyggju og þjóðernisátök við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands. Fimmtudag 13. mars kl. 16.00-18.00 í Lögbergi stofu 101Þó ég hafi engan tíma til þess, þá er ég hræddur um að ég geti ómögulega sleppt þessum málþingi. Enginn smá titill og vonandi að það standi undir nafni.
ps. Það var verið að benda mér á þetta: grein eftir Reyni Traustason á Blaðamannafélagsvefnum.
Poppkornsfiskur
Gaman væri að smakka þetta.
ps. Vil benda á þessa umræðu á eoe.is.
mars 12, 2003
Skattahækkanir
Tölfræðikennarinn minn leynir á sér: Skattahækkun er skattahækkun, segir fjármálaráðuneytið.Ég hef heldur aldrei skilið hvernig það getur talist "skattalækkun" þegar "tekjur aukast og þar með skattarnir", þegar hlutfall tekna sem fer í skatta hækkar (notabene: hlutfallið, ekki bara upphæðin). Ég hef heldur ekki skilið hvernig Geir frændi fær það út að "skattarnir hækka í góðærinu", þegar það hlýtur að hægja á uppganginum þegar jaðarskattar eru greinilega óhagstæðir (a.m.k. skv. málflutningi stjórnarherranna).
Sigurður skrifaði líka annan pistil á Heim.is, sem vitnað hefur verið í: Dr. Jekyll og Seðlabankinn
ps. Ég er ansi sáttur við ritstjórn NYT þessa dagana, fyrst "No to War" á sunnudaginn og í dag gagnrýnir ritstjórnin Bush-stjórnina (réttilega) fyrir framgöngu hennar í málefnum fanganna í Guantanamo.
mars 11, 2003
Áfrýjunardómstóll íhaldsmanna
Einn er sá dómstóll í Bandaríkjunum sem íhaldssamari er en flest annað og er alræmdur fyrir það. Umræddur dómstóll er United States Court of Appeals for the Fourth Circuit.Hið stórgóða New York Times Magazine er með ítarlega umfjöllun, The Power of the Fourth, um áfrýjunardómstólinn. Afar löng grein en ofar áhugaverð. NYT Magazine er ekki eitthvað götublað sem prentar hvað sem er. Engu að síður fær dómstóllinn óblíða útreið í greininni. Hvers vegna? Vegna þess að dómstóllinn hefur trekk í trekk dæmt með ótrúlegum hætti. Ef svo "illa" vill til að frjálslyndir dómarar sem bera réttindi einstaklingsins fyrir brjósti dragast í meirihluta þriggja manna dómstóls (sem tölva velur random úr hópi 12 dómara við réttinn) er málinu yfirleitt skotið til en banc ákvörðunar, þar sem "frjálslyndisvillan" er leiðrétt af meirihluta dómaranna, sem voru flestir skipaðir af Reagan eða Bush Sr.
Dómstóllinn fer með mál Virginíu, Vestur-Virginíu, Maryland, Norður-Karólínu og Suður-Karólínu. Ótrúlega hátt hlutfall dómaranna eru fyrrverandi starfsmenn eða aðstoðarmenn Jesses Helms eða Stroms Thurmond, eða þeim tengdir. Dómstóllinn dæmir nær alltaf í takt við kenningar íhaldssamra júrista, judicial restraint, í málum á borð við jafnrétti, fóstureyðingar o.fl.
Lesa áfram
Hannes Hólmsteinn!
Það er varla hægt að skrifa nafn þessa manns öðruvísi en með upphrópunarmerki.Ég horfði á víðfræga umræðu í Silfri Egils frá því á sunnudag á vídjói í gær. Þvílíkt og annað eins. Enginn kom vel út úr þessu, þó ekki vilji ég meina að Egill hafi staðið sig jafnilla og sumir eru að tala um.
Fréttablaðið á "óþekkta" eigendur, sem flestir þykjast engu að síður vita hver/hverjir er(u). Gott og vel, það var ekki umræðuefnið í sjálfu sér í þessum þætti, enda hverju myndi það skila? Gunnar Smári neitar að gefa það upp og eigendurnir vilja ekki gangast fyrir eign sinni. Það var því allt í lagi af Agli að stoppa þá umræðu.
Lesa áfram
mars 10, 2003
Carter
Greinin eftir Jimmy Carter í New York Times í dag er ansi beinskeytt, a.m.k. ef haft er í huga að hún er skrifuð af atvinnudiplómata.Just War — or a Just War? - m.a.s. orðaleikurinn í yfirskriftinni er hvass.
Lesa áfram
Ultra-kaþólikkinn Mel Gibson
Alveg hreint mögnuð grein í New York Times Magazine, Is the Pope Catholic...Enough?, sem fjallar m.a. um kirkju sem Mel Gibson er að reisa, pabba hans og hans skoðanir og kvikmynd á aramönsku og latínu sem Mel Gibson er að gera fyrir eigin kostnað um síðustu stundirnar í ævi Jesús Krists.Pabbinn m.a. dregur helförina í efa, hann segir að seinna kirkjuþing Vatíkansins '62-'65 hafi verið samsæri Gyðinga og frímúrara. Allir páfar eftir Jóhannes XXIII. (að honum meðtöldum) o.s.frv. o.s.frv.
Þeir feðgar teljast til svokallaðra "traditionalists", sem hafna öllum breytingum Vatíkansins seinni hluta 20. aldar sem allsherjar samsæmi. Þeir messa á latínu og konum er skylt að bera höfuðklúta við messur (ekki er tekið fram hvort þær fái að sitja með körlum í kirkjunni einsog var á miðöldum), svo eitthvað sem nefnt.
Pabbi Gibson gefur út ársfjórðungslegt rit, "The War is Now!", svona ásamt því að vera virkur í baráttunni við "hið illa" á margan annan hátt, þótt hann sé kominn á 85. aldursár. Hann kallar páfann m.a. "Garrulous Karolus, the Koran Kisser" í blaðinu sínu, enda skrifaði hann heila bók með titlinum "Is the Pope Chatholic?".
Alveg stórmerkilegt að lesa þetta, ekki vissi ég að Mad Max væri öfga-kaþólikki!
mars 09, 2003
Hið æsispennandi líf mitt
Kominn tími á smá dagbókarfærslu hérna á síðunni.Fyrir rúmum hálfum mánuði (hvað tíminn líður fljótt...) vakti ég dag og nótt að berja saman ritgerð í stjórnun. Það hafðist með því að sleppa því að sofa (ef aðeins væru fleiri klukkutímar í sólarhringnum...). Að hluta til tímaleysi, að hluta til skipulagsleysi, en svona er þetta stundum. Hafði verið heldur strembin vika, stefnumótunarprófið á fimmtudeginum gekk vel (vona ég a.m.k.) og var prófið nokkuð sanngjarnt. Um nóttina svaf ég ekkert (lagði mig í tvo tíma í stað þess að mæta í tölfræði) og var fram á síðustu stundu að laga ritgerðina til. Hljóp næstum niður deildarforseta lagadeildar í stiganum upp á skrifstofu (hef sjaldan hlaupið eins hratt) og náði að skila á slaginu fimm á föstudeginum.
Fór svo heim og reyndi að fara að sofa en gelgjuafmæli systur minnar kom í veg fyrir það. Var orðinn ruglaður af svefnleysi og svaf lítið þegar ég loksins gat það (ekki). Eyddi laugardeginum í hálfgerðu svefnmóki. Ljósritaði markaðsfræðibókina hjá Ingu Steinunni, sem átti afmæli þann dag, og auðvitað fékk hús rós í tilefni dagsins.
Lesa áfram
20 ára upprifjun
Sniðugt fyrir þá sem eru ekki alveg með sögu síðustu 20 ára í Mið-Austurlöndum á hreinu að fá hana hér í mjög fáum orðum: Events that made headlinesMóðganir
Þegar arabískir leiðtogar móðga hvern annan, þá er það ekki á neinu götumáli:"You're a liar and your grave awaits you" sagði t.d. Qaddafi við Abdúllah prins í Sjarm al Sjeik (reyndar á arabísku, ekki ensku).
Ég held að andrúmsloftið í fundarsalnum hafi verið ansi magnað þegar þessir stórlaxar fóru að skiptast á svívirðingum.
Tilvitnunin er fengin úr frétt METimes.
mars 07, 2003
Baugur
Án þess að ég nenni að tjá mig frekar um Baugs-fárið, þá verð ég að segja að þessi frétt kemur mér ekki á óvart: Guðfinna og Þorgeir segja sig úr stjórn BaugsÉg veit ekki til þess að Þorgeir í Odda hafi verið þekktur fyrir annað en að vera heiðarlegur (en harður) í viðskiptum og ekki fyrir neitt bullshit. Guðfinnu er að sjálfsögðu ekki sætt í stjórninni, verandi rektor háskóla sem leggur mikið upp úr siðareglum í viðskiptum sínum.
Það kemur svosem ekkert á óvart að Norðmaðurinn sitji áfram, enda eiga þeir frændur stóran hlut í fyrirtækinu og þurfa að standa vörð um hann (og ættu því aldeilis að vera ósáttir eftir atburði síðustu daga). Jóhannes situr auðvitað áfram, af skiljanlegum ástæðum.
Sá trúnaðarbrestur sem átt hefur sér stað innan stjórnarinnar, með birtingu Fréttablaðsins á upplýsingum úr samskiptum stjórnar, er mun athyglisverðari en sá lágpólitíski skrípaleikur sem mann hafa staðið í undanfarið.
Hvernig nokkuð traust eigi að vera borið til þeirra sem stóðu í þeim birtingum skil ég ekki. Ég skil allavega ekki hvernig nokkur með almenna siðgæðisvitund ætti að geta setið í stjórninni áfram. Því hefði það komið mér verulega á óvart ef þessi frétt af útgöngu Þorgeirs og Guðfinnu hefði ekki borist. Sér í lagi í ljósi þess hvaða einstaklingar eiga í hlut.
Skemmtileg tilviljun að nú hengir þessi frétt inni á Moggavefnum: Jón Ásgeir tekur sæti í stjórn Flugleiða
mars 04, 2003
Guð, Nasser og Norður-Kórea
Nicholas Kristof skrifar stórgóðan pistil í NYT í dag, God, Satan and the Media.Þar skrifar hann um hina miklu gjá sem er orðin á milli þeirra 46% Bandaríkjamanna sem telja sig "born again Christians" og þeirra sem sjá veröldina í víðara samhengi en Biblíunnar.
Hann kemur líka inn á góðan punkt, sem er að ef gjáin heldur áfram að breikka getur það endað illa. Þessi gjá kristallast best í fóstureyðingaumræðunni vestan hafs, en varla er hægt að tala um umræðu, þar sem frekar hóparnir berjast í raun og veru frekar en að eiga í málefnalegri rökræðu. Gagnrýnin á hina "endurfæddu" er líka oft ómálefnaleg, segir Kristof, og ekki til annars en að breikka gjánna. Ómálefnaleg umræða er líka aldrei til góðs.
One of the deepest divides in America today is the gulf of mutual suspicion that separates evangelicals from secular society, and policy battles over abortion and judicial appointments will aggravate these tensions further in coming months. Both sides need to reach out, drop the contempt and display some of the inclusive wisdom of Einstein, who wrote in his memoir: "Science without religion is lame, religion without science is blind."Aukinheldur: Fyrir viku síðan skrifaði Kristof pistil þar sem hann bar saman Saddam í dag og Nasser 1956. Hann er ekki fyrsti pistlahöfundurinn sem gerir það, en engu að síður alveg hægt að mæla með að lesa pistilinn: Hitler on Nile.
Fyrir helgi skrifaði hann líka um Norður-Kóreu en Bush-stjórnin er víst að spá í að bomba hugsanlega Norður-Kóreu líka (2 fyrir 1?). Alveg ótrúlegt. Sjá: Secret, Scary Plans
ps. Nú er allt vitlaust í Nicaragua vegna fóstureyðingar sem 9 ára stelpa fór í eftir að henni var nauðgað. Kaþólska kirkjan að vonum alveg brjáluð. Hvað er eiginlega að þessum heimi??
mars 03, 2003
Búlgaría
Þetta er ansi skondinn pistill, alveg á mörkunum að úthúðu heilu landi svona. Hinsvegar er þetta dagssatt: Bush's Warsaw War PactAukinheldur frá Dowd: Bush Ex Machina
mars 02, 2003
Bókasafnið brennur Söguþekking Mbl-manna er
Söguþekking Mbl-manna er oft skemmtileg. Í frétt í dag segja þeir frá bruna í Bókasafninu í Alexandríu (hinu nýja), sem var opnar ekki alls fyrir löngu: "Eldur kom upp í hinu fornfræga Alexandríubókasafni í Alexandríu í Egyptalandi í dag. Fræðamiðstöðin var opnuð á ný í október." og svo "Safnið, sem er á 11 hæðum, var opnað á ný í október eftir endurbætur sem stóðu í 20 ár og kostuðu 200 milljónir dala."Það er ekki hægt að skilja fréttina öðruvísi en að þarna hafi verið opnað eftir endurbætur "Bókasafnið [sem] var ein fyrsta miðstöð námsfúsra manna í heimi og var sett á fót eftir að Alexander hinn mikli stofnaði borg á Miðjarðarhafsströnd Egyptalands árið 332 fyrir Krist."
Stórbruni var í Bókasafninu í Alexandríu árið 48 f.Kr. í átökum Kleópötru, sem var studd af Júlíusi Sesari, við bróður hennar. Þá brunnu einhvers staðar á bilinu 40-400 þús. rit (heimildum ber ekki saman). Markús Antoníus gaf 200 þús. rit til safnsins skömmu síðar. Á þriðju öld brann það svo aftur í innanríkisdeilum.
Það er hinsvegar ekkert launungamál að Bókasafnið í Alexandríu hið fyrra var endanlega brennt undir lok 4. aldar af biskupnum í Alexandríu í kringum 400, Theófílusi að nafni. Nafnið bar hann með rentu því ástæðan fyrir brunanum var að í því voru geymdar "heiðnar bækur". Hann var þarna að bregðast við tilskipun Theódósíusar keisara í Róm sem árið 391 bannaði öll ókristin (heiðin) trúarbrögð. Nokkrum árum síðar var síðasti "alexandríski fræðimaðurinn" myrtur og var því ekkert bókasafn af þessari stærðargráðu í Alexandríu frá fimmtu öld og fram á okkar daga. Hið nýja bókasafn er reist með tilvísun í hið fornfræga safn, þó auðvitað muni það aldrei öðlast þá sérstöðu sem það hafði.
Heimildir: Bibalex.gov.eg o.fl.
mars 01, 2003
Afmælisstelpur
Í dag, 1. mars, eiga bæði Inga Steinunn og Þórunn afmæli. Til hamingju með afmælið stelpur!Ég er að vinna með þeim að verkefni í fjögurra manna hópi. Þær tvær eiga afmæli í dag og ég á svo afmæli ekki á morgun heldur hinn. María greyið þarf svo að vinna með þremur fiskum en hún átti afmæli fyrir tæpum mánuði.
Svona líka samstilltur hópur :-)
Ég er friðarsinni. Þarf ég að segja fleira?