apríl 02, 2003
Tölfræði og atvinnu-pólitíkusar
Í dag fór ég í fyrsta prófið af þremur (já, ég er í fimm kúrsum en aðeins þremur prófum). Það gekk (vona ég) bara þokkalega. Prófið var í samræmi við það sem ég hafði verið að reikna undanfarið fannst mér. Nú er bara að treysta á guð og lukkuna, krossleggja fingurna og hugsa um heimsveldið.Ég hef aldrei tekið próf í stærðfræði/tölfræði þar sem þurfti að skrifa eins mikið og í þessu. Ég hef, án gríns, tekið íslenskupróf sem kröfðust minni texta en þetta. Kannski ég hafi alveg sleppt mér í rökstuðningnum á sumum stöðum en skárra að skrifa of mikið en of lítið. Að lokum setti ég saman ferskeytlu meðan ég var að fara yfir prófið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég geri það, einhver undarlegur ávani að setja saman vísur í stærðfræðiprófum (og hef ekkert fyrir þeim þá, þær koma bara fullbúnar). Ætli það sé ekki bara það, að heilinn er í óvenjumikilli notkun þá :-)
Eftir prófið fór ég á fund hjá Félagi stjórnmálafræðinga úti í Lögbergi. Dró Kristófer og Jóa hagfræðing með mér. Þar fluttu framsögu hagfræðingarnir Sigurður Jóhannesson hjá Hagfræðistofnun (sem reyndar kennir líka tölfræði í HR) og Már Guðmundsson hjá Seðlabankanum. Svo sátu fyrir svörum í panel Halldór Ásgrímsson, Ögmundur Jónasson, Ingibjörg Sólrún, Birgir Ármannsson og einhver Sigurður frá Frjálslyndum.
Fundurinn átti að fjalla um efnahagsmál og fjallaði að einhverju leyti um þau (a.m.k. framsögurnar). Mikið var rætt um skatta og skattalækkanir en enginn virtist hafa áhuga á að heyra um hvar ætti að spara í ríkisfjármálunum. Flestallar einræðurnar voru langar og fæstar svöruðu spurningunum sem komu úr salnum. Sérstaklega var Ingibjörg Sólrún með miklar langlokur en kom þó inn á nokkra áhugaverða punkta, var greinilega búin að undirbúa sig vel en bara of mikill atvinnustjórnmálamaður til að segja eitthvað af viti til að styggja örugglega enga. Halldór Ásgrímsson var þarna sýndist mér, nema þetta hafi verið Pálmi Gestsson í gervi. Hann fór t.d. fram á meðan á miðju framsöguerindi stóð, til að hringja. Fór svo og settist úti í sal til að sjá glærurnar sem Már var með og sagði "Maður þarf nú að læra þetta!". Hann var líka mikið að skjóta á Ögmund, sem reyndar skaut enn fastari skotun á Halldór og Framsóknarflokkinn en Halldór uppskar klapp frá salnum þegar hann stakk upp í Ögmund með skemmtilegum hætti. Halldór fékk líka ómaklegt skot frá fyrirspyrjanda frá Frjálslyndaflokknum, sem hélt langa einræðu um sjávarútveginn, talaði um "fyrirtæki Halldórs" og kom svo með afskaplega heimskulega spurningu til Birgis. Halldór brást hinn versti við þessum aðdróttunum um að hann hann ætti sjávarútvegsfyrirtæki og greinilegt að það fer mjög í taugarnar á honum. Mér finnst það ómálefnalegt þegar menn saka Halldór um tengsl með þessum hætti. Hann á lítið sem ekkert í útgerð á Hornafirði, so what? Hættulegri þykja mér tengsl t.d. Ögmundar við BSRB og lífeyrissjóðakerfið, svona svo nærtækt dæmi sé tekið.
Frjálslyndi maðurinn var einsog illa gerður hlutur þarna innan um stjórnmálamennina og báru svör hans merki um að hann hefur ekki sátt "stjórnmálaskóla" flokkanna.
Birgir vitnaði mikið í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins, eða röksemdafærslu hennar öllu heldur og var í raun alveg einsog búast mátti við. Svona yfirveguð útgáfa af týpískum sjálfstæðismanni.
Mér þótti merkilegt að enginn skyldi spyrja um aðhaldsaðgerðir - og ekki komu frambjóðendurnir inn á það af sjálfsdáðum. Spurði því mjög einfalt (og vildi einföld svör), hver helstu sóknartækifæri í sparnaði hjá ríkinu frambjóðendurnir sæu fyrir sér. Notaði orðið sóknartækifæri vísvitandi. Frjálslyndi maðurinn sagði eitthvað um að spara í útgjöldum vegna sendiráða. Birgir gaf pólitískt svar um að skera fituna utan af hlutunum frekar en beinan niðurskurð. Ingibjörg kom með svo langt svar að fundarstjóri sá ástæðu til að minna hana á að svara spurningunni. Hún gaf sérlega langt svar, sem sagði þeim mun minna, en það athyglisverða í svari hennar fannst mér vera að hún sæi ekki ástæðu til að t.d. verja meiri fjármunum í heilbrigðiskerfið. Það færu nægir peningar inn í það, það bara kæmi ekki nóg úr því. Við værum að standa okkur alltof illa í samanburði við aðrar þjóðir en samt eyddum við jafnvel meiri peninga í að fá samt minna. Þetta fannst mér ágætt svar frá frambjóðenda stjórnarandstöðunnar. Ekki það að hún sá ekki beint neina liði sem mætti skera sérstaklega niður í. Ögmundur talaði eitthvað um millifærslur (forgangsröðun?) en hóf samt mál sitt á því að segja að skera mætti niður kostnaðinn við NATO og uppskar hlátur frá salnum. Reyndar vildi hann ekki skera niður NATO-kostnaðinn, heldur setja hann frekar í þróunaraðstoð. Svo vildi hann m.a. millifæra megnið af 3 milljarða kosningabónus ríkisstjórnarinnar í vegamálum í einhverja rannsóknar- og styrkjasjóði. Halldór kvartaði yfir því að allir vildu skera niður í utanríkismálum og var orðinn frekar geðvondur þegar þarna var komið við sögu. Gaf sjálfsagt einhver frekari pólitíkusa-svör en ég bara man ekki hvað hann sagði blessaður, einbeitingin var alveg búin. Hann kom bara með einhvern standard pólitískan pakka um aðhald og fituskurð og aukið hagræði, rétt einsog Birgir og Ingibjörg höfðu gert.
Þegar fundinum var lokið og fólk að koma sér út úr salnum heyrðist Halldór segja við einhvern samferðarmann sinn á leiðinni út "Þetta var nú leiðinlegur fundur". Að vissu leyti sammála honum en það sem eftir stendur er þetta (fyrir utan það sem var vitað fyrir að pólitíkusar (vilja) ekki skilja hagfræði og að Frjálslyndi flokkurinn er einhver allsherjar misskilningur):
- Halldór og Ögmundur eru greinilega aðeins meira en pólitískir andstæðingar
- Halldór er greinilega ósammála skattaáformum Sjálfstæðisflokksins frá landsfundinum
- Ingibjörg Sólrún er afspyrnu leiðinlegur stjórnmálamaður sem talar mikið en segir lítið - verð að segja að ég hafði, alveg fram að þessu, meira álit á henni
- Ef maður kysi í takt við frammistöðu fólks á þessum fundi myndi maður skila auðu
- Ef maður kysi í takt við hagfræðilegar forsendur stefnuskráa flokkanna, flytti maður af landi brott!
Í ofanálag var þetta hræðilega illa sóttur fundur. Taldi ekki fjöldann en hann var í allra minnsta lagi. Svona 1/4 af salnum tengdist þeim sem sátu fyrir svörum eða þeim sem stóðu fyrir fundinum. Ekki mikið yfir 30 almennir fundargestir. Hitti Guðbjörtu Gylfa þarna, sem var skemmtilegt. Hafði ekki séð hana í ár.
Til að fyrirbyggja allan misskilning, þá styð ég hvorki Samfylkinguna né Ingibjörgu Sólrúnu. Hún fær hinsvegar kredit hjá mér fyrir nokkra punkta sem hún kom með á þessum fundi. Aftur á móti féll hún í áliti hjá mér, þar sem ég taldi hana meiri skörung en hún virtist þarna. Var með svör og málflutning meðal atvinnustjórnmálamanns en ekkert umfram það. Hafði sannarlega tækifæri til að láta ljós sitt skína en talaði þess í stað mikið en sagði fátt.
Agust skrifaði 02.04.03 23:35
Flokkun: Stjórnmál , Ísland