apríl 09, 2003

Óvinurinn

Two cameramen, working for Reuters and Spain's Telecinco, were killed when a shell hit the hotel which houses hundreds of foreign journalists. There is video footage of an American Abrams tank firing at the building.

Earlier, a correspondent for the Arabic TV broadcaster al-Jazeera was killed when US missiles hit the network's office. (src)
Nú hafa Bandaríkjamenn einbeitt sér að því að ráða niðurlögum hins raunverulega óvinar, frjálsra fréttamanna.
"A war zone is a dangerous place. We continue to warn news organisations... you should not be there"
- Pentagon spokeswoman Victoria Clark (src)
Í nóvember 2001 sprengdu Bandaríkjamenn höfuðstöðvar al-Jazeera í Kabúl (sem var þá mannlaus). Að sögn samtakanna Reporters Without Borders gætti sjónvarpsstöðin sín á að láta Bandaríkjamenn hafa nákvæmar upplýsingar um staðsetningu skrifstofu þeirra í Bagdad. Einsog áður sagði var hún sprengd með tveimur flugskeytum í dag.

Hvernig hægt er að skjóta á eina hótelið sem vitað er að hýsir nær alla erlenda fréttamenn í Bagdad, er með slíkum ólíkindum að það sýnir og sannar enn og aftur að með mjög góðum rökum er hægt að efast um hæfni bandaríska hersins í borgarhernaði.

Ég ætla ekki að halda því fram að árásirnar á hótel fréttamannanna og skrifstofu al-Jazeera hafi verið plönuð af Bandaríkjamönnum. Ég held frekar að þessi atvik sýni að það sem sagt hefur verið um bandaríska hermenn undanfarið af hernaðarsérfræðingum (utan Bandaríkjanna) er rétt.
Agust skrifaði 09.04.03 01:51

Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd