apríl 14, 2003

Af mér

Ég kláraði síðasta prófið á laugardaginn. Kíkti í lítið partý um kvöldið og svo til Siggu. Þar sá ég bíómynd með Peter Ustinov sem kemst tvímælalaust a.m.k. á topp tíu listann hjá mér - yfir verstu bíómyndir sem ég hef séð. Hún heitir Charlie Chan (1981) og er bara hörmung í einu orði sagt.

Skv. IMDb.com er Charlie Chan karaketer sem um 40 myndir voru gerðar um á 4. og 5. áratugnum. Einnig voru gerðir sjónvarpsþættir '57 og ein sjónvarpsmynd '79. Upprunalegi Charlie Chan var leikinn af sænskum leikara á fjórða áratugnum og eftir það voru það bandarískir leikarar sem léku hann. Í sjónvarpsmyndinni '79 var hann leikinn af Pólverja. Það lá því beinast við að fá annálaðan breskan leikara til að leika hann, eða hvað? En einsog ég sagði, skelfilega léleg mynd.

Gærdagurinn fór svo í fjölskylduboð og aðrar skyldur en svo kom Sigga í heimsókn að ræða lífsins gagn og nauðsynjar.

Í dag var svo byrjað í verkefnavinnu vorsins. Nú er það stefnumótun, lítur ágætlega út, spenntur fyrir framhaldinu.

Ég á eftir að lesa heilan helling af efni sem ég hef ekki komist yfir vegna prófa og annarra anna. Dagurinn í dag og næstu tveir dagar munu líklegast fara í aðrar skyldur en skemmtilestur og verður sjálfsagt enn bið á uppfærslum á þessari síðu þangað til um helgidagana.
Vonast til að geta lesið eitthvað í þessum 7-8 bókum sem ég er með á náttborðinu núna, svo á ég vænan bunka af tímaritum og útprentuðum greinum sem bíða mín, fyrir utan allt internet-efnið sem ég hef ekki komist í að lesa síðastliðinn hálfan mánuð. Nóg að gera, en ég get ekki beðið að sökkva mér í þetta :)

Nú er ég aftur á móti á leiðinni í klippingu, nokkuð sem hefur setið á hakanum alltof lengi!
Agust skrifaði 14.04.03 15:43

Flokkun: Daglegt líf