apríl 15, 2003
Glötuð menningarverðmæti
Dr. Magnús Þ. Bernharðsson, kennari í nútímasögu Mið-Austurlanda og sérfræðingur í sögu Íraks, skrifar pistil í bandaríska dagblaðið Newsday í dag: [Grieving Over Loss of Civilian]...and Cultural Life in IraqNewsday þykir frekar íhaldssamt en birti pistil Magnúsar án athugasemda á Op-Ed-síðu sinni. Pistillinn fjallar um hina ægilegu eyðileggingu sem átti sér stað í Bagdad og aðgerðaleysi bandaríska hersins, sem þó sá ástæðu til að standa vörð um olíumálaráðuneytið og skjölin sem þar eru geymd. Þjóðminjasafnið, sem hefur (hafði) að geyma ómetanleg menningarverðmæti frá öllum fornu stórveldunum sem byggðu Mesapótemíu, var rænt og lagt í rúst. Kveikt var í ríkisbókasafninu og ómælanlegt magn skjala og upplýsinga glötuðust einnig annars staðar. Bandaríkjamenn bjuggust við þessu - og gerðu ekkert til að koma í veg fyrir þetta. Olíumálaráðuneytið varð aftur á móti ekki fyrir tjóni.
Agust skrifaði 15.04.03 13:48
Flokkun: Fréttir , Meðmæli , Mið-Austurlönd , Saga