apríl 15, 2003
Fyrirsagnir, þinn eigin stríðsherra og amerísk tómatsósa
Nú er fyrirsögn fréttastofu RÚV "Átökin í Írak" í sjónvarpsfréttunum. Áður var það "Innrásin í Írak". Prentútgáfa Morgunblaðsins talar enn um "Stríð í Írak". Nú er fyrirsöngnin "After Saddam" bæði á CNN og Sky News. Áður var það "War On Iraq" hjá CNN en "War In Iraq" hjá Sky. Sama fyrirsögnin var í dag á BBC minnir mig "Iraq - War". Enn er talað um "War On Iraq" á enskri útgáfu al-Jazeera.Fréttamönnum Sjónvarpsins er bent á að fæðingarbær Abrahams heitir Úr, ekki Ur, sbr. 11. kafla 1. Mósebókar (arabískur ritháttur: alef-va-ra).
Það er ekki laust við að manni verði óglatt að lesa þessa frétt um að nú sé hægt að fá sér Bagdad sem umhverfi Command and Conquer stríðsleiki.
Af innlendum vettvangi er það einna helst, utan frétta af atkvæðauppboðinu í vor, að Ástþór Magnússon mætti fyrir dómara í dag. Hann neitaði að fá verjanda og sagðist ekki ætla að vinna með honum, þegar honum var skipaður verjandi. Ekki var honum skipaður geðlæknir að svo stöddu.
Agust skrifaði 15.04.03 20:39
Flokkun: Fréttir