apríl 17, 2003
Typpi
Mér finnst pistill Andra Óttarssonar, Jafnrétti kynfæranna, góður. Á svipuðum nótum og stutt hugleiðing sem ég skrifaði fyrir rúmu ári í tengslum við myndina Tillsammans.Merkilegt að þetta skuli hafa verið bannað. Aftur á móti var ekkert sagt við því þegar Egill Sæbjörnsson fróaði sér fyrir framan vídjókameru á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Allt í þágu listarinnar. Typpaleikhúsið er aftur á móti óæðra art form í augum íslensku lögreglunnar (dómsmálaráðuneytið leiðrétti þá vitleysu). Merkilegt.
Agust skrifaði 17.04.03 00:39
Flokkun: Fréttir , Jafnréttismál , Menning , Meðmæli