apríl 29, 2003

Brjóstagjöf og barnaklám

Stundum verð ég algjörlega orðlaus. Það eina sem mér dettur í hug er only in America! Breast-feeding pix kiddie porn? (Unnur benti á).

Tvær aðrar, en gjörólíkar, fréttir sem vöktu athygli mína í gær:
Glaxo to Cut Price of AIDS Drug Used in Africa
Italian opposition in flap over flag
Agust skrifaði kl. 21:03
Flokkun: Fréttir

apríl 28, 2003

Fas femínista

Í tilefni þessara, þessara og þessara ummæla rakst ég á þennan "draum Gyðu".

Ég var búinn að heyra af þessu herópi Gyðu á stofnfundi Femínstafélagsins. Mín fyrstu viðbrögð við þessari sýn - og skoðun mín á þeim í dag - var fyrst og fremst svekkelsi. Ég er svekktur yfir því að þessi tegund femínisma skuli vera presenteruð af Femínistafélaginu. Það er mjög auðvelt að missa mestan tiltrúnað á félagið þegar maður heyrir að þetta er málflutningurinn.
Ég spyr mig líka hverjum það þjónar að "virkja" þessa drauma Gyðu og stalla hennar. Það læðist að manni sá grunur að þessir draumar séu afleiðingar einhvers konar martraða sem konurnar hafa kynnst frá körlum. Þessi ótrúlega heift, þetta máttleysi sem birtist í þessum draumi hryggir mann. Því einsog ég segi, það læðist sá grunur að manni að sú sem á sér þennan draum hafi áður kynnst martröð.



Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 20:49
Flokkun: Jafnréttismál

apríl 27, 2003

Páskar

Nú er páskadagur hjá koptísku kirkjunni, eþíópísku kirkjunni og rússnesku og úkraínsku orþadox kirkjunni. Á morgun halda svo Egyptar upp á Sham al Nessim, sem er vorhátíð og haldið upp á hana af öllum þjóðfélagshópum og talið rekja uppruna sinn rúm þrjú þúsund ár aftur í tímann til Forn-Egypta.
Agust skrifaði kl. 15:40
Flokkun: Menning , Mið-Austurlönd

Nokkrar fréttir úr nýjasta METimes

Chalabi a fraudster. Chalabi, besti vinur Washington í Írak, er - einsog margoft hefur komið fram - langt í frá hreinn pappír.

Mubarak steps into the fray. Hér má lesa um hvernig tókst að tryggja Mahmoud Abbas sem forsætisráðherra Palestínu stjórnarinnar með þrýstingi frá Egyptum o.fl. Díllinn er að Arafat fær að halda nokkrum völdum á bakvið tjöldin.

Human rights group criticises US over children detained at Guantanamo Cuba.
Juveniles among Guantanamo prisoners. "Those under 18 represent "less than half a dozen" of the 660 held at Guantanamo, a spokesman for the joint military task force running the prison operation said." Það skiptir náttúrulega engu máli, enda kemur engum öðrum við en bandarískum stjórnvöldum hverjum þau halda í Guantanamo og hverjum ekki. Þannig skiptið ykkur ekki af því sem ykkur kemur ekki við og hana nú!

Lebanon's new government risks national unity. Nýja ríkisstjórnin í Líbanon er án þátttöku Maróníta sem eru ca. 15% þjóðarinnar (hef ekki nákv. tölu á reiðum höndum). Það hefur alltaf staðið til hjá mér að kynna mér betur sögu Líbanons. Vonandi að það komist í verk með sumrinu.

Education reform critical for the Middle East. Sannarlega engin ný sannindi, enda eitt fjögurra atriða sem brýnast er að bæta úr í Mið-Austurlöndum skv. Arab Human Development Report í fyrra.

Shiite pilgrimage signals moderation towards US.
Pilgrimage historic amid scenes of protest.
Pilgrimage continues for Iraqi Shiites deported to Iran.

Svo vil ég benda á þessa úttekt frá MEMRI: Iran's U.S. Policy After the Fall of Baghdad: Khamenei's Hostility Versus Rafsanjani's Pragmatism
Agust skrifaði kl. 15:30
Flokkun: Fréttir , Meðmæli , Mið-Austurlönd

Tim Robbins

Nokkuð góð ræða hjá Tim Robbins (Sigga benti á).
Agust skrifaði kl. 14:57
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

apríl 22, 2003

Líf mitt

Það verður ekki annað sagt en að það sé nóg að gera hjá mér þessa dagana.

Þrátt fyrir það virðist ég hafa dustað rykið af gömlu áhugamáli.

Á annan dag páska vaknaði ég ekki fyrr en undir hádegi. Engu að síður varð mikið úr þeim degi. Fyrst fór ég á hestbak í fyrsta skipti síðan haustið 1997 (fór reyndar í stuttan reiðtúr á gamlársdag sama ár sem varla telst með) og hef síðan þá ekki stigið í ístöð. Ég virtist þó hafa litlu gleymt á fimm og hálfu ári.

Seinnipartinn sama dag þurfti ég að skjótast upp á Bifröst. Renndi uppeftir og borðaði kvöldmat með Stefáni Einari í Borgarnesi. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fer út á land síðan ég fór á svipaðar slóðir haustið 2001. Það var því komið eitt og hálft ár síðan ég fór út á landsbyggðina, ef Miðnesheiði, Keflavíkurflugvöllur og Mosfellsdalur eru ekki taldir með.

Að lokum fórum við Hákon á Johnny English um kvöldið. Ég fer sárasjaldan í bíó og verður þetta því að teljast viðburður í mínu lífi. Fór síðast á Tanguy á franski kvikmyndahátíð í janúar.

Í dag fór ég svo aftur á bak. Það sem ég segi, maður þarf ekki annað en finna lyktina aftur og þá er maður búinn að taka bakteríuna.
Agust skrifaði kl. 21:46
Flokkun: Daglegt líf

apríl 17, 2003

Viðbrögð al-Qaeda við falli Bagdad

"With guerilla warfare, the Americans were defeated in Vietnam and the Soviets were defeated in Afghanistan. This is the method that expelled the direct Crusader colonialism from most of the Muslim lands, with Algeria the most well known. We still see how this method stopped Jewish immigration to Palestine, and caused reverse immigration of Jews from Palestine. The successful attempts of dealing defeat to invaders using guerilla warfare are many, and we will not expound on them. However, these attempts have proven that the most effective method for the materially weak against the strong is guerilla warfare..."
Þetta stóð m.a. á síðu al-Qaeda (sem ekki er hægt hægt að linka á, því henni er alltaf fljótlega lokað og slóðin breytist á nokkra daga fresti) 9. apríl, eftir að Bagdad var fallin.
Sjá nánar: MEMRI.
Agust skrifaði kl. 16:08
Flokkun: Fréttir , Meðmæli , Mið-Austurlönd

Jafnrétti og jafnrétti

Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir hefur oft skrifað af viti um jafnréttismál. Ég hef oft lesið hugleiðingar hennar á ýmsum vettvangi um jafnrétti, femínisma og fleira í þeim dúr og fundist hún nálgast málin yfirleitt á mjög "heilbrigðan" hátt.
Þessi pistill eftir hana á Frelsi er engin utantekning, Jafnrétti meðal jafnaðarmanna, þar sem hún segir m.a.:

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 13:29
Flokkun: Jafnréttismál , Meðmæli

Typpi

Mér finnst pistill Andra Óttarssonar, Jafnrétti kynfæranna, góður. Á svipuðum nótum og stutt hugleiðing sem ég skrifaði fyrir rúmu ári í tengslum við myndina Tillsammans.

Merkilegt að þetta skuli hafa verið bannað. Aftur á móti var ekkert sagt við því þegar Egill Sæbjörnsson fróaði sér fyrir framan vídjókameru á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Allt í þágu listarinnar. Typpaleikhúsið er aftur á móti óæðra art form í augum íslensku lögreglunnar (dómsmálaráðuneytið leiðrétti þá vitleysu). Merkilegt.
Agust skrifaði kl. 0:39
Flokkun: Fréttir , Jafnréttismál , Menning , Meðmæli

apríl 15, 2003

The Hobbesian Dick Cheney and the Oedipal struggle of the Bushes

Stundum er ekki annað hægt en að brosa út í annað þegar maður les pistlanna hennar Maureenar Dowd.
The Washington Post reported on Monday [31/3] that moderate Republicans were trying to do an intervention with the president to show him that hawks were giving him "bum advice."
The article was clearly referring to the Bush I realpolitik crowd of James Baker, Brent Scowcroft, Lawrence Eagleburger and Mr. Powell and his acolytes at State. These pals of Poppy Bush are alarmed that the Hobbesian Dick Cheney - who has been down in his undisclosed locations reading books about how war is the natural state of mankind - the flamboyantly belligerent Rummy and the crusading neo-cons have mesmerized the president with their macho schemes.
[...]
One former senior Republican official noted: "The only one who can reach the president is his father. But it is not timely yet to talk to him." This raised the odd specter of the president's being dragged off from running a war and taken to Kennebunkport for a Metternichian outing in the family cigarette boat. Mr. Scowcroft and Mr. Eagleburger could pin W. down while Bar steered and Poppy explained the facts of international life.
The Oedipal struggle of the Bushes - a father who was an ambassador to the U.N. and an envoy to China, a globe-trotting vice president and an internationalist president, and a son who was a Texas governor with little knowledge of the world - was bound to be aggravated by an invasion of Iraq not sanctioned by the U.N.
[...]
Bush 43 is busy trying to do something his dad thought he'd done. The title of Bush 41's book: "A World Transformed."
Warring Tribes, Here and There, 2. apríl, ©New York Times.
Agust skrifaði kl. 23:08
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

Next stop: Syria?

It is a tribute to Hafez al-Assad's reasonableness as a diplomat and irresponsibility as a leader that Syria is the only country called a sponsor of terrorism by the State Department that has diplomatic relations with the United States.
Úr leiðara New York Times í dag.


Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 22:19
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

Fyrirsagnir, þinn eigin stríðsherra og amerísk tómatsósa

Nú er fyrirsögn fréttastofu RÚV "Átökin í Írak" í sjónvarpsfréttunum. Áður var það "Innrásin í Írak". Prentútgáfa Morgunblaðsins talar enn um "Stríð í Írak". Nú er fyrirsöngnin "After Saddam" bæði á CNN og Sky News. Áður var það "War On Iraq" hjá CNN en "War In Iraq" hjá Sky. Sama fyrirsögnin var í dag á BBC minnir mig "Iraq - War". Enn er talað um "War On Iraq" á enskri útgáfu al-Jazeera.
Fréttamönnum Sjónvarpsins er bent á að fæðingarbær Abrahams heitir Úr, ekki Ur, sbr. 11. kafla 1. Mósebókar (arabískur ritháttur: alef-va-ra).

Það er ekki laust við að manni verði óglatt að lesa þessa frétt um að nú sé hægt að fá sér Bagdad sem umhverfi Command and Conquer stríðsleiki.

Af innlendum vettvangi er það einna helst, utan frétta af atkvæðauppboðinu í vor, að Ástþór Magnússon mætti fyrir dómara í dag. Hann neitaði að fá verjanda og sagðist ekki ætla að vinna með honum, þegar honum var skipaður verjandi. Ekki var honum skipaður geðlæknir að svo stöddu.
Agust skrifaði kl. 20:39
Flokkun: Fréttir

Þvílík sóun

Það var ekki laust við að hrollur færi um mann fyrir helgi, þegar Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar bárust inn um bréfalúguna og maður opnaði blöðunginn. Opnumynd, sem minnti mann á plakötin sem fylgdu ABC (og Æskunni) þegar maður var lítill, af jarðgöngunum fyrir austan. Þvílík sóun. Þvílík sóun!!
Agust skrifaði kl. 18:39
Flokkun: Stjórnmál , Ísland

Glötuð menningarverðmæti

Dr. Magnús Þ. Bernharðsson, kennari í nútímasögu Mið-Austurlanda og sérfræðingur í sögu Íraks, skrifar pistil í bandaríska dagblaðið Newsday í dag: [Grieving Over Loss of Civilian]...and Cultural Life in Iraq
Newsday þykir frekar íhaldssamt en birti pistil Magnúsar án athugasemda á Op-Ed-síðu sinni. Pistillinn fjallar um hina ægilegu eyðileggingu sem átti sér stað í Bagdad og aðgerðaleysi bandaríska hersins, sem þó sá ástæðu til að standa vörð um olíumálaráðuneytið og skjölin sem þar eru geymd. Þjóðminjasafnið, sem hefur (hafði) að geyma ómetanleg menningarverðmæti frá öllum fornu stórveldunum sem byggðu Mesapótemíu, var rænt og lagt í rúst. Kveikt var í ríkisbókasafninu og ómælanlegt magn skjala og upplýsinga glötuðust einnig annars staðar. Bandaríkjamenn bjuggust við þessu - og gerðu ekkert til að koma í veg fyrir þetta. Olíumálaráðuneytið varð aftur á móti ekki fyrir tjóni.
Agust skrifaði kl. 13:48
Flokkun: Fréttir , Meðmæli , Mið-Austurlönd , Saga

apríl 14, 2003

Af mér

Ég kláraði síðasta prófið á laugardaginn. Kíkti í lítið partý um kvöldið og svo til Siggu. Þar sá ég bíómynd með Peter Ustinov sem kemst tvímælalaust a.m.k. á topp tíu listann hjá mér - yfir verstu bíómyndir sem ég hef séð. Hún heitir Charlie Chan (1981) og er bara hörmung í einu orði sagt.



Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 15:43
Flokkun: Daglegt líf

Niðurstaða Afstöðu.net

Skemmtilegt test á Afstaða.net.
Agust skrifaði kl. 15:33
Flokkun: Internetið

apríl 10, 2003

Corcorde 1969/76-2003

Í dag er greint frá því að dagar Concorde flugvélanna er taldir. Það kemur svosem ekkert verulega á óvart. BBC greinir frá, Concorde grounded for good.
BBC minnist einnig allra milljarðanna af bresku og frönsku almannafé sem fóru í verkefnið á sjöunda og áttunda áratugnum og hvernig flugvélarnar hafa í raun aldrei náð að standa undir sér - og hvers vegna flugvélar miða að því að koma fólki sem ódýrast á milli staða, en ekki á sem skemmstum tíma, Why economists don't fly Concorde.
Agust skrifaði kl. 13:01 | Comments (0)
Flokkun: Fréttir , Saga , Tækni&tól , Viðskipti

apríl 09, 2003

Oh no!

Þetta voru viðbrögð fréttaskýrenda áðan þegar bandarískir hermenn settu bandaríska fánann yfir höfuðið á styttu af Saddam Hussein sem þeir voru að rífa niður með stórum skriðdreka. Fljótlega var fáninn fjarlægður og Íraki sást veifa íraska fánanum á toppi bandaríska skriðdrekans.
Fréttaskýrendurnir áttu ekki orð yfir þetta framferði, sem er þó dæmigert fyrir Bandaríkjamenn í Írak. Hvernig eiga Írakar að túlka svona fánasýningar öðruvísi en sem "við eigum pleisið" yfirlýsingu. Auðvelt fyrir okkur Vesturlandabúa að kjósa að túlka slíkt á annan veg, ef við viljum - en fyrir Íraka er þetta a.m.k. ekki rétta leiðin til að vinna hug og hjörtu þeirra.

Áhugavert: dr. Jón Ormur svarar spurningum á Vísi.is um Írak og innrásina.
Agust skrifaði kl. 14:45
Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd

Óvinurinn

Two cameramen, working for Reuters and Spain's Telecinco, were killed when a shell hit the hotel which houses hundreds of foreign journalists. There is video footage of an American Abrams tank firing at the building.

Earlier, a correspondent for the Arabic TV broadcaster al-Jazeera was killed when US missiles hit the network's office. (src)
Nú hafa Bandaríkjamenn einbeitt sér að því að ráða niðurlögum hins raunverulega óvinar, frjálsra fréttamanna.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 1:51
Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd

apríl 04, 2003

Fréttaumfjöllun

Jæja, lesendur góðir, eruð þið ekki farin að sakna sífelldra vísana minna í New York Times? Hélt það líka.
Ég hef lítið sem ekkert lesið síðustu vikuna, en las þó áðan þessa grein, sem vert er að benda á:
The War Americans Don't See; Rami G. Khouri, sem er ritstjóri dagblaðs í Beirút, skrifar um fréttaumfjöllun arabískra dagblaða af innrásinni.
Agust skrifaði kl. 22:01
Flokkun: Fréttir , Meðmæli , Mið-Austurlönd

apríl 03, 2003

Sitt lítið af hverju

Verð að benda á það sem Unnur skrifaði í dag: Kynlífslaus framhaldsstofnfundur Femínistafélags Íslands. Titillinn segir ekki allt, þar sem pistillinn hennar er mun víðtækari. Mjög athyglisvert.

Núna eru ár og dagar síðan ég náði að lesa ráðlagðan lágmarks dagskammt af lesefni. Get ekki beðið eftir að hafa (vonandi) 2-3 daga í lestur þegar prófin eru búin. Er með svona 4 bækur sem ég þarf urgently að lesa, auk þess fullt af greinum á netinu sem ég þarf að vinna upp.

Ég er hræddur um að ég þurfi að fá mér ný gleraugu. Þessi sem ég er búinn að ganga með núna í rúm fjögur ár eru bara engan veginn nógu "sterk". Hættur að sjá nokkuð þegar ég er þreyttur (einsog í dag). Núna t.d. sé ég ekki einu sinni tölvuskjáinn í ásættanlegum fókus. Skrambinn hafi það, gleraugu eru dýr og vaxa ekki á trjánum :-(

Hanna Mæja, gamli íslenskukennarinn minn, farin að láta Stefán Einar kenna íslensku í Verzló. Það hefur verið án efa athyglisvert, enda strákurinn með ómældan áhuga og ást á íslenskum fræðum. Hann hefur án efa staðið sig ágætlega og farið í Grím Thomsen af mikilli innlifun ;-)
Agust skrifaði kl. 0:32
Flokkun: Daglegt líf

apríl 02, 2003

Tölfræði og atvinnu-pólitíkusar

Í dag fór ég í fyrsta prófið af þremur (já, ég er í fimm kúrsum en aðeins þremur prófum). Það gekk (vona ég) bara þokkalega. Prófið var í samræmi við það sem ég hafði verið að reikna undanfarið fannst mér. Nú er bara að treysta á guð og lukkuna, krossleggja fingurna og hugsa um heimsveldið.
Ég hef aldrei tekið próf í stærðfræði/tölfræði þar sem þurfti að skrifa eins mikið og í þessu. Ég hef, án gríns, tekið íslenskupróf sem kröfðust minni texta en þetta. Kannski ég hafi alveg sleppt mér í rökstuðningnum á sumum stöðum en skárra að skrifa of mikið en of lítið. Að lokum setti ég saman ferskeytlu meðan ég var að fara yfir prófið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég geri það, einhver undarlegur ávani að setja saman vísur í stærðfræðiprófum (og hef ekkert fyrir þeim þá, þær koma bara fullbúnar). Ætli það sé ekki bara það, að heilinn er í óvenjumikilli notkun þá :-)

Eftir prófið fór ég á fund hjá Félagi stjórnmálafræðinga úti í Lögbergi. Dró Kristófer og Jóa hagfræðing með mér. Þar fluttu framsögu hagfræðingarnir Sigurður Jóhannesson hjá Hagfræðistofnun (sem reyndar kennir líka tölfræði í HR) og Már Guðmundsson hjá Seðlabankanum. Svo sátu fyrir svörum í panel Halldór Ásgrímsson, Ögmundur Jónasson, Ingibjörg Sólrún, Birgir Ármannsson og einhver Sigurður frá Frjálslyndum.


Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:35
Flokkun: Stjórnmál , Ísland

Breski og bandaríski herinn

Það er athyglisvert að fylgjast með umræðunni á BBC núna. Ég hef reyndar verið vant við látinn síðustu daga, en þegar ráðrúm hefur gefist hef ég náð nokkrum umræðum og viðtölum, bæði á BBC World Service í útvarpinu og BBC í sjónvarpinu.
Bandarískir hermenn eru óreyndir, trigger-happy, taugarveiklaðir strákpjakkar. Þetta er u.þ.b. það sem flestir eru sammála um. Reyndar nota þeir þessi orð ekki, skiljanlega, en þetta er boðskapurinn. Bandarískir hermenn eru almennt yngri en þeir bresku, þeir eru óreyndari og þeir fá ekki sömu nauðsynlegu þjálfunina og Bretarnir; þjálfun í samskiptum við heimamenn. Bandaríski herinn þjálfar almenna hermenn til árása, svo eru sérfræðingar þjálfaðir í að díla við heimamenn. Bretarnir hafa hinsvegar langa sögu hernáms, bæði á N-Írlandi og um allan heim á tímum heimsveldisins. Eitt af því sem breski herinn leggur upp úr er að hermennirnir virki ekki fjandsamlegir á heimamenn. Mönnum er uppálagt að ganga ekki með sólgleraugu innan um heimamenn og mega frekar vera hjálmlausir en Bandaríkjamennirnir, sem leggja meira upp úr "öryggi" hermannanna en að virkja ekki fjandsamlegir. Annað sem bresku hermennirnir eru kvattir til að gera, ólíkt þeim bandarísku, er að spila t.d. fótbolta við heimamenn og reyna eftir fremsta megni að minnka tortryggnina í þeirra garð.
Það skal þó tekið fram að flestir sérfræðingarnir sem rætt er við eru breskir, ekki það að þetta eru allt saman staðreyndir sem maður hefur heyrt áður. Á meðan Regular Joe í bandaríska hernum er tvítugur strákpjakkur að upplifa einhvern blautan byssudraum er týpískur breskur hermaður nær þrítugu og yfirleitt "yfirvegaðri".
Annað sem skiptir máli, fyrir utan þetta þjálfunar- og skilningsleysi Bandaríkjamannanna í samskiptum við heimamenn, er skæruhernaður í borgum (urban guerilla fighting). Margir hafa bent á að Bandaríkjamenn hafa mjög slæma reynslu af slíku og eru almennt hvorki þjálfaðir né réttum vopnum búnir undir slík átök. Aftur er t.d. Norður-Írland að nýtast Bretunum. Bretar þjálfa viðbrögð og aðgerðir í slíkum hernaði og hafa t.d. minni skriðdreka til að athafna sig innan borganna, kunna betur að forðast gildrur og fleira í þeim dúr.
Það hefur líka vakið athygli manns þegar Bandaríkjamenn hafa ráðist á borgir og þorp, gefið út fréttatilkynninguna um að viðkomandi staður hafi verið sigraður og svo berst tilkynning um að Bretarnir hafi verið kallaðir til að redda málunum þegar í ljós kemur að baráttan um viðkomandi stað er engan veginn lokið.
Manni finnst það samt athyglisvert að Bandaríkjaher, sem segir sig best búna, best þjálfaða, flottasta og stærsta her í heimi þarf að fá aðstoð frá Bretunum - og sú staðreynd sem fæstir virðast draga í efa utan Bandaríkjanna að bandaríski herinn sé e.t.v. best búni her heims en langt í frá sá best þjálfaði.
Agust skrifaði kl. 22:40
Flokkun: Mið-Austurlönd

apríl 01, 2003

A million deaths is a statistic

Jósef Stalín er eignuð setningin A single death is a tragedy, a million deaths is a statistic. Ég geri þó ráð fyrir að hann hafi sagt þetta á rússnesku.
Hvað um það, núna er ég búinn að lesa og reikna tölfræði í dag og í gær og um helgina. Gott og blessað. Prófið er á morgun og ég stend, að ég tel, betur að vígi en nokkurn tímann fyrr.
Vandamálið er hinsvegar að núna er ég búinn bæði á sál og líkama og bara get ekki hugsað mér meiri tölfræði. Kominn með allan pakkann, ógleði, svima, bakverki og vöðvabólgu. Ætla núna að reikna tvö dæmi í viðbót og þar sem er mínum undirbúningi lokið. Þarf svo að fara yfir efnið, punkta hjá mér og eyrnamerkja bókina, hvar hvað er o.s.frv. Svo er bara að treysta á guð og lukkuna.
Agust skrifaði kl. 20:10
Flokkun: Daglegt líf

Floppy disk R.I.P.

Á BBC-vefnum er "minningargrein" um floppy diskinn.
Ég nota ennþá floppy disk - í einum tilgangi - til að færa skjöl frá fartölvunni yfir í borðtölvuna (eða öfugt).
Ég man ennþá hvað það pirraði mig að vélritunarkennarinn minn í Verzló talaði aldrei um diskettur, heldur skífur. "Jaáááá... þið þurfið að skila skífunum ykkar með verkefnunum..." Hljómar einsog það sé rosalega langt síðan... sem það er.
Ég á ennþá eftir ca. 10 stk. af floppy diskettum þannig ég þarf ekki að örvænta. Ég á líka einhverra hluta vegna óupptekinn kassa með 5 1/2" mjúkum floppy diskettum. Sá er heldur betur kominn til ára sinna. Reyndar voru litlu disketturnar búnar að ryðja sér til rúms. Aftur á móti voru þær bara 720 kb. þegar ég byrjaði að fikta við tölvur. Þá áttum við Makkintoss tölvu sem var með svart/hvítum ca. 8" skjá en með hörðum diski og prentara. Það var merkilegt tæki.
Agust skrifaði kl. 14:52
Flokkun: Tækni&tól