maí 11, 2003

Mæður

Í dag er mæðradagurinn. Tradisjónan á mínu heimili er að mæður fái blóm á konudaginn en þessi dagur hefur enga merkingu fyrir mig þannig, enda vissi ég ekki af honum fyrr en í gær. Kannski ég sé ómögulegur sonur, má vera.

Aftur á móti verð ég að koma hér að tilvitnun í Woody Allen úr Manhattan.
(Fyrrverandi kona W.A. í myndinni er nú í sambúð með annarri konu og hefur forsjá yfir barni þeirra)
Diane Keaton: Two mothers are absolutely fine.
Woody Allen: Really? Because I always feel very few people survive one mother.
En ætli ég verði ekki að bæta upp þetta mean comment um mæður með að vitna í Gyðinga. "Guð getur ekki verið alls staðar, þess vegna eru mæður".
Agust skrifaði 11.05.03 20:11

Flokkun: Daglegt líf , Menning , Ísland