maí 26, 2003

Transformer

Ég er núna að hlusta á plötuna Transformer með Lou Reed.
Ég verð nú bara að segja að þetta er alveg helv. góð plata!

Lögin Perfect Day og Walk on the Wild Side standa óneitanlega upp úr. Einnig eru Vicious og Hangin' Round ansi góð. Sem heild er platan alveg þrusugóð. Þau leynir sér ekki, jafnvel ekki fyrir amatöra, Bowie-áhrifin, en David Bowie pródúseraði plötuna ásamt Mick Ronson, sem var víst hans hægri hönd á þessum tíma.
Textarnir hans Lous er oft á tíðum með mjög svarta kómík. Walk on the Wild Side er sjálfsagt þekktastur af þeim.
Jackie is just speeding away,
Thought she was James Dean for a day
Then I guess she had to crash, Valium would have helped that bash
Vicious er svolítið creepy:
Vicious
Hey, why don't you swallow razor blades
You must think I'm some kinda gay blade
But baby, you're so vicious
When I watch you comin' You're not good and you certainly aren't very much fun
When I see you walkin' down the street
I step on your hand and I mangle your feet
You're not the kind of person that I even wanna meet
'Cause you're so vicious
Make Up er einskonar söngur klæðskiptingsins:
When you're in bed it's so wonderful
It'd be so nice to fall in love
When you get dressed I really get my fill
People say that it's impossible".
Transformer með Lou Reed, góð plata með eftirtektarverðum textum og undir Bowie-áhrifum - sem er gott - í stuttu máli sagt, ein til að hafa uppi við.
Agust skrifaði 26.05.03 22:21 | TrackBack

Flokkun: Menning
Comments

Ef eg man rett tha er textinn i "Take a walk on the wild side" byggdur a leikriti eftir Andy Warhol.

Oli skrifaði 27.05.03 09:07

Krípí? Jah, það er líka krípí að raka allt hárið af hunangsbjörnum! Hehehe.

Sibba skrifaði 27.05.03 11:12

Auðvitað er ég svo búinn að fylgja þessu eftir með að spila Velvet Underground (& Nico) í dag :)

Ágúst skrifaði 27.05.03 22:22

Eins góður og Velvet Underground & Nico er þá er síðasti diskur V.U., Loaded, mikið mun betri! Hlustaðu frekar á hann, sérstaklega þar sem að Loaded og Transformer eru frekar tengdir (Transformer er næsti diskur Reed eftir Loaded og áttu mörg lög á Transformer að vera á Loaded en komust ekki fyrir).

Svan skrifaði 28.05.03 14:54