maí 27, 2003

The Incredible String Band

Fyrir rúmri viku hafði ég aldrei heyrt minnst á The Incredible String Band. Eftir að hafa hinsvegar heyrt af heljarstökki Sibbu yfir komu þeirra til landsins náði ég í nokkur lög með þeim á netinu.
Ég verð bara að segja að þetta er hið fínasta band. Fín folk tónlist, svona skemmtilegt hippa-folk. Hippa-folk er flottasta folkið, ásamt celtic-folki.
Í sérstöku uppáhaldi hjá mér, af þessum lögum sem ég hef sótt á netið, eru The Hedgehog's Song og First Girl I Loved, bæði af plötunni The 5000 Spirits or the Layers of the Onion (frá '67). Ef ég rekst á þá plötu einhvers staðar mun ég án efa kaupa hana.
Textarnir eru oft stórskemmtilegir. Sumum gæti þó þótt þeir full mikið skrítnir... einsog t.d. The Water Song, nú eða The Hedgehog's Song. Það breytir því ekki að ég fíla þá, súrrealískir og skemmtilegir.
Skemmtileg tónlist. Engin partýtónlist en klassatónlist til að hlusta á í einrúmi, þar sem enginn er til að gera grín að manni fyrir að hafa skrítinn tónlistarsmekk :)
Agust skrifaði 27.05.03 02:14 | TrackBack

Flokkun: Menning
Comments

Hmmmm, þýðir þetta að ég hef einhvern að sitja hjá á föstudaginn? Ekki það að það sé leiðinlegt að vera einn á tónleikum. En fólki líður illa í kringum einhverja sem sitja einir og brosa hringinn. Og ekki er það markmiðið að láta fólki líða illa, ó sei sei nei. 8D

Sibba skrifaði 27.05.03 11:16

Hmm... þegar svona hippahljómsveitir koma með kommbökk þá hefur mér sýnst það yfirleitt vera af fjárhagslegum ástæðum og menn að nýta sér eftirspurn þó þeir séu ekkert endilega í standi til að "rifja upp gamla takta". Enda svosem ekki við miklu að búast þegar menn hafa ekki spilað í 30 ár og varið þeim tíma aðallega í misjafnlega harðri vímu.

Ég sá t.d. fyrir stuttu upptöku með The Doors - nei, Jim Morrison var ekki í andaglasi - og það var bara skelfilegt. Japanskt karókíband hefði ekki nauðgað laginu svona!

Á móti kemur að Bob Dylan er enn í fullu fjöri (og m.a.s. að gefa út nýtt klassaefni), þannig kannski þetta sé öðruvísi með folk-tónlistarmenn. Enda krefst folk þess ekki að menn haldi takti á trommunum svo hratt að undir lok lagsins hefur takturinn hægst um helming og sextugi dópistinn á trommunum lítur út eins hann sé að koma úr maraþonhlaupi :)

Hvað tónleikana varðar þá eru fjögur þúsund krónur smá strik í tékkareikninginn hjá fátækum, atvinnulausum námsmönnum með of stóran expense account fyrir. Ég væri samt alveg til í að fara á þessa tónleika, sérstaklega þar sem þeir eru í Íslensku óperunni. Miklu skemmtilegri staður fyrir svona en t.d. Háskólabíó.

Þetta er allavega helv. freistandi.

Ágúst skrifaði 27.05.03 13:05