maí 27, 2003

Led Zeppelin Live

Guðni Már á Rás 2 fær hrós fyrir að spila 20+ mín. upptöku af tónleikum með Led Zeppelin þar sem þeir spila Whole Lotta Love. Tónleikar í LA Forum 27. júní 1972.

Einhver nýr, þrefaldur diskur kominn á markað með djúsí upptökum með þessari hljómsveit. How the West Was Won heitir hann víst.

Sumar hljómsveitir eru ekkert spes á tónleikum, aðrar góðar. Örfáar eru aftur á móti yfirnáttúrulegar. Led Zeppelin er í síðastnefnda flokknum.

Ég er alveg dolfallinn eftir þessa hlustun.

Þriðja tónlistarfærslan í röð á síðunni. Hvað er að gerast??
Agust skrifaði 27.05.03 15:24 | TrackBack

Flokkun: Menning