maí 28, 2003
Nátttröllið
Vil bara benda á þennan pistil Jóns Steinarssonar á Deiglunni: Glæfralegar tillögur félagsmálaráðherraÞar segir hann m.a.
Þessar tillögur eru með hreinum ólíkindum. Í fyrsta lagi samrýmast þær engan vegin stefnu ríkisstjórnarinnar um að viðhalda stöðugleika í efnahagsmálum á kjörtímabilinu. Útlánaaukningin sem tillögur af þessari stærðargráðu gætu haft í för með sér myndi valda gríðarlegri þenslu á húsnæðismarkaði og í byggingageiranum á sama tíma og stórar framkvæmdir verða í gangi á Austurlandi. Seðlabankinn mun ekki sitja aðgerðarlaus á hliðarlínunni og horfa á slíka þenslu skola burtu stöðugleikanum. Til þess að ná verðbólgumarkmiði sínu mun bankinn þurfa að hækka vexti talsvert umfram það sem annars verður. Slíkar vaxtahækkanir myndu leiða til hærra gengis, sem aftur myndi hafa í för með sér meiri þrengingar í útflutnings og samkeppnisiðnaði.Einar Örn minntist á sama mál á síðunni sinni. Þar kommentaði ég eftirfarandi:
En tillögurnar eru ekki slæmar einungis vegna þess að þær ógna stöðugleikanum. Með þessum tillögum virðist félagsmálaráðherra algerlega hafa misst sjónar á tilgangi húsnæðiskerfisins. Á það virkilega að vera hlutverk hins opinbera að tryggja það að fólk geti keypt 20 milljón króna fasteignir? Nei! Tilgangur húsnæðiskerfisins á að vera að hjálpa ungu og efnalitlu fólki að eignast sína fyrstu fasteign. Kerfið á að ýta undir almenna húsnæðiseign, ekki almenna einbýlishúsaeign.
Síðast þegar ég sá spá Seðlabankans fyrir 2007 var hún álíka góð og söngurinn hjá Halldóri Ásgrímssyni.Ég ætla til gamans að birta hérna mynd úr fyrirlestri Más Guðmundssonar í apríl s.l. þar sem sýnd er hagvaxtarspá m.v. annars vegar einungis framkvæmdir Alcoa og hinsvegar m.v. að stækkun Norðuráls fari líka í framkvæmd á sama tíma. Fyrirlesturinn í heild sinni má nálgast hér. Áhugaverður fyrirlestur sem Már hélt á fundi sem Félag stjórnmálafræðinga hélt.
Það að Flokkurinn skuli hafa samþykkt þetta ber vott um það að þessi blessuðu löglærðu þingmenn okkar hefðu betur lært hagfræði.
Íbúðalánasjóður var einmitt alltaf kallaður "Nátttröllið" af kennaranum mínum í fjármálamörkuðum. Sá er yfirmaður niðri í Seðlabanka.
[...]
Já, maður verður pirraður!
![]() |
![]() |
Mæli með að fólk skoði glærurnar frá fyrirlestri Más, sérstaklega tillögurnar að því hvernig draga á úr hnjaski útflutnings- og samkeppnisgreina. Ég skal gefa ykkur vísbendingu, þar er ekki mikið spáð í hversu miklu af "álversgróðanum" eigi að verja í skattalækkanir og hversu miklu í gæluverkefni.
Agust skrifaði 28.05.03 14:17 | TrackBack
Flokkun: Hagfræði , Meðmæli , Stjórnmál , Viðskipti , Ísland

