maí 29, 2003

Turk 182

Á mánudagskvöldið horfum við Þórir á eighties-myndina Turk 182!
Ég veit ekki hvort það sé sanngjarnt að dæma þessa mynd, þar sem ástæðan fyrir því að við horfum á hana var dulítið sérstök.
Þannig var að fyrir allnokkru síðan hittum við Stebba Páls á Ara í Ögri. Þar sagði Stefán "Turk 182" við eitthvað tækifæri, sem ég er löngu búinn að gleyma hvert var. Við Þórir hváðum og fengum þá skýringuna á "orðtakinu".

Turk 182 er bíómynd frá árinu 1985 og svo vitnað sé í SP sjálfan um einhvern slökkviliðsmann sem er beittur misrétti og þá fer bróðir hans í herferð og skrifar út um alla borgina "Turk 182" og svo er einhver illur borgarstjóri og eitthvað svona kjaftæði, hræðilega léleg mynd. Undir þetta getum við Þórir alveg tekið. En hver er skýringin á orðtakinu "Turk 182", sem SP sagði vera frasi sem heil kynslóð tók upp um það leyti sem myndin gekk í kvikmyndahúsum borgarinnar.
Turk 182 var þýdd sem "Illa farið með góðan dreng". Svo sem alveg í takt við söguþráðinn en gott dæmi um snilldar óskiljanlegar þýðingar íslenskra þýðenda á titlum kvikmynda ("Á tæpasta vaði", "Tveir á toppnum" etc). Frasinn "Turk 182" var sumsé notaður í stað orðtaksins "illa farið með góðan dreng".

Myndin fellur aftur á móti í þann flokk kvikmynda 9. áratugarins sem líður fyrir handrit sem maður skilur ekki að nokkur láti creditera sig fyrir! (svona ef að "plottið" gaf það ekki skýrmerkilega til kynna að það væri ekkert rosalega flott)
Eitt skondið við myndina að Samantha (Kim Cattrall) úr Sex and the City leikur veimiltítulegan félagsráðgjafa (sem reyndar er einn af mörgum frekar ósannfærandi karakterum sem maður skilur ekki alveg hvernig kemur til sögunnar).

Í stuttu máli sagt, 3. flokks eighties-mynd sem er þess virði að horfa á hana bara upp á "cultið" og geta sagst hafa séð hana.
Agust skrifaði 29.05.03 18:41 | TrackBack

Flokkun: Menning
Comments

man einmitt eftir þessari mynd. Var rosalega lengi til á vhs á jóh setrinu en svo eyðilagðist spólan. Góð mynd í minningunni.

Gummi Jóh skrifaði 29.05.03 21:16