maí 29, 2003
Turk 182
Á mánudagskvöldið horfum við Þórir á eighties-myndina Turk 182!Ég veit ekki hvort það sé sanngjarnt að dæma þessa mynd, þar sem ástæðan fyrir því að við horfum á hana var dulítið sérstök.
Þannig var að fyrir allnokkru síðan hittum við Stebba Páls á Ara í Ögri. Þar sagði Stefán "Turk 182" við eitthvað tækifæri, sem ég er löngu búinn að gleyma hvert var. Við Þórir hváðum og fengum þá skýringuna á "orðtakinu".
Lesa áfram
maí 28, 2003
Nátttröllið
Vil bara benda á þennan pistil Jóns Steinarssonar á Deiglunni: Glæfralegar tillögur félagsmálaráðherraÞar segir hann m.a.
Lesa áfram
maí 27, 2003
Dante's Inferno
Tók þetta test sem Unnur bendir á. Þó ég hafi haft það fyrir reglu undanfarið að birta ekki svona vitleysu hérna á síðunni, fannst mér þetta bara svo skemmtilegt að ég ákvað að birta það.Lesa áfram
Kaldhæðni
Mér var bent áðan á nokkuð skondna staðreynd."Fjórði maðurinn" í Landsbanka-svikamyllunni er með lögheimili í Garðabænum. Þar er einnig skráð einkahlutafélagið Hafskip, sem skv. kennitölunni er skráð í febrúar síðastliðnum.
Uppfært: Þetta hefur víst komið fram í fréttum.
Led Zeppelin Live
Guðni Már á Rás 2 fær hrós fyrir að spila 20+ mín. upptöku af tónleikum með Led Zeppelin þar sem þeir spila Whole Lotta Love. Tónleikar í LA Forum 27. júní 1972.Einhver nýr, þrefaldur diskur kominn á markað með djúsí upptökum með þessari hljómsveit. How the West Was Won heitir hann víst.
Sumar hljómsveitir eru ekkert spes á tónleikum, aðrar góðar. Örfáar eru aftur á móti yfirnáttúrulegar. Led Zeppelin er í síðastnefnda flokknum.
Ég er alveg dolfallinn eftir þessa hlustun.
Þriðja tónlistarfærslan í röð á síðunni. Hvað er að gerast??
The Incredible String Band
Fyrir rúmri viku hafði ég aldrei heyrt minnst á The Incredible String Band. Eftir að hafa hinsvegar heyrt af heljarstökki Sibbu yfir komu þeirra til landsins náði ég í nokkur lög með þeim á netinu.Ég verð bara að segja að þetta er hið fínasta band. Fín folk tónlist, svona skemmtilegt hippa-folk. Hippa-folk er flottasta folkið, ásamt celtic-folki.
Í sérstöku uppáhaldi hjá mér, af þessum lögum sem ég hef sótt á netið, eru The Hedgehog's Song og First Girl I Loved, bæði af plötunni The 5000 Spirits or the Layers of the Onion (frá '67). Ef ég rekst á þá plötu einhvers staðar mun ég án efa kaupa hana.
Textarnir eru oft stórskemmtilegir. Sumum gæti þó þótt þeir full mikið skrítnir... einsog t.d. The Water Song, nú eða The Hedgehog's Song. Það breytir því ekki að ég fíla þá, súrrealískir og skemmtilegir.
Skemmtileg tónlist. Engin partýtónlist en klassatónlist til að hlusta á í einrúmi, þar sem enginn er til að gera grín að manni fyrir að hafa skrítinn tónlistarsmekk :)
maí 26, 2003
Transformer
Ég er núna að hlusta á plötuna Transformer með Lou Reed.Ég verð nú bara að segja að þetta er alveg helv. góð plata!
Lögin Perfect Day og Walk on the Wild Side standa óneitanlega upp úr. Einnig eru Vicious og Hangin' Round ansi góð. Sem heild er platan alveg þrusugóð. Þau leynir sér ekki, jafnvel ekki fyrir amatöra, Bowie-áhrifin, en David Bowie pródúseraði plötuna ásamt Mick Ronson, sem var víst hans hægri hönd á þessum tíma.
Textarnir hans Lous er oft á tíðum með mjög svarta kómík. Walk on the Wild Side er sjálfsagt þekktastur af þeim.
Lesa áfram
Lexía dagsins
Alltaf að skila inn ársreikningi á réttum tíma.Þetta er eitthvað sem ég hélt að allir - sérstaklega atvinnuglæponar - pössuðu sig á. Maður klikkar ekki á svona smáatriðum.
Skondið í ljósi nýjustu frétta að Valdimar Hergeirs minntist þess einmitt fyrir stuttu að eitt af því eftirminnilegasta frá hans kennsluferli var þegar Árni Þór Vigfússon náði bókfærsluprófinu í 6. bekk í Verzló. Svo lélegur var hann að Valdimar hafði lofað móður hans, sem hann kannaðist við, hægri handleggnum ef drengurinn stæðist prófið.
Pjakkurinn féll svo sannarlega á bókhaldinu þarna.
maí 25, 2003
Sjálfsvígstíðni
Staðreyndir verða oftast áþreyfanlegri þegar þær eru settar í rétt samhengi.Siggi pönk kemur með athyglisverða staðreynd í dagbókinni sinni í dag:
Afhverju hvíslumst við á um staðreyndir þess að á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi kemur að meðaltali ein sjálfsmorðstilraun á átta klukkustunda fresti. Og það eru bara þau sem plönin ganga ekki upp hjá.Þarna er bara verið að tala um Lsp. í Fossvogi og þar með ekki öll tilfellin sem skráð eru úti á landi. Rosalega tala, sem samt kemur manni ekkert rosalega á óvart, því miður.
Draumurinn
Stebbi Páls skrifar um lokun draumsins:Og hverjum hefur Júlli í Dramnum verið að selja sprútt? Unglingum undir lögaldri? Fullorðnu fólki eftir lokun í ríkinu? - Nei, þessir hópar kaupa sér áfengi með öðrum leiðum. Krakkarnir múta fullorðnum til að kaupa fyrir sig, en aðrir fá áfengi selt út af veitingastöðum.Ef rétt er hjá Stebba, með kúnnahópinn, er ég alveg sammála honum um, að þarna er rétttrúnaðarhugsunarhátturinn við völd. Ekki horft á heildarmyndina, heldur fókuserað á aðeins hluta af heildarmyndinni.
Draumurinn hefur selt rónunum og ofdrykkjufólkinu sem fær ekki afgreiðslu annars staðar. Það leitar meðal annars í Drauminn af því að þar fær það að vera inni, ef það er til friðs. Það fær að hlýja sér þegar veðrið er leiðinlegt og það er komið fram við það af meiri virðingu en gerist og gengur annars staðar.
Hvað halda menn að vinnist með því að bösta Drauminn - að stöðva þessa sölumennsku sem þar hefur átt sér stað í allra vitorði í mörg ár? Halda menn kannski að rónarnir hætti að drekka? Eða að rauðsprittið fari eitthvað betur með þá?
Fyrir nokkrum misserum gengu löggan og borgin í það að loka Keisaranum. Mikil var undrun þeirra þegar í ljós kom að þótt Keisarinn hyrfi hættu viðskiptavinirnir ekki að vera til. Sumir þeirra römbuðu meira að segja niður í miðbæ þar sem þeir öngruðu menningarpakkið jafnvel ennþá meira með því að drekka á Austurvelli eða ég veit ekki hvað.
Lokun Keisarans var að margra mati mistök. Stundum þarf að líta framhjá smávægilegum misfellum, þegar meira skaði er unninn með að fara eftir lagabókstafnum.
Júróvisjón
Í gær horfði ég á Júróvisjón í fyrsta skiptið í mörg ár. Hef yfirleitt horft í mesta lagi á stigagjöfina.Stigagjöfin er skemmtilegt fyrirbrigði - út frá félagsvísindalegu sjónarhorni. Grikkir gefa Kýpverjum, Portúgalir Spánverjum, Rússar Úkraínumönnum og Þjóðverjar Tyrkjum og Rússum.
Þrjú lög vöktu athygli mína og stóðu að mínu mati töluvert uppúr. Lögin frá Austurríki, Belgíu og Tyrklandi stóðu upp úr. Commercial lesbíurnar frá Rússlandi voru með leiðinlegt lag en ég missti af því í sjónvarpinu, heyrði það bara í útvarpinu. Hef heyrt t.A.t.U. lög sem eru fín. Þetta lag var bara leiðinlegt. Sem betur fer unnu þær ekki keppnina. Austurríska lagið var skemmtilegt, Belgíska var skemmtilegt semi-folk og svo var tyrkneska lagið með skemmtilegum austrænum áhrifum. Reyndar þegar ég heyrði það aftur í dag í útvarpinu var það ekki eins gott og í sjónvarpinu. Stendur ekki alveg jafn vel undir sér hvað það varðar. Það verður hinsvegar áhugavert að sjá hvernig Tyrkir munu spila úr keppninni á næsta ári.Sjálfur fór ég aldrei þessu vant í "júróvisjónpartý", sem var fámennt en góðmennt. Þessi árlega keppni er einn stór brandari. Því miður brandari sem kostar Sjónvarpið og þar sem skattgreiðendur margar margar milljónir. Það sem við fáum aftur á móti út úr þessu eru 2-3 lög árlega sem hægt er að hlusta á og svo ein 20 sem eru misjafnlega léleg. Síðan getur maður hlegið að sumu, t.d. rúmenska laginu og sjóvinu sem því fylgdi og textanum hjá Lettunum. Rokkararnir frá Eistlandi sungu líka víst á ensku, þó ég fattaði það ekki fyrr en í miðju lagi, skyldi ekki framburðinn fyrr.
maí 24, 2003
Langdregnasta auglýsing í heimi
Ég er ekki frá því að ég hafi verið að horfa á einhverja allra langdregnustu auglýsingu sem ég hef séð."Lengsta auglýsing í heimi" frá Brimborg, svona fyrir þá sem átta sig ekki á því um hvaða auglýsingu ég er að tala.
Djö.
Þetta er bara ekki að ganga.Hvernig á eiginlega að vera hægt að færa færslur úr Blogger yfir í þetta kerfi?? Ég fylgi leiðbeiningunum en það bara virkar ekki.
Arg!!
MT
Eftir þó nokkuð vesen - og dygga aðstoð Más - tókst mér að setja upp MT á sörvernum mínum.MT-prufan er hér.
maí 22, 2003
Tíðindi
Ja hérna! Nú kom Davíð mér aldeilis á óvart. Dömpaði Sólveigu úr ríkisstjórn (sem er gott) og - stórtíðindin - Þorgerður Katrín verður menntamálaráðherra frá áramótum. Það eru auðvitað góðar fréttir.Því miður verður Sturla áfram í ríkisstjórninni en maður getur ekki alltaf fengið allt.
Sushi og hausmælingarkeppni
Í gær Unnur og Bjarni mér í sushi. Ég hef aldrei áður smakkað sushi. Ég hef aldrei áður þorað. Sushi fyrir mér hefur verið svona u.þ.b. eina fæðutegundin sem ég hef hræðst að borða. Ég gæti gert langan lista yfir furðulegan mat sem ég hef ekki veigrað mér við að láta ofan í mig en sushi hefur einhvern veginn alltaf "hrætt" mig. Ég bara trúi ekki að hrár fiskur geti verið góður.Lesa áfram
maí 21, 2003
Ministry of Silly Walks
Maureen Dowd skrifar um mjög svo creepy prógramm hjá bandarískum yfirvöldum, Walk This Way. Menn ætla sér að geta greint eftirlýsta hryðjuverkamenn með því að skanna göngulag fólks og leita eftir "rétta göngulaginu" við leit að hryðjuverkamönnum. Já, þetta hljómar of lygilegt til að vera satt.Lesa áfram
Imperíalískt hlutverk
Tómas Friedman skrifar pistil í New York Times um sinnuleysi Bandaríkjamanna í Írak, Bored With Baghdad — Already.Lesa áfram
maí 20, 2003
The Pink and the Black
Hin yndislega kaldhæðna Maureen Dowd skrifaði pistil í NYT um helgina, The Pink and the Black, þar sem hún ber saman nýjustu "strákamyndina" og nýjustu "stelpumyndina", því einsog hún orðar það sjálf "One thing that never changes, decade in and century out, is Hollywood's dishing up gender-specific dreamscapes".At multiplexes this weekend, Keanu Reeves is on a quest to find out if he is The One. And Renée Zellweger is on a quest to find The One.Svo undir lokin heimfærir hún Matrix "kúlleikann" yfir á Bush og hvernig atriðið... ræðan hans á flugmóðurskipinu var einsog klippt út úr Top Gun og fleira í þeim dúr.
Mr. Reeves, as Neo, goes on a dark, violent odyssey where his strength and character are tested. Ms. Zellweger, as a cute blonde chasing a suave writer at Know, the magazine for men in the know, goes on a pink, fluffy odyssey where her wiles and allure are tested.
Skemmtilegur pistill.
"Stuff happens"
America is the occupying power of Iraq. It has legal obligations, and one of them is to secure mass graves and not to simply dismiss looting, as Secretary of Defense Donald Rumsfeld did, with his shameful toss-off line: "Stuff happens." People expect more from us. The U.S. military executed its war plan with great efficiency and decency. For that, most Iraqis are grateful, and every American can be proud. But when it comes to securing the peace, either there was no plan, or those executing it simply did not have the manpower or know-how to pull it off.- Thomas Friedman í New York Times (Two Right Feet)
maí 16, 2003
Úthverfin
Skemmtilegur pistill hjá Tomma.Sjálfur myndi ég aldrei búa í úthverfunum sjálfviljugur, en það er aukaatriði. Það er aftur á móti fyndið hvernig fólk sem býr í Reykjavík lítur á úthverfin sem eitt samfellt terratory. Ég veit t.d. ekki um neina aðra en fólk sem býr vestan Kringlumýrarbrautar sem lítur á Breiðholtið "á leiðinni" í Hafnarfjörð! Ekki það að einsog ég hef margoft sagt að ég bý hvort eð er svo langt í burtu að aðeins Akranes og Selfoss er ekki "í leiðinni" heim úr Reykjavík.
Ég held líka að Tommi sé ekki eini maðurinn sem hefur fengið póst "112 Grafarvogur" :-)
Klane Haserl haben kurze Naserl
Ég ætla sko svo sannarlega að kjósa austurríska lagið í Eurovision. Það er næsta víst!Lagið með Birgittu verður löngu gleymt áður en lag nr. 2 verður búið. Alveg hreint týpískt eurovision-lag, m.ö.o. leiðinlegt.
Ef Birgitta syngi ekki þessa froðu, hefði Botnleðja unnið. Það hefði verið frábært. Fyrst Botnleðja (með sitt skemmtilega lag) og svo austurríski ruglukollurinn þar á eftir að syngja um öll dýrin. Þá hefði maður horft á Eurovision!
Ég verð samt skv. þessum nýjustu upplýsingum að horfa á a.m.k. fyrstu tvö lögin. Sjá hvernig froðan hennar Birgittu kemur út (*geisp*) og svo syngja með "Die Hosn leben im Woid / Die Kotzn in da Wiesn / Und die Kakerlaken / Die leben hinter die Fliesn". Je!
Þó svo að ég sé orðinn assgoti ryðgaður í þýskunni, þá sýnist mér þetta ekki aðeins vera austurrísk mállýska heldur grunar mig að það sé töluvert um orðatilbúning og þó svo að maður geti skilið sum orðin í laginu, er ég nokkuð viss um að þau séu ekki alveg rétt skrifuð. En aðalatriðið er líka að hafa gaman að þessu :-)
maí 14, 2003
Matrix 2
Mér leiddist Matrix myndin (fyrri). Furðulegt að mörgum kemur það rosalega á óvart, yfirleitt þá með orðunum "ég hélt einmitt að þú myndir fíla hana, þú veist að hún er notuð við kennslu í heimspeki?".Nú er framhaldsmynd Matrix komin og sá ég brot úr henni í auglýsingu í sjónvarpinu í gær. Ég verð að segja að ég uppgötvaði ekki að þetta væri brot úr Matrix 2 fyrr en það lógóið birtist undir lokin. Mig grunaði frekar að þetta væri brot úr Lost in Space IV eða eitthvað álíka vitlaust.
New York Times er með dóm um myndina. Ég reyndar nennti ekki að lesa dóminn en útdrátturinn segir:
The action sequences are viciously elegant, but there is a dispiriting more-of-the-same aspect to the first "Matrix" sequel.Sjá nánar NYT: An Idealized World and a Troubled Hero
ps. Þetta er líklegasta ein skondnasta kosningafréttin: Meirihluti meðmælenda Nýs afls í NV-kjördæmi kaus ekki listann (bb.is)
maí 13, 2003
Hugsjónir og völd
Athyglisverð grein um Bill Frist, leiðtoga repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings í hinu stórgóða New York Times Magazine: The Price of PowerFyrsta fórnarlambið þegar menn komast til áhrifa virðist alltaf vera hugsjónir þeirra. "Vald spillir" og allur sá pakki. Fín grein um hvernig kaupin á eyrinni ganga fyrir sig í Washington.
Lesa áfram
maí 12, 2003
Glæpur og refsing
Ég var að fá fjöldapóst í dag, þar sem fólk er kvatt til að skrifa undir bænaskjal til breskra yfirvalda, til að reyna að koma í veg fyrir að morðingjum James Bulger verði sleppt.Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 22:24
| Comments (1)
Flokkun: Heimspeki , Internetið , Lög&réttur , Menning , Stjórnmál
Flokkun: Heimspeki , Internetið , Lög&réttur , Menning , Stjórnmál
maí 11, 2003
Það er aðeins einn Hannes
Hannes kallað viðmælanda sinn í Silfrinu "kaffihúsaspeking" sem sé ekki í einum tengslum við íslenskan raunveruleika. Svo þegar viðmælandinn bregst við því að benda á að HHG sé opinber starfsmaður, þá bregst Hannes (að sjálfsögðu) hinn versti við og segir þetta týpískt fyrir "persónulegar árásir" Samfylkingarinnar.Það væri óskandi að allir í íslenskri pólitík kynnu sig jafn vel og væru jafn kurteisir og lausir við persónuleg hælbit einsog Hannes Hólmsteinn.
Hver annar en Hannes Hólmsteinn Gissurarson?
Mæður
Í dag er mæðradagurinn. Tradisjónan á mínu heimili er að mæður fái blóm á konudaginn en þessi dagur hefur enga merkingu fyrir mig þannig, enda vissi ég ekki af honum fyrr en í gær. Kannski ég sé ómögulegur sonur, má vera.Aftur á móti verð ég að koma hér að tilvitnun í Woody Allen úr Manhattan.
(Fyrrverandi kona W.A. í myndinni er nú í sambúð með annarri konu og hefur forsjá yfir barni þeirra)En ætli ég verði ekki að bæta upp þetta mean comment um mæður með að vitna í Gyðinga. "Guð getur ekki verið alls staðar, þess vegna eru mæður".
Diane Keaton: Two mothers are absolutely fine.
Woody Allen: Really? Because I always feel very few people survive one mother.
1. þm Reykjavíkur-norður
Össur Skaphéðinsson 1. þ.m. Reykjavíkur-norður. Hvað næst? Sigrar Birgitta Eurovision?Fáránlegt. Hræðilegt.
Athyglisvert að bera saman tölurnar milli RvkN og RvkS. Nokkur munur þar á milli.
maí 09, 2003
Íran næst?
Góð grein hjá Charles V. Peña, sem er yfir defence studies hjá Cato Institute: Is Iran Next on Washington's Hit List?Pistillinn er reyndar síðan í haust en Cato bendi aftur á hann í tengslum við fréttir af því að ráðamenn í Íran séu að endurskoða samskiptin við Bandaríkjamenn.
maí 04, 2003
Kringlukráin
Fór áðan ásamt fjórum öðrum á Kringlukránna, enda allt annað lokað í Kringlunni og mannskapurinn orðinn mjög svangur.Við setjum inn og á sama tíma kom kona með dóttur sinni inn.
Eftir sléttan klukkutíma fengum við loks matinn okkar. Tíu mínútum áður hafði konan og dóttirin farið út, búnar að borða.
Ekki nóg með að maturinn kæmi ekki fyrr en eftir klukkutíma, heldur pantaði María Björk pizzu með skinku, sveppum og svörtum pipar. Hún fékk pizzu með skinku, hitt var ekki til.
Við kvörtuðum, vitanlega, þegar komið var að því að borga. Viska er með fastan 10% afslátt, gott og vel. Við sem biðum í klukkutíma og fengum aftur á móti 15% afslátt og sú sem fékk allt annað en hún pantaði fékk 20%! Með öðrum orðum fengum við 5% og 10% afslátt fyrir þessa lélegu þjónustu.
Ég er ekki sáttur, þið metið sjálf hvort þetta sé boðlegt fyrir alla þessa bið.
Pastabætt sjávarréttasúpa
Í kvöld eldaði ég ágætan mat. Afskaplega einfaldan en glettilega góðan. Samsetningin skapaðist af því hvað var til og var sem hér segir:Tvær dósir af tilbúinni humarsúpu frá Ora. Þetta er niðursoðin súpa í stíl við Chambell og alveg ótrúlega góð. Ég hef það fyrir satt að mörg hótel og jafnvel betri veitingastaðir noti þessa súpu sem undirstöðu í sínar humarsúpur, bæti þá bara humar út í og e.t.v. öðru sjávarfangi ef við á. Krabbasúpan er líka góð frá Ora.
Hvað um það, ég var svo lánsamur að eiga hvíta hörpuskel í frystinum og afþýddi hana (ca. 250 gr).
Þar sem mér fannst þetta ekki alveg nægur "matur" sauð ég 100 gr. af Farfalle pastaslaufum.
Steikti hörpuskelina með hvítlauk og bætti svo í súpuna þegar ég hitaði hana upp. Smá koníakstár út í súpuna líka og simmsalabimm kominn kvöldmatur á rúmum 10 mínútum.
Þetta dugar vel fyrir tvo, a.m.k. var drjúgur afgangur og ég var alveg pakksaddur.
Rummy people og Powell people
Maureen Dowd fjallaði um flokkadrættina í Washington milli utanríkisráðuneytisins og hernaðarráðuneytisins í vikunni (He's Out With the In Crowd). Þar súmmar hún upp skiptinguna:There are Rummy people: Mr. Cheney, Mr. Wolfowitz, Mr. Feith, Bill Kristol, William Safire, Ariel Sharon, Fox News, National Review, The Weekly Standard, the Wall Street Journal editorial board, the fedayeen of the Defense Policy Board — Richard Perle, James Woolsey, Mr. Gingrich, Ken Adelman — and the fifth column at State, John Bolton and Liz Cheney.Hún líkur síðan pistlinum á því að vitna í skipurit sem var kynnt og sýndi goggunarröðina hjá þeim sem eiga að endurskipuleggja Írak.
And there are Powell people: Brent Scowcroft, James Baker, Bush 41, Ken Duberstein, Richard Armitage, Richard Haass, the Foreign Service, Joe Biden, Bob Woodward, the wet media elite, the planet.
Even the time on the chart was "1700," for 5 p.m.New York Times hefur nú minnkað ennfrekar tímann sem hægt er að skoða greinar á nytimes.com aftur í tímann. Sýnist það komið niður í viku. Það er alls ekki góð þróun.
Diplomacy in Washington now runs on military time.
maí 02, 2003
Úraníum stolið í Írak
Ekki aðeins hluta af menningararfi heimsins var stolið undir vökulum augum bandaríska frelsis-hersins, heldur líka úraníumi ef marka má viðtöl al-Jazeera við tvo íraska vísindamenn í vikunni. MEMRI greinir frá.Lesa áfram
Að tapa áttahundruð sætum
Í bresku sveitastjórnakosningunum í gær tapaði Labour um 800 sætum. Íhaldsmenn unnu aftur á móti um 500 sæti og fengu flest atkvæði, 32% (sumir segja 35%) á móti 30% Labour. Iain Duncan Smith þykist eiga eitthvað í þessum sigri en svo er ekki, kjósendur voru fyrst og fremst að refsa Labour fyrir Íraksmálið og kjörsókn var mjög dræm, innan við 40%. Lib.Dems hefur aldrei gengið betur með 30%. Meðal þeirra borga sem Labour tapaði voru Birmingham, Bristol, Coventry og Exeter en í Birmingham er eitt hæsta hlutfall íbúa múslimar í Bretlandi.Í Burnley, þar sem kynþáttaóeirðir áttu sér stað fyrir nokkrum misserum, náði British National Party að verða næststærsti flokkurinn í borgarstjórn. BNP náði sætum í nokkrum borgum og bæjum í Norður-Englandi og m.a.s. á einum stað í N-London.
Í kosningum til skoska þingsins var sigurvegari kvöldsins Tommy Sheridan, átrúnaðargoð Stefáns Pálssonar, og Skoskir sósíalistar en þeir fengu fimm þingsæti í stað eins. Græningjar unnu líka á en þeir bættu líka miklu við sig í sveitastjórnarkosingum um allt Bretland.
Sjá líka: Vote 2003 at-a-glance (BBC).
maí 01, 2003
White Teeth
Ég verð að segja að þáttaröðin White Teeth á RÚV er alveg einstaklega áhugaverð. Fjallar um innflytjendafjölskyldu frá Bangladesh í Bretlandi. Segir sögu fjölskyldunnar með nokkra ára millibili. Nú er verið að sýna þriðja þáttinn af fjórum. Ég missti því miður af þeim fyrsta.Intresant þáttur um konfliktana sem innflytjendur reka sig oft á. Fjölskyldufaðirinn er leikinn af hinum geðþekka Om Puri.
Í síðasta þætti sendi fjölskyldufaðirinn annan soninn til Bangladesh, til að bjarga honum frá hinum spillta vestræna heimi. Nú, nokkrum árum síðar, er sonurinn sem varð eftir hjá foreldrunum orðinn díler og flýr að heiman. Á sama tíma fá þau myndband frá soninum í Bangladesh sem reynist breskari en allt sem breskt er - og athiest í þokkabót en faðirinn vildi að hann færi til Bangladesh til að alast upp sem góður og gegn múslimi.
Sonurinn sem varð eftir heima endar hinsvegar á að ganga til liðs við íslömsk samtök eftir að hann flýr að heiman. Skondin flétta er svo í kringum alla þessa atburði. Mjög góðir þættir, einsog áður sagði.
ps.
Ég verð að benda á þessi skrif Unnar. Unnur er klár stelpa sem hefur mjög skemmtilegar skoðanir á femínisma. Ég held m.a.s. að við sammála þar að mestu leyti.