júní 02, 2003

Bremsuborðar

Á föstudaginn var fór ég í Bílanaust og keypti bremsuborða í Fiat Brava 1.6 '97 módel. Endaði að kaupa þá uppi á Höfða, eftir að hafa farið fýluferðir í Bílanaust og Stillingu í Hafnarfirði og Kópavogi.
Á laugardaginn vorum við Arnór, frændi minn og bjargvættur bílsins míns, búnir að lyfta Fífínum upp á búkka og rífa gamla bremsu draslið undan með tilheyrandi átökum.
Þegar afrifurnar voru mátaðar við varahlutina úr Bílanausti kom í ljós að ekki var allt með felldu. Nánar athuganir leiddu í ljós að þetta bara passaði ekki og raunar væru þetta bremsuborðar í Renault sendibíl!

Ég fór því af stað klukkan níu í morgun og skilaði sendibílsbremsunum. Hófst þá leit að "Lockhead" bremsum í áðurnefnda tegund bíls. Skársta tilboðið sem ég fékk var að fá þær til landsins seinnipartinn á miðvikudag. Húsráðandinn í bílskúrnum þar sem Fiatinn er búinn að standa á búkkum síðustu þrjá daga hefði ekki orðið ánægður með það.
Endaði á því að kaupa original varahluti inni í umboði og slapp með nokkra tíkalla í aukakostnað við að kaupa þá þar. Festingarnar þurfti ég hinsvegar að sækja niður í Borgartún.

Greinilega ekki mikið að fara bremsurnar í þessum Fiötum... eða bara að þeir eru svona sjaldgæfir, sem er kannski líklegri skýring :-)

Það verður því þriðji í bílaviðgerðum í kvöld. Þar er ég í hlutverki óvirka aðstoðarmannsins. Síðast þegar ég reyndi að gera eitthvað sjálfur tókst mér að missa kerti ofan í vélina - sem fannst eftir tvö tíma eftir að frændi minn og bjargvættur var búinn að rífa mest allt lauslegt úr vélinni. Síðan þá sé ég aðallega um lýsingu og handlöngum og læt hann bara um þetta. Ætli ég sé ekki bara einum of mikill Homo economicus til að ráða við þetta sjálfur :-)
Agust skrifaði 02.06.03 14:01 | TrackBack

Flokkun: Daglegt líf