júní 08, 2003

Hvítasunnudagur

Í dag eru matvöruverslanir, sem annars eru jafnvel opnar 24 klukkutíma sólarhringsins, lokaðar. Nokkrar vídjóleigur hafa opið og Stöðin í Hafnarfirði og BSÍ hafa opið einsog alltaf.
Í dag leita svangir Íslendingar sér að mat og finna ekki.

Fæstir vita hvers vegna þetta er, en svona hefur þetta bara alltaf verið. Rifjast upp fyrir fólki hvaða dagur er þegar það kemur að lokuðum dyrum. Það er hvítasunnan, hvað svo sem það nú annars þýðir annað en lokaðar 10-11 búðir.

Lögreglan lokar matvöruverslunum (frétt Mbl). Er ekki tími til kominn að breyta þessari vitleysu?
Agust skrifaði 08.06.03 20:57 | TrackBack

Flokkun: Ísland
Comments

Það er nú bara orðið þannig að "frídagar" eru almennt ekki frídagar hjá starfsfólki verzlana og manni finnst ekkert eðlilegra en að þær væru opnar.

Mér fannst t.d. ekkert eðlilegra en að sundlaugarnar væru opnar í dag en fyrir fáum árum hefði það bara ekki gerst á svona degi.

Óli G. Håk skrifaði 08.06.03 22:11

Mér finnst nú allt í lagi að verslunarmenn hafi lögbundna frídaga eins og annað vinnandi fólk á þessu landi. Frelsi til að eiga frí?

Ragnar skrifaði 09.06.03 00:45

Jájá, allir hafa "rétt" til að eiga frí. Það er ekki þar sem sagt að einhver eigi að hafa vald til þess að skipa ÖLLUM að fara í frí.

Ýmsar starfsséttir fara aldrei í frí, t.d. voru löggurnar sem lokuðu 10-11 í dag svo sannarlega í vinnunni. Starfsfólk spítala, álvera, vídjóleiga, svo einhver dæmi séu nefnd, mætti margt hvert til vinnu í dag. Það á aftur á móti sitt frí alveg einsog allir aðrir.

Það eru ekki svo mörg ár síðan að mikla baráttu þurfti meðal verslunarmanna til að fá að hafa opið á sunnudögum. Starfsfólk 10-11 sem nú er með opið á sumum stöðum venjulega allan sólarhringinn (nema þegar ríkisvaldið bannar þeim það) vinnur á vöktum. Vaktafrí fólks er á misjöfnun tíma. Ég hef sjálfur unnið á vöktum og margoft unnið á "rauðum dögum". Sá ekkert athugavert við það. Fyrst ég fékk að vinna í álveri á hvítasunnunni, sé ég ekki að nokkur eigi að hafa vald til að banna verslunarfólki að vinna á sama degi.

Ágúst skrifaði 09.06.03 00:58

Þess má geta að ég hef þessa skoðun á ÖLLUM "rauðum dögum". Hvort sem það eru trúarhátíðir á borð við hvítasunnudag, páska og jól, tilbúna daga á borð við 1. maí og frídag verslunarmanna eða þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Ég að það hvenær fólk tekur sér frí sé mál hvers og eins og val viðkomandi, sem hann/hún ákveður í samvinnu við vinnuveitanda sinn. Þetta snýst einfaldlega um valfrelsi fólks í fyrsta lagi og í öðru lagi um hagkvæmni í samkeppnisumhverfi. Sér-íslenskir frídagar eru t.d. sérstaklega hvimleiðir í samskiptum við erlenda viðskiptamenn.

Ágúst skrifaði 09.06.03 01:04

Ég er búinn að vera að vinna í Videohöllinni ALLA helgina og það var geðveiki. þrisvar til fjórum sinnum meira að gera og lagerinn nærri tómur þar til klukkan tólf á hvítasunnunótt. Annað hvort á allt að vera opið eða ekkert. Ekki láta frídaga bitna á videoleigustarfsmönnum og/eða löggunni.

Orri skrifaði 09.06.03 03:06

Það er hálf fáránlegt að neyða fólk í frí, svo að svona annaðhvort fá allir frí eða enginn er út úr öllum kortum Orri.

Þú kýst að vinna hjá þessari tilteknu vídeóleigu og með því fylgja ákveðnar kvaðir og tiltekinn vinnutími. Ef til vill tekur þú stundum aukavinnu vegna þess að þú vilt meiri pening. Þér fyndist án efa undarlegt ef að einhver myndi mæta og segja þér að þú mættir ekki taka aukavinnu, að þú ættir að taka frí vegna þess að t.d. hann ætti frí eða hann væri á móti því að fólk ynni aukalega.

Óli G. Håk skrifaði 09.06.03 03:15

Flytjið endilega til Finnlands. Hér er ekkert frí á Hvítasunnu sem mér finnst auðvitað grautfúlt!

Heiðingjar... ;-)

Sigga Sif skrifaði 09.06.03 06:06

Ekkert fri i Bretlandi...og mer finnst grautfult ad geta ekki lesid moggann i dag!

Oli skrifaði 09.06.03 09:03