júní 19, 2003
19. júní
Tæpur klukkutími eftir af deginum og því ekki seinna vænna að óska öllum til hamingju með þennan merkisdag.Í vinnunni voru allar konur í bleiku að einhverju leyti og einn yfirmaðurinn mætti í heiðbleikum kjól, sem vakti talsverða athygli. Ragnheiður mætti ekki í upphlut þetta árið, líkt og í fyrra en eftir það uppátæki hennar var ákveðið að öllum konum innan fyrirtækisins væri boðið í kaffi eftir hádegi á þessum degi og var það gert í ár einsog í fyrra.
Mér finnst þetta einmitt dagur sem við eigum að halda upp á, hvert með sínum hætti.
Hinsvegar finnst mér það að velja bleika litinn sem lit dagsins vera frekar illa til fundið (fyrir mig persónulega). Allir glímdum við við sama vandamálið varðandi þennan lit, karlpeningurinn í vinnunni, við áttum einfaldlega ekkert bleikt til að klæðast - þótt viljinn væri fyrir hendi. Eini maðurinn sem hefði getað bjargað mér með bleikan fatnað er staddur í Gnúpverjahreppi, þannig ég hefði þá þurft að hugsa út í þetta með meiri fyrirvara.
Agust skrifaði 19.06.03 23:14
Flokkun: Jafnréttismál
Comments
Þú ert nú meiri kellingin :)
Inga skrifaði 20.06.03 00:10Mér finnst það réttlátt íhugun að lemja fólk sem er með svona yfirlýsingar. Inga mín, þú verður að segja meira en þetta, hver var meining á bak við þetta? Var þetta svipað eins og þegar maður sagði: "Helvítis homminn þinn" eða "mamma þín er hóra" þegar maður var fimm og hálfs?
Gulli skrifaði 20.06.03 17:16Inga mín, ekki taka mark á Gulla greyinu. Hann er bara kynsveltur hommi úr sveitinni :-þ
Ágúst skrifaði 20.06.03 21:54Híhíhí ég vissi ekki að góðlátlegt grín mitt gæti haft svona mikil áhrif :) .. reyndar lélegur húmor hjá mér, ég viðurkenni það fúslega, og biðst innilega afsökunar ef ég hef sært einhvern .. og hey KELLINGAR eru flottar svo það er óþarfi að taka því sem einhverri móðgun!
Inga skrifaði 20.06.03 22:41