júní 24, 2003
Þrjár fréttir
Þrjár fréttir, athyglisverðar en ólíkar:Óþægileg arabískukennsla (mbl.is)
Bandaríkjamenn áttuðu sig á að skammstöfun New Iraqi Corps (NIC) er svæsið blótsyrði í arabísku. Þetta minnir mig á pistil sem Nicholas Kristof skrifaði í New York Times fyrir nokkru síðan. Þar rifjaði hann upp þegar hann var nýkominn til Cairo að læra arabísku og var að reyna að tala við nágranna sinn og kynnti sig "ana Nick". Maður fór undan í flæmingi og horfði alltaf grunsömum augum á hann eftir þetta.
Phone wait over for Dhaka man (BBC)
Maður í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, óskaði eftir að fá síma lagðan í húsið sitt í maí 1976. Ríkissímafyrirtækið bangladeshka lagði símann í húsið til hans á dögunum, 27 árum síðar. Í afsökunarskyni gaf fyrirtækið honum símtæki. Mohammed Ismail, sem telur sig eiga eftir að nota símann mikið, segist ekki hafa borgað neinum mútur og þess vegna hafi þetta tekið svona langan tíma. Sagt er í fréttinni að fólk sé þó vanara að þurfa að bíða í allt að áratug eftir að fá síma, borgi það engum mútur. Tvívegis þurfti hann að borga um $90 í gjöld til að beiðnin um símann fyrntist ekki.
Og að lokum athyglisverð grein um nokkuð sem ég hef ekki áður heyrt af:
Women's domination under threat (BBC)
Í Meghalaya á NA-Indlandi eru það yngstu dæturnar sem erfa foreldra sína, ekki elsti sonurinn einsog víða. Konur eru valdamiklar en völd þeirra eru nú sögð í hættu vegna m.a. áhrifa frá Bollywood (þar sem konur eru í mun "algengara" hlutverki undirgefins og réttlítils kyns).
Agust skrifaði 24.06.03 21:52
Flokkun: Jafnréttismál , Mannlíf á jörðu , Meðmæli