júní 26, 2003

Ansans

Ég ætlaði að vera á fyrirlestri núna um framtíð Íraks. Magnús Þorkell Bernharðsson er með fyrirlestur hjá Reykjavíkur-akademíunni. Mjög áhugavert.
Ég er hinsvegar búinn að vera að drepast í maganum í allan dag. Sit því heima - með sárt ennið. Pirrandi. Arg! Arg! Arg!

Ef einhver sem fór á fyrirlesturinn í kvöld vill segja mér það helsta sem kom fram þarna í kvöld yrði ég MJÖG þakklátur.
Agust skrifaði 26.06.03 20:53

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Hmm, siturðu ekki með sáran magann?

Finnbogi skrifaði 27.06.03 14:55