júní 26, 2003
Hommar öðlast rétt til kynlífs
Einkennileg fyrirsögn, já. Aftur á móti hefur hæstiréttur Bandaríkjanna fellt þann úrskurð að lög í Texas sem banna kynlíf fullorðinna einstaklinga stangist á við stjórnskrá landsins. 1986 hafði rétturinn kveðið upp þann úrskurð að ríkjum væri heimilt að setja slík lög.Þrír af níu dómurum greiddu atkvæði gegn því að fella bannið úr gildi. Antonin Scalia las yfirlýsingu frá þeim og sagði m.a. "the court has largely signed on to the so-called homosexual agenda". Yfirlýsing Cato Institute svarar þessu ágætlega.
Í dag banna 13 ríki Bandaríkjanna anal og oral kynlíf fullorðinna einstaklinga og fjögur þeirra banna anal kynlíf fólks af sama kyni sérstaklega; Kansas, Oklahoma og Missouri auk Texas. Hin ríkin eru: Alabama, Florida, Idaho, Louisiana, Mississippi, N-Karólína, S-Karólína, Utah og Virgína.
Lögin í Texas hafa verið í gildi frá 1854 en einungis gilt um fólk af sama kyni síðan 1973.
Þessi úrskurður mun hafa áhrif á þessi (suður)ríki. Þeir sem vilja stjórna kynlífi annarra segja úrskurðurinn muni á endanum leiða til þess að - oh horror! - hjónabönd samkynhneigðra verði leyfð (Vermount er eina ríkið sem það er í burðarliðnum).
Sjá m.a.:
US court overturns gay sex ban
US Supreme Court hears gay case
Agust skrifaði 26.06.03 21:12
Flokkun: Fréttir , Jafnréttismál , Lög&réttur
Comments
Gleðitíðindi fyrir okkur alla, bróðir sæll.
Jón skrifaði 28.06.03 00:18