júní 28, 2003
Óli Njáll
Óli Njáll Ingólfsson hefur oft sýnt af sér ýmiskonar undarlegheit. Yfirleitt hafa þessi undarlegheit verið í formi einhvers sem snýr að honum sjálfum, ógurlegur áhugi í krikketi, neita að raka sig vikum saman eða stofna aðdáendaklúbb um útbrunnar hvalastjörnur frá Ameríku.Nú skrifar hann hinsvegar um "Jóna og Dóra" á síðuna sínu og kynnir mig til sögunnar sem Skápa-Jón, sem stalkar kærustuna hans og býr í skáp. Nú heiti ég ekki Jón, hef hvorki heyrt í kærustunni né séð utan þess að hlusta á nokkra fréttatíma lesna af henni og ég bý í Hafnarfirði, ekki skáp.
Óli Njáll hefur mjög undarlegan húmor veit ég og eitt það fyndnasta sem hann veit að uppnefna menn. Get svosem alveg sofið á nóttinni yfir því að hann vilji nú kalla mig Jón, rétt einsog hann kallaði mig Brynjólf mánuðum saman. Alvarlegra finnst mér hinsvegar að vera kallaður stalker. Hvaðan Óli Njáll fær þá flugu í höfuðið veit ég ekki.
Skv. sömu síðu er Óli Njáll á ferðlagi í Borgarfirðinum um helgina. Þegar hann kemur úr ferðalaginu sínu fer ég fram á að hann taki út þennan rógburð um mig og biðji mig svo afsökunnar. Ekki það að ég telji nokkrar líkur á að Óli Njáll biðjist afsökunar á nokkru, enda óskeikull maður að eigin áliti.
Gaman að byrja daginn svona pirraður... vonandi er grenjandi rigning og rok í Borgarfirði núna!
Agust skrifaði 28.06.03 13:02
Flokkun: Daglegt líf
Já, þetta er alveg furðuleg dagbókarfærsla hjá Óla Njáli. Hljómar ekki eins og brandari, heldur meira eins og "best að vera leiðinlegur við handfylli af fólki" færsla. Var hann ekki bara á einhverjum eiturlyfjum þegar hann skrifaði þetta?
Már Örlygsson skrifaði 28.06.03 18:00Hann hefur ábyggilega verið að lesa Espólín.....
Unnur skrifaði 28.06.03 18:52Já, það gekk á með skúrum í Húsafelli um helgina.
Sverrir Guðmundsson skrifaði 29.06.03 16:38
Það eru tvær leiðir til þess að fiffa þetta.
1. Rannsaka fortíð misgjörðarmannsins.
2. Spray him with the hose, leaving him soaking wet (and us relatively dry. There's bound to be some splashback). Hehehe.
Mwíhíhíhíhí...
Sibba skrifaði 29.06.03 21:13jújú, skúrir í Borgarfirðinum en gerði lítið til því ég tók vitlausa beygju og endaði á Akureyri í sól og sumaryl:)
Óli Njáll Ingólfsson skrifaði 30.06.03 01:05Tu aettir ekki ad taka hlutunum svona alvarlega gusti, tetta atti vaentanlega bara ad vera lett grin hja ONI...........
Er annars nokkud merkilegt buid ad vera ad gerast heima sidustu tvaer vikurnar?
To svo ad eg lesi mbl.is herna nidri i AUS ta gefur tad ekki alla myndina...
Allavega, bid ad heilsa!
Oli G. Hak skrifaði 30.06.03 07:24Vá, ég skil Ágúst vel að hafa pirrast yfir þerssum færslum. Skrítinn húmor ef þetta er grín og enn skrítnara hjá Óla Njáli að sýna ekki bara smá þroska og taka út færsluna þegar hann uppgötvaði mistök sín. Ef maður gengur fram af einhverjum, þá er það manni sjálfum að kenna og bara barnalegt að skýla sér á bak við það að viðkomandi sé of viðkvæmur eða eitthvað! Hvað er hann annars gamall, tólf ára?
En svona er það. Ég veit að minnsta kosti að ég á ekki eftir að skoða síðuna hans Óla Njáls oft eftir þennan dónaskap og þetta rugl í honum.
Væl
Geiri skrifaði 30.06.03 20:54Gamlar syndir virðast gleymast fljótt hjá allt of mörgum. Sem betur fer geymast sumar þeirra ágætlega á netinu (http://www.semsagt.net/s/2003/02/06/20.22.42.html) þótt aðrar finnist ekki. Mér virðist sem sleggjudómar falli hratt. Fólk kommenterar um mál sem það hefur ekki hundsvit á og ýmsir sem eiga að þekkja staðreyndirnar virðast hafa selective memory. Stalk er til í mörgum myndum, mis alvarlegum þó, og er ekkert að því að standa við þær yfirlýsingar. Mér finnst undarlegt hvert samúðin rennur en af einhverjum ástæðum á ég erfitt með að taka þann mann alvarlega sem talar um menntaskólanema sem æsku landsins. Þeir sem geta haft áhrif á þjóðmálin með kosningarétti sínum geta varla talist æska landsins. En svona er það, sumir eru bara fljótari að dæma en aðrir...
Sunna Mímisdóttir skrifaði 30.06.03 21:56