júní 30, 2003

Kínverska

Chinese 'takes more brainpower' (BBC)
Skv. þessari frétt krefst mandarínska (kínverska) þess að fólk noti bæði heilahvelin á meðan að enska (og önnur "létt" tungumál) krefjast þess einungis að maður noti annað.
Þetta er talið vera vegna þess að mismunandi framburður á sama hljóði getur þýtt margt ólíkt. Sama hljóðið, mismunandi borið fram, getur þýtt bæði "kennari" og "rotta". Það þarf því ekki síður að hlusta á hljómfallið en hvaða hljóð um ræðir.

Nú væri gott tækifæri til að besserwissast um muninn á Wade-Giles (Peking) og pin yin (Beijing) ritháttunum, en þess í stað ætla ég að benda áhugasömum á þessar síður, þar sem lesa má ýmislegt um kínversku:
Tafla með mismunandi rithætti
Mállýskur o.fl.
Hljóð í framburði
Kínversk tákn skrifuð
Agust skrifaði kl. 17:05 | Comments (2) | TrackBack
Flokkun: Mannlíf á jörðu

júní 29, 2003

Hannes Hólmsteinn ritar ævisögu Halldórs Laxness

Ég hló þegar ég sá þessa frétt á baksíðu sunnudags-Moggans í gærkvöldi. Þetta hljómar einsog aprílgabb.
Agust skrifaði kl. 18:00 | Comments (2) | TrackBack
Flokkun: Menning

júní 28, 2003

Óli Njáll

Óli Njáll Ingólfsson hefur oft sýnt af sér ýmiskonar undarlegheit. Yfirleitt hafa þessi undarlegheit verið í formi einhvers sem snýr að honum sjálfum, ógurlegur áhugi í krikketi, neita að raka sig vikum saman eða stofna aðdáendaklúbb um útbrunnar hvalastjörnur frá Ameríku.

Nú skrifar hann hinsvegar um "Jóna og Dóra" á síðuna sínu og kynnir mig til sögunnar sem Skápa-Jón, sem stalkar kærustuna hans og býr í skáp. Nú heiti ég ekki Jón, hef hvorki heyrt í kærustunni né séð utan þess að hlusta á nokkra fréttatíma lesna af henni og ég bý í Hafnarfirði, ekki skáp.
Óli Njáll hefur mjög undarlegan húmor veit ég og eitt það fyndnasta sem hann veit að uppnefna menn. Get svosem alveg sofið á nóttinni yfir því að hann vilji nú kalla mig Jón, rétt einsog hann kallaði mig Brynjólf mánuðum saman. Alvarlegra finnst mér hinsvegar að vera kallaður stalker. Hvaðan Óli Njáll fær þá flugu í höfuðið veit ég ekki.

Skv. sömu síðu er Óli Njáll á ferðlagi í Borgarfirðinum um helgina. Þegar hann kemur úr ferðalaginu sínu fer ég fram á að hann taki út þennan rógburð um mig og biðji mig svo afsökunnar. Ekki það að ég telji nokkrar líkur á að Óli Njáll biðjist afsökunar á nokkru, enda óskeikull maður að eigin áliti.

Gaman að byrja daginn svona pirraður... vonandi er grenjandi rigning og rok í Borgarfirði núna!
Agust skrifaði kl. 13:02 | Comments (9)
Flokkun: Daglegt líf

júní 27, 2003

Strom allur

Stom Thurmond er látinn, tíræður að aldri.
Ég skrifaði pistil um hann á Frelsi.is á 100 ára afmælisdaginn 5. desember.
Merkur maður og saga hans sem stjórnmálamanns lýsandi fyrir þjóðfélagsbreytingarnar í suðurríkjum Bandaríkjanna á 20. öldinni.
Þrátt fyrir að vera ósammála gamla skarfinum í flestu gat maður ekki annað dáðst að honum í vissum skilningi. Hann á líka aðdáendur af ýmsu sauðahúsi.
Agust skrifaði kl. 19:58 | Comments (0) | TrackBack
Flokkun: Fréttir , Stjórnmál

Skattpíning

Forbes hefur tekið saman hve mikið (eða lítið) lönd skattpína fólk og fyrirtæki.
Sjá: Companies Hate Misery
Í neðstu sætunum eru t.d. Hong Kong, Indland og Taiwan en á toppnum trjóna Frakkland, Belgía, Svíþjóð og Ítalía.
Agust skrifaði kl. 19:39
Flokkun: Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation , Viðskipti

júní 26, 2003

Hommar öðlast rétt til kynlífs

Einkennileg fyrirsögn, já. Aftur á móti hefur hæstiréttur Bandaríkjanna fellt þann úrskurð að lög í Texas sem banna kynlíf fullorðinna einstaklinga stangist á við stjórnskrá landsins. 1986 hafði rétturinn kveðið upp þann úrskurð að ríkjum væri heimilt að setja slík lög.
Þrír af níu dómurum greiddu atkvæði gegn því að fella bannið úr gildi. Antonin Scalia las yfirlýsingu frá þeim og sagði m.a. "the court has largely signed on to the so-called homosexual agenda". Yfirlýsing Cato Institute svarar þessu ágætlega.

Í dag banna 13 ríki Bandaríkjanna anal og oral kynlíf fullorðinna einstaklinga og fjögur þeirra banna anal kynlíf fólks af sama kyni sérstaklega; Kansas, Oklahoma og Missouri auk Texas. Hin ríkin eru: Alabama, Florida, Idaho, Louisiana, Mississippi, N-Karólína, S-Karólína, Utah og Virgína.
Lögin í Texas hafa verið í gildi frá 1854 en einungis gilt um fólk af sama kyni síðan 1973.

Þessi úrskurður mun hafa áhrif á þessi (suður)ríki. Þeir sem vilja stjórna kynlífi annarra segja úrskurðurinn muni á endanum leiða til þess að - oh horror! - hjónabönd samkynhneigðra verði leyfð (Vermount er eina ríkið sem það er í burðarliðnum).

Sjá m.a.:
US court overturns gay sex ban
US Supreme Court hears gay case
Agust skrifaði kl. 21:12 | Comments (1)
Flokkun: Fréttir , Jafnréttismál , Lög&réttur

Ansans

Ég ætlaði að vera á fyrirlestri núna um framtíð Íraks. Magnús Þorkell Bernharðsson er með fyrirlestur hjá Reykjavíkur-akademíunni. Mjög áhugavert.
Ég er hinsvegar búinn að vera að drepast í maganum í allan dag. Sit því heima - með sárt ennið. Pirrandi. Arg! Arg! Arg!

Ef einhver sem fór á fyrirlesturinn í kvöld vill segja mér það helsta sem kom fram þarna í kvöld yrði ég MJÖG þakklátur.
Agust skrifaði kl. 20:53 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

júní 24, 2003

Þrjár fréttir

Þrjár fréttir, athyglisverðar en ólíkar:

Óþægileg arabískukennsla (mbl.is)
Bandaríkjamenn áttuðu sig á að skammstöfun New Iraqi Corps (NIC) er svæsið blótsyrði í arabísku. Þetta minnir mig á pistil sem Nicholas Kristof skrifaði í New York Times fyrir nokkru síðan. Þar rifjaði hann upp þegar hann var nýkominn til Cairo að læra arabísku og var að reyna að tala við nágranna sinn og kynnti sig "ana Nick". Maður fór undan í flæmingi og horfði alltaf grunsömum augum á hann eftir þetta.

Phone wait over for Dhaka man (BBC)
Maður í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, óskaði eftir að fá síma lagðan í húsið sitt í maí 1976. Ríkissímafyrirtækið bangladeshka lagði símann í húsið til hans á dögunum, 27 árum síðar. Í afsökunarskyni gaf fyrirtækið honum símtæki. Mohammed Ismail, sem telur sig eiga eftir að nota símann mikið, segist ekki hafa borgað neinum mútur og þess vegna hafi þetta tekið svona langan tíma. Sagt er í fréttinni að fólk sé þó vanara að þurfa að bíða í allt að áratug eftir að fá síma, borgi það engum mútur. Tvívegis þurfti hann að borga um $90 í gjöld til að beiðnin um símann fyrntist ekki.

Og að lokum athyglisverð grein um nokkuð sem ég hef ekki áður heyrt af:
Women's domination under threat (BBC)
Í Meghalaya á NA-Indlandi eru það yngstu dæturnar sem erfa foreldra sína, ekki elsti sonurinn einsog víða. Konur eru valdamiklar en völd þeirra eru nú sögð í hættu vegna m.a. áhrifa frá Bollywood (þar sem konur eru í mun "algengara" hlutverki undirgefins og réttlítils kyns).
Agust skrifaði kl. 21:52
Flokkun: Jafnréttismál , Mannlíf á jörðu , Meðmæli

júní 23, 2003

Sjö tonn

Hvað gerir maður við sjö tonn af laxerolíu?

Hugmyndir má láta flakka í kommentakerfinu... (öllu ósiðlegu verður eytt út)
Agust skrifaði kl. 18:47 | Comments (3)
Flokkun: Tækni&tól

júní 22, 2003

Matrix 2 bönnuð í Egyptalandi

Karen Jayes, senior editor á Middle East Times, skrifar leiðara á METimes.com, Hollywood movie promotes Zionism, í tilefni að því að Matrix Reloaded.
Ég hef ekki séð myndina en mun án efa pæla í þessum meinta zíonisma í henni þegar ég sé hana (m.v. hvað mér fannst fyrri myndin leiðinleg sé ég hana líklegast líka bara þegar hún er sýnd í sjónvarpinu).
Agust skrifaði kl. 0:16
Flokkun: Menning , Mið-Austurlönd

júní 20, 2003

Veikindi

Ég er búinn að vera veikur. Búinn að vera hálf ómögulegur síðustu tvær vikurnar. Var síðan svo óheppinn að fá þessa ógleðis-pest sem er að ganga í ofanálag. Alls ekki nógu gott. Hef þó mætt til vinnu - enda ómissandi (að eigin áliti).

Nú gleypi ég sýklalyf, náttúrulyf, acidophilos og hvítlaukstöflur. Svo á ég víst að bæta við þetta zinki og svo eplaediki í soðnu vatni við til að geta haft einhverja lyst fyrir tvö eða þrjú á daginn. *dæs*
Búinn að fara í rannsóknir og tala við lækni, ekkert alvarlegt að mér, sem betur fer.
Annars fór ég til svæðanuddara í dag. Ég hefði aldrei trúað að þetta gæti verið svona áhrifaríkt. Leið virkilega betur eftir tímann. Kom alveg endurnærður út.

Ég hætti að drekka kaffi og kók fyrir tveimur vikum. Það er EKKERT sem mig langar meira í núna en góðan kaffibolla... mmmm. Kaffidrykkja hefst að nýju þegar ég hef náð mér.

Í dag ákvað ég að hætta að drekka þetta diet-sull (Pepsi Max) sem ég hef drukkið einsog mér sé borgað fyrir það til alltof margra ára. Er alveg kominn yfir það að langa í þetta sull.
Agust skrifaði kl. 20:42
Flokkun: Daglegt líf

júní 19, 2003

19. júní

Tæpur klukkutími eftir af deginum og því ekki seinna vænna að óska öllum til hamingju með þennan merkisdag.
Í vinnunni voru allar konur í bleiku að einhverju leyti og einn yfirmaðurinn mætti í heiðbleikum kjól, sem vakti talsverða athygli. Ragnheiður mætti ekki í upphlut þetta árið, líkt og í fyrra en eftir það uppátæki hennar var ákveðið að öllum konum innan fyrirtækisins væri boðið í kaffi eftir hádegi á þessum degi og var það gert í ár einsog í fyrra.
Mér finnst þetta einmitt dagur sem við eigum að halda upp á, hvert með sínum hætti.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:14 | Comments (4)
Flokkun: Jafnréttismál

Fáránlegt

Tvennt hefur pirrað mig í fréttum undanfarið. Annars vegar hafa Sjálfstæðismenn í Reykjavík ákveðið að rauðar Og Vódaflón blöðrur hafi skemmt 17. júní. Hinsvegar þykir mér sorglega skondin umræða að lyfjafræðing verði að ráða yfir því sviði innan Landspítalans (asnalegt að hafa bara eitt s þarna) sem hefur með apótek spítalans að gera. Einhverjum datt sú svívirða í hug að ráða viðskiptafræðing (já, viðskiptafræðing!!) til að reka þetta svið. Þetta hefur víst sérstaklega slæmt fordæmisgefandi gildi út fyrir landssteinana. Og einsog allir vita, þá kunna viðskiptafræðingar ekkert fyrir sér í rekstri, ólíkt sérmenntuðum lyfjafræðingum. Sérhæfingin lifi!
Agust skrifaði kl. 21:29
Flokkun: Fréttir , Stjórnmál

júní 17, 2003

Tvær fréttir

Tvær athyglisverðar fréttir - en ólíkar.

Let Iran 'Sort Out' Opposition Internally-Britain. Reuters greinir frá því hvernig Bretar vilja höndla "Íransmálið" öðruvísi en Bandaríkjamenn og hafa ekki gefið út stuðningsyfirlýsingar líkt og Bandaríkjamenn við mótmæli námsmanna í Tehran undanfarið.

Mál sextán dæmdra fíkniefnasala tekin upp segir Mbl.is í fyrirsögn í gær. Afskaplega illa tilfundin fyrirsögn, þar sem þarna er átt við nokkra dæmda menn í bænum Tulia í Texas, þar sem rannsóknarlögreglumaðurinn Tom Coleman kom stórum hluta svartra íbúa bæjarins á bak við lás og slá fyrir fíkniefnabrot með svo ófaglegum sönnunargögnum og rannsóknaraðferðum og ótrúverðugum framburði í vitnastúkunni að mikið hneyksli þótti að menn væru dæmdir sekir. Bob Herbert fjallaði reglulega um málið fyrir nokkru síðan og vísaði ég jafnan í þær greinar eftir hann. Að sjálfsögðu fjallaði Bob Herbert um málið í pistli í gær: Partway to Freedom

17. júní

Ég var að velta því fyrir mér í dag, þar sem ég kveikti nokkrum sinnum á útvarpi yfir daginn: Eru engar (væntanlega óskrifaðar) reglur um það hversu oft má spila Fallerí, fallera, fallerí fallerallerallera með Hemma Gunn og Hæ hó jibbí jei og jibbí-í jei í útvarpi sama daginn??

ps. Ég ætla af sérstakri tillitsemi við Þóri (#) ekki að tjá mig um "asnalegt þjóðarstolt" :-)
Agust skrifaði kl. 20:17 | TrackBack
Flokkun: Ísland

Írak, Bush og allir hinir

Nicholas Kristof og Paul Krugman skrifa í New York Times í dag. Athyglisverðir pistlar.

Kristof skrifar um hvernig allt er í kaos í Írak og hvernig "having won the war, we may now be blowing the peace". Sjá: Cheers to Jeers.

Krugman aftur á móti skrifar enn einn pistilinn, Dereliction of Duty, þar sem hann, líkt og fleiri og fleiri leiðarahöfundar vestanhafs, gagnrýnir Bush og félaga harðlega.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 20:06 | Comments (1) | TrackBack
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd , Stjórnmál

júní 12, 2003

/Svan

Ég var að setja upp MT-blogg fyrir Svan á servernum mínum. Hann hefur átt í miklu barsli, bloggerinn (#) hrundi og svo var hann ekki parhrifinn af Upsaid (#) sem er víst frekar slappt apparat.

Hann mun verða hér - www.semsagt.net/svan - allavega í einhvern tíma.
Agust skrifaði kl. 20:51
Flokkun: Internetið

júní 09, 2003

Hæstiréttur Bandaríkjanna

Áhugaverð grein í NYT: Lobbying Starts as Groups Foresee Supreme Court Vacancy

Þrír hæstaréttardómarar í Bandaríkjunum eru komnir á aldur (og það fyrir nokkru síðan). Þessi dómarar teljast til íhaldsmanna og eru menn því mikið að velta fyrir sér hvort að Bush þurfi ekki að skipta þeim út fljótlega, svo íhaldssömu kirkju-konservatívarnir haldi sinni stöðu í réttinum.
Sumir eru jafnvel að láta sig dreyma um að Roe v. Wade verði breytt, þ.e.a.s. að fóstureyðingar verði aftur bannaðar.
Þetta er auðvitað grafalvarlegur hlutur og ekki laust við að manni hrylli við tilhugsuninni við drauma dómstól íhaldsmannanna.
Gagnrýnin virðist hinsvegar fyrst og fremst vera á líberalistana bandarísku, að þeir séu að pólitíksera hæstaréttinn. Er þar vísað m.a. til greinaskrifa Demókrata eftir að hæstiréttur hafði úrskurðað að sigur Bush hefði verið lögmætur, þar sem þeir skoruðu á öldungadeildina að blokka alla þá hæstaréttardómara sem Bush myndi tilnefna sem forseti.

James L. Swanson hjá Cato Institute hefur skrifað um málið: The Coming Battle for the Court

Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, þá er baráttan milli "social conservatives" og þeirra sem virða rétt og valfrelsi fólks í sínum prívatmálum ekki síst háð á þessum vettvangi. Þetta sést m.a. á því að "pro-choice" hópar eru nú þegar farnir að auglýsa - mikilvægi þess að íhaldsmönnum sé ekki leyft að svipta konur réttinum til fóstureyðinga.
En þetta skýrist allt á næstu mánuðum - ætli Bush & Co. komi ekki sínum kristmanni krossmanni fyrir í hæstarétti, því miður.

Þessu tengt: Áfrýjunardómstóll íhaldsmanna (11/03/03)

Reiðtúr

Í kvöld fórum við pabbi ríðandi marghesta inn í Kópavog að sækja hest. Ferðin gekk ágætlega, nema hvað úr varð að ég fór á einhverjum hesti sem er í pössun hjá okkur. Gott og vel, þegar ég vissi að hann var síðast hreyfður s.l. haust útskýrðist ýmislegt.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:24 | Comments (3)
Flokkun: Daglegt líf

júní 08, 2003

Hvítasunnudagur

Í dag eru matvöruverslanir, sem annars eru jafnvel opnar 24 klukkutíma sólarhringsins, lokaðar. Nokkrar vídjóleigur hafa opið og Stöðin í Hafnarfirði og BSÍ hafa opið einsog alltaf.
Í dag leita svangir Íslendingar sér að mat og finna ekki.

Fæstir vita hvers vegna þetta er, en svona hefur þetta bara alltaf verið. Rifjast upp fyrir fólki hvaða dagur er þegar það kemur að lokuðum dyrum. Það er hvítasunnan, hvað svo sem það nú annars þýðir annað en lokaðar 10-11 búðir.

Lögreglan lokar matvöruverslunum (frétt Mbl). Er ekki tími til kominn að breyta þessari vitleysu?
Agust skrifaði kl. 20:57 | Comments (8) | TrackBack
Flokkun: Ísland

Laugardagsfárið

Í allt heila kvöld var ég upp'í hesthúsi. Fyrst að gefa, moka og þrífa í á annan tíma og svo fór ég í stuttan reiðtúr. Yndislegt að hlusta á kyrrðina og fuglasönginn í náttúrunni. Var algjörlega einn í heiminum, mætti einum á allri leiðinni.
Aftur á móti getur það verið einmanalegt að moka skít með ekki einu sinni útvarp.
Kom ekki fyrr en á 12. tímanum eftir að hafa kembt og gengið frá.
Agust skrifaði kl. 0:36
Flokkun: Daglegt líf

júní 07, 2003

Marokkó

Aboubakr Jamai, ritstjóri Le Journal Hebdomadaire, sem er dagblað í Marokkó, skrifaði í New York Times alveg prýðis pistil um daginn: Morocco's Choice: Openness or Terror

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 16:38 | TrackBack
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

júní 04, 2003

1737

Voðalega var ljúft að mæta til vinnu í morgun. Vel tekið á móti manni einsog von var. Gott að geta gengið svona inn og þekkt nánast allt og alla. Auðvitað eru alltaf einhverjar breytingar á milli ára en að mestu leyti allt á sínum stað.
Reyndar á ég eftir að læra á nokkra nýja hluti á morgun og þarf að koma mér inn í nokkur ný verkefni. Það er hinsvegar bara skemmtilegt að læra þá eitthvað nýtt.
Ekki það að svona fyrsta daginn gerir maður fátt af viti annað en að laga kaffi - og drekka kaffi. Á morgun get ég vonandi byrjað af fullum krafti. Vinnan leggst bara vel í mig í sumar. Mjög hamingjusamur með það að hafa fengið gamla djobbið mitt aftur en það kom mjög óvænt upp á.
Svo bíð ég bara eftir því að það verði plokkfiskur í matinn :-)

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:32 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

júní 03, 2003

Ég er kominn með vinnu

Var að fá vinnu. Alveg hoppandi glaður yfir því. Útlitið var ekki bjart þegar ég fékk neikvætt svar frá erlenda háskólanum þar sem stóð til að dvelja í sumar. Þá var maímánuður rúmlega hálfnaður og ég þurfti að gjöra svo vel að leita mér að vinnu. Það hefur ekki gengið nógu vel, enda markaðurinn sjaldan verið verri fyrir námsmenn að leita sér að sumarvinnu í lok maí.

En nú kemst ég aftur í vinnandi manna tölu. Að vera "heimavinnandi" atvinnuleysingi er ömurlegt! Geðheilsunni borgið - og fjárhagnum líka :-)
Agust skrifaði kl. 15:56 | Comments (7)
Flokkun: Daglegt líf

júní 02, 2003

Hagfræði og rómantík

Já, þetta hljómar eins líkt og svart og hvítt, enda ætla ég að minnast á þessi efni í alls óskildu samhengi.

Unnur skrifar alveg brilljant hugleiðingu í dagbókina sína um rómantík, tilviljanir og Batchelor(ette).

Óli Bjarki (obalogy.com) skrifar fínan hagfræðipistil við allra hæfi og svarar þar bullinu í Sverri Jakobssyni, sem skrifaði um lán á Múrinn fyrir stuttu (lánin kallar SJ reyndar skatt).
Agust skrifaði kl. 21:26 | Comments (3)
Flokkun: Meðmæli

Bremsuborðar

Á föstudaginn var fór ég í Bílanaust og keypti bremsuborða í Fiat Brava 1.6 '97 módel. Endaði að kaupa þá uppi á Höfða, eftir að hafa farið fýluferðir í Bílanaust og Stillingu í Hafnarfirði og Kópavogi.
Á laugardaginn vorum við Arnór, frændi minn og bjargvættur bílsins míns, búnir að lyfta Fífínum upp á búkka og rífa gamla bremsu draslið undan með tilheyrandi átökum.
Þegar afrifurnar voru mátaðar við varahlutina úr Bílanausti kom í ljós að ekki var allt með felldu. Nánar athuganir leiddu í ljós að þetta bara passaði ekki og raunar væru þetta bremsuborðar í Renault sendibíl!

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 14:01 | TrackBack
Flokkun: Daglegt líf

júní 01, 2003

The Incredible String Band

Ég fór á tónleika The Incredible String Band á föstudaginn í Íslensku óperunni. Reyndar hætti Robin Williamson, önnur aðal driffjöður ISB á sínum tíma að spila með bandinu í vetur og kallast það því "incrediblestringband2003" í dag. Efnið sem spilað er er aftur á móti allt saman gamalt, frá ca. '66-'74.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 16:19 | Comments (9) | TrackBack
Flokkun: Menning