júlí 31, 2003
Heilagt stríð páfans gegn samkynhneigðum
Nú hefur George W. Bush ekki aðeins sagt samfestri sambúð samkynhneigðra stríð á hendur, heldur páfinn líka: Vatican drive to curb gay marriageFyrir hvað stendur kaþólska kirkjan í dag? Jú, í fyrsta lagi hefur hún berist gegn getnaðarvörum, sérstaklega í Afríku, þar sem hún mótmælir fræðslu líknarsamtaka um getnaðarvarnir í baráttunni gegn eyðni, auk þess sem dreifing slíkra samtaka á smokkum til fátækra er að meti Páfastóls ekkert annað en glæpur gegn mannkyninu. Í öðru lagi kynsveltir hún þjóna sína og stendur þar vörð um miðaldauppfinningu þáverandi Servus servorum á 11. öld, Benedikts VIII. (eða Gregoríusar VII. eftir því hvernig á það er litið) sem kom til í pólitískum tilgangi. Og í þriðja lagi berst hans heilagleiki og hans hirð gegn mannréttindum samkynhneigðra.
Reyndar dettur mér alltaf í hug Monty Python textinn úr Meaning of Life, þegar ég heyri umfjöllun/umræðu um baráttu kirkjunnar manna við getnaðarvarnir:
Every sperm is sacred,Það var og.
every sperm is great,
If a sperm is wasted,
God gets quite irate.
Flokkun: Heimspeki , Jafnréttismál , Mannlíf á jörðu , Stjórnmál
USA-Íran II
Annar hlutinn af fjórum af fréttaskýringu Rogers Hardy, sérfræðings BBC í málefnum Mið-Austurlanda, um samskipti Bandaríkjanna og Írans: How strong is Iran's opposition?Aukinheldur, skipa átti konu sem dómara í Najaf í Írak, það gekk ekki snuðrulaust fyrir sig: In Najaf, Justice Can Be Blind but Not Female. Einhvern veginn fær maður það á tilfinninguna við að lesa svör og yfirlýsingar bandarísku embættismannanna á staðnum að þeir hafi nákvæmlega ENGAN skilning á írösku samfélagi. Ég er ekki frá því að það sé nokkuð raunsær skilningur hjá mér.
júlí 30, 2003
USA-Íran
Fyrsti hlutinn af fjórum af fréttaskýringu Rogers Hardy, sérfræðings BBC í málefnum Mið-Austurlanda, um samskipti Bandaríkjanna og Írans: US sets sights on Iranjúlí 29, 2003
Thomas Friedman
Ég var að horfa á viðtal við Thomas Friedman um alþjóðavæðinguna eftir 11. september 2001 á yaleglobal.yale.edu, sem er fróðlegur vefur. Þar er einnig hægt að nálgast transcript af viðtalinu og fleiri videoupptökur af áhugaverðum fyrirlestrum o.fl..Fyrirlestur (og spurt&svarað eftir hann) sem Friedman hélt í Yale í lok janúar í ár er einnig að finna á vefnum. Aðalumræði fyrirlestrarins (og umræðunnar á eftir) var Mið-Austurlönd, nema hvað. Í umræðunni kemur hann inn á mjög góða punkta varðandi innrásina í Írak (sem varð ekki fyrr en rúmum mánuði eftir að fyrirlesturinn var haldinn).
Mjög áhugavert. Fyrirlesturinn sýnir líka að Friedman er ekki aðeins góður blaðamaður, heldur einnig skemmtilegur fyrirlesari.
Áhugasamir ath! Þetta er mjög stórir videofælar (Real Player) í góðum gæðum, fyrirlesturinn er þrjú korter, umræðan á eftir 38 mínútur og viðtalið er 16 mínútur.
Viðskiptabannið á Írak
Í New York Times Magazine s.l. sunnudag birtist allstór grein um viðskiptabannið á Írak eftir David Rieff, Were Sanctions Right? Þar er spurningunni hvort þessi nær algjörlega gagnslausa leið, viðskiptabann, hafi verið rétt. Einnig eru leiðir Saddams Hussein og embættismanna hans til að færa sér viðskiptabannið í nyt ræddar. Úr varð að íraska þjóðin leið skort, Saddam sat sem fastast og sigraði að auki propaganda stríðið í kringum bannið. Þróunarríki sem var á réttri leið m.v. mörg önnur ríki hvað infrastrúktúr varðaði varð að mannlegum harmleik - nema fyrir Saddam auðvitað.Ég ætla að birta hérna nokkrar klausur úr greininni (sem er nokkrar blaðsíður útprentaðar að lengd en vel þess virði). Þetta þarf þó ekki endilega að vera allt það merkilegasta sem greinin kemur inn á, heldur frekar það sem mér fannst verðast að benda á, oft ekki margheyrðar staðreyndir.
Lesa áfram
"Kynvilluótti"
Var að horfa á seinni hlutann af Seinfeld. Góðir þættir, verst að þeir eru sýndir á slíkum tíma að ég gleymi þeim alltaf.Hvað um það, Seinfeld sagði homophobic og þýðandinn þýddi það sem sem "kynvilluótta". Bætti svo um betur og þýddi heterosexual sem "kynvísi".
Skyldi þýðandinn vera í Krossinum?
Metrosexual
"A very interesting percentage of men, who are decidedly heterosexual in terms of sexual orientation, like the grooming and the aesthetics of the gay world and are prepared to cop it and borrow it for their own," says Marion Salzman, a leading trends analyst for the Euro RSCG Worldwide marketing group.Meeting the 'metrosexual' man
Whoever came up with the term metrosexual made a marketing manager's dream come true. In reality it is really just young men with money to spend who need prodding in the right direction.
Skemmtilegar fréttir
Delhi's body collector turns 80. Mohammad Habib er áttræður múslimi sem býr í gömlu Delhi. Hann hefur greftrað fólk í hverfinu sínu síðan hann var 12 ára. Hann býr ásamt blindri eiginkonu sinni og dóttur sinni, sem er gift, í sárri fátækt í skýli úr plastdúk og lifir á sposlum sem hann fær fyrir að greftra líkin, sem nema sjaldnast meira en ígildi 2-3 dollara.Why the Queen is no culture vulture. Elísabet II. þykir víst ekki með nógu fínan smekk fyrir tónlist og listum.
Loss of e-mail 'worse than divorce'. Fyrirsögnin segir allt sem segja þarf :)
Sumarið búið
Klukkan er hálf-fimm og búið að kveikja á ljósastaurunum. Er farið að hausta? (Sent með SMS)
júlí 28, 2003
Amazon-pakki
Ég var að fá pakka í hús frá Amazon.co.uk sem ég pantaði fyrir helgi. Það er alltaf gaman að fá Amazon-pakka (verst hvað vaskur og tollur hækkar verðið).Lesa áfram
Sól
Sit hér á svölunum og var bæði að klára rauðvínsglasið og mjög athyglisverða grein um vidskiptabannið á Írak. (Sent með SMS)
Barnastjörnur
Barnastjörnur eru alltaf hálf aumkunarverðar, greyin. Dæmin sanna a.m.k. að líf barnastjarnanna verður gjarnan hálf stormasamt í kringum unglingsárin og eru þær ófáar útbrunnar um tvítugt.Það er ekki bara vandamál í einkalífinu sem fylgja því þegar barnastjarna fer að fullorðnast, a.m.k. ekki af viðkomandi barnastjarna er stjarnan í sjónvarpsþætti. Þá þýðir aukinn þroski aukin vandamál fyrir framleiðendur þáttanna.
Það er einmitt það sem er að gerast í kringum þættina um Malcolm in the Middle: Don't Wanna Grow Up Cuz Puberty Isn't Funny
Er mjólk góð?
Nú hef ég ekki neytt mjólkurafurða í 6 vikur, utan smá skvettu útá Weetabixið á morgnanna, og virðist ég nú kominn í hóp hörðustu mjólkurandstæðinga, sem ég áður leit svipuðum augum og grænmetisætur, sumsé fólk sem neitaði sér um fæðu að óþörfu. Nú er ég aftur á móti farinn að prédika gegn brjálaðri mjólkurneyslu Íslendinga, svo bregðast krosstré sem önnur tré.
Nú er spurningin, er mjólk góð eða er það bara áróður MS og landbúnaðarmafíunnar? (Sent með SMS)
Tumi þumall
Ég sagaði í vinstri þumalinn þegar ég var að gera upp hjólið mitt um helgina. Akkúrat fremst á fingrinum. Ekki gott að vera meiddur á sms-puttanum. Sérstaklega ekki fyrir svona atvinnusmsara;-) (Sent með SMS)
júlí 27, 2003
Hetjur?
Mjög áhugaverð frásögn í New York Times Magazine í dag: Who's a Hero Now?Þarna segir frá níu námuverkamönnum sem lifðu af að lokast inni í námu, fullri af vatni, í 77 klukkutíma i júlí í fyrra. Snarræði björgunarmanna varð hinsvegar til þess að mennirnir lifðu atvikið af. Þeir urðu hetjur í Bandaríkjunum, sem birtust m.a. hjá Opruh og David Letterman.
Í dag þjást hinsvegar flestallir nímenninganna af post-traumatic kvillum, kvíðaköstum, svefnleysi, flestir eru á Paxil (þunglyndislyf) eða sterkari lyfjum.
Þeir seldu Disney kvikmyndaréttinn að sögu sinni og fengu hver fyrir sig 150 þús. dollara. Bob Long, maðurinn sem segja má að með snarræði sínu og útreikningum náði að bjarga mönnunum með að bora göng niður til þeirra, fékk einnig sömu upphæð.
Peningar spilla segir orðtakið og milli Bobs og námuverkamannanna varð ósætti, sem m.a. rataði á síður stórblaðanna bandarísku.
Þessi frásögn Jeffs Goodell, sem er höfundur bókarinnar um þennan atburð "Our Story: 77 Hours That Tested Our Friendship and Our Faith", segir frá því hvernig þessi deila Bobs við námuverkamennina endaði með því að Bob skaut sig í höfuðið í bílskúrnum heima hjá sér fyrir framan eiginkonuna.
Löng, en áhugaverð frásögn um það hvernig hetjuskapur og instant frægð og frami getur orðið að harmleik og hvernig atburðir sem þessir setja mark sitt til frambúðar á alla sem að þeim koma.
Þrjár aðrar áhugaverðar í NYT í dag:
- After 58 Years, the Beetle Gets to the End of the Road (Síðasta Bjallan kemur af framleiðslubandinu)
- Finally, Porn Does Prime Time (Um "klámvæðingu" Bandaríkjanna)
- The Latest in Photography: A Horse of a Different Color (Nýjasta nýtt frá Kodak: einnota svart/hvítar myndavélar)
júlí 25, 2003
DeLay um Palestínu - útdráttur úr frétt NYT
N.Y. Times: DeLay Is to Carry Dissenting Message on a Mideast Tour(Fyrir þá sem ekki vita er Tom DeLay Texasbúi sem er foringi repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings - House majority leader)
Lesa áfram
júlí 24, 2003
Matur á sanngjörnu verði
Útlendinar sem eru staddir hérna í vinnuferð fram í ágúst hafa verið að leita ráða hjá mér með ýmislegt á Íslandi, m.a. veitingahús. Þeir eru búnir að taka ástfóstri við Ítalíu og finnst það góður staður en full dýr fyrir budgetinn. Þeir eru að leita að góðum mat á sanngjörnu verði. Er hann til á Íslandi? Einhverjar tillögur? (Sent með SMS)
Rafmagnsleysi
Áðan fór rafmagnið af í nokkrar mínútur. Alltaf jafn skrítið þegar það er rafmagnslaust. Svo dimmt og hljótt allt saman.
Ég var vakandi fyrir algera tilviljun, eins gott því annars hefði ég án efa sofið út í fyrramálid. (Sent með SMS)
júlí 23, 2003
Two of a kind
Við að hlusta á fréttaskýringu á BBC um Írak rann upp fyrir mér hve líkir Írakar og Bandaríkjamenn eru. Bádar þjóðir kvarta undan auknum glæpum, fjársvelti, óstarfhæfu menntakerfi og óhæfum embættismönnum. Svo vilja bádar þjóðir að bandarísku hermennirnir fari heim! Magnað! (Sent með SMS)
Regnhlífin mín
Í dag er gott að eiga regnhlíf. Sumir gera grín að regnhlífinni minni en í dag þurfti ein að fá hana lánaða. (Sent með SMS)
The Thorir's Syndrome
Svo virðist sem allir í kringum mig séu á leiðinni til London í lok ágústs. Um svipað leiti fer ég líklegast í smá aðgerð.Thorir's Syndrome-ið virðist vera að taka líf mitt yfir!
Símakosningar
Er til asnalegra sjónvarps/útvarpsefni en símakosningin um "bestu sjoppu", "bestu sundlaug" o.s.frv. landsins í Morgunsjónvarpinu?Af hverju? Já, af hverju ætti nokkur að hringja inn og taka þátt í þessu?
20. öldin
Undanfarið hefur Discovery Ch. sýnt þættina The People's Century á miðnætti. Þetta eru einkar skemmtilegir þættir sem RUV sýndi veturinn 96-97. Ég á þá reyndar alla á spólum einhvers staðar en hef horft á þá á Discovery þegar ég hef getað. Vandaðir og góðir þættir sem reyna að sjá atburði 20. aldarinnar með augum venjulegs fólks sem upplifði þá.
Í kvöld er það rússneska byltingin og Stalin. Átakanleg saga þad. (Sent með SMS)
júlí 22, 2003
Bandarískt vonleysi
Áhugaverð grein hjá Nicholas Kristof: Going Home, to Red Ink and BluesHann skrifar um heimafylki sitt, Oregon, og hvernig málin standa þar. Hvernig útgjöld til löggæslu í Portland hafi verið skorið niður um fjögur ár í röð af íhaldsmönnum og glæpir hafa að sama skapi aukist um tugi prósenta.
Lesa áfram
Mekong
Nú bíð ég eftir take-outi a Mekong í Kópavogi. Kjúklingur og hrísgrjón, vinir magans míns þessa dagana. Mekong í Kópavogi hefur ekki alveg sinn sjarma og staðurinn í Rvk. Allt mikið hreinna og stærra hér. Pepsi-auglýsingar komnar í stað tælensku konungsfjölskyldunnar. Fjölskyldutilbod á 4 hamborgurum er líka svolítið fyndið á "tælenskri matstofu". (Sent með SMS)
Hryðjuverk á Benedorm
Er að hlusta á BBC á leiðinni heim úr vinnunni. Verið er að segja frá hryðjuverkum á Benedorm og Alicante, hvort tveggja staðir sem þúsundir Íslendinga heimsækja á hverju ári. Nú er það spurningin hvort línurnar hjá ferðaskrifstofum landsins séu rauðglóandi. Fyrir tveimur árum voru vestustu strendur Tyrklands of hættulegar fyrir íslenska túrista. Nú þegar ETA-menn eru farnir að sprengja við hótel á Benedorm, hvert flýja Íslendingarnir þá? (Sent með SMS)
Ég myndi gera allt fyrir frægðina
Ég beið a biðstofu aðan og leit i gamalt S&H blað fra '97 a meðan. Þar voru myndir og texti fra galadinner sem þeir King Kong bræður Steinn Ármann og Jakob Bjarnar héldu Stefáni Pálssyni (22) "spurningakóngi" til heiðurs. Fyndið.
Langaði mest til að taka blaðið með mér til endurbirtingar - en gerði ekki.
Skemmtilegt. (Sent með SMS)
Framlegð
Ég ætla að reyna að láta nýfengið sms-blogg ekki koma niður á framlegð hjá mér í starfi. Þetta er þó leið fyrir mig til að komast hjá sjálfskipuðu bloggbanni hjá mér i vinnunni. Verst að þetta er mun óhagkvæmari leið til að blogga og mikið mun seinlegra. Framlegðin er því í algjörum mínus!
Kostnadinn óttast ég ekki. Þetta þarf að vera ansi mikið notað af mér til að verða annað en dropi í hafið á símareikningnum mínum. Það er reyndar önnur saga og sorglegri. (Sent með SMS)
júlí 21, 2003
Þolfall
Ólíkt Þolfalls-Þóri (#) þá þarf ég ekki að fara og láta breyta nafninu mínu. Ég er svo heppinn að vera skírður nafni sem er bæði í nefnifalli OG þolfalli.Ég telst því til tvífallinna.
júlí 20, 2003
10 óvinsælustu brúðargjafirnar
Fólk tekur gjarnan upp á því á sumrin að bjóða til brúðkaups. Flest brúðhjón gefa út einhverjar ábendingar um hvað þau vilja og margar betri búsáhalda- og gjafavörubúðir halda lista fyrir þau brúðhjón sem vilja þar sem hægt er að skrá hvað hefur verið keypt til handa brúðhjónunum og þar með forðast að allir kaupi sömu hlutina fyrir þau.Það eru þó alltaf einhverjir sem kjósa að fara út fyrir þessa fyrirframútgefnu lista og gefa brúðhjónunum það sem viðkomandi telur að brúðhjónin vilji eða vanti helst. Í Bretlandi er nýlega búið að kanna meðal þarlendra brúðhjóna hvaða brúðargjafir séu óvinsælastar meðal brúðhjónanna. Listinn er svona (hlutfall aðspurðra sem nefndu viðkomandi gjöf er í svigum):
1. Ornaments – especially animals (28%)Ég skil vel að þessar gjafir séu í efstu sætunum, þó mér finnist merkilegt að "krukkustatíf" komist í 9. sætið. Greinilega vinsæl gjöf meðal Breta. Mig grunar líka að einungis Bretar gefi svo mikið af teklútum (veit ekki hvort að tea towel hafi sérstakt orð í íslensku) að 10. hver brúðhjón nefni slíkt meðal verstu gjafanna.
2. Brightly coloured and patterned towels (18%)
3. Glassware – crystal and over-sized brandy glasses (14%)
4. Tea towels (10%)
5. Photo-frames – particularly made of pewter (8%)
6. Cushions (7%)
7. Place mats (6%)
8. Comedy/cartoon aprons (4%)
9. Mug trees (3%)
10. Table linen (2%)
Nú er það spurningin, hver er óvinsælasta brúðargjöfin að mati íslenskra brúðhjóna? Látið heyra í ykkur í kommentakerfinu :)
12 vindstig
Ég er skrambi aumur í hægri öxlinni í dag.Ég get stundum verið svolítið skapstór. Öllu heldur, ég er ansi skapstór en reyni bara að fara sparlega með það. Þegar það hinsvegar fýkur í mig þá geta orðið 12 vindstig.
Í gær festi sig hestur hjá mér í gamalli girðingu sem einhverjir jólasveinar hafa ekki hreinsað upp þegar nýja girðingin var sett upp. Þær liggja ekki nákvæmlega á sama stað. Nema hvað, þarna myndast horn sem er sannkölluð slysagildra og festi hestur frá mér sig í gömlu girðingunni þarna.
Svona vinnubrögð fara að sjálfsögðu í skapið á manni en fyrir heppni var það gæfur hestur sem lendir í þessu sem hægt var að losa án meiðsla en ekki einhver taugaveikluð trunta sem fer sér á voða í stað þess að standa bara og bíða eftir að sér verði hjálpað af mannlegum höndum.
Þegar ég var búinn að losa hestinn úr vírnum, sem var smá möndl gat ég ekki látið þetta vera svona áfram. Ég reif því helv. girðinguna upp, án nokkurra verkfæra. Þar sem hliðið hafði verið áður var stórt einangrað hitaveiturör notað sem endastaur (rúmlega 2 m. langt rör rekið meter ofan í jörðina). Það var því ekkert annað að gera en ráðast á staurinn/rörið og tók það svolítið á því hann vel fastur ofan í jörðinni. En þegar 12 vindstig ganga yfir getur ýmislegt gerst, þannig að lokum rúllaði ég vírnum upp og tók staurinn upp á öxlina (eftir að hafa notað sömu öxl til að losa hann upp úr jörðinni) og fór með draslið niður eftir.
Ég fann ekkert fyrir því þá en núna er ég skrambi aumur í öxlinni.
Let's Blame Canada
Fyndið:The Third Infantry Division, which spearheaded the drive to Baghdad and has been away from home the longest, has had its departure date yanked away twice. Last week, some soldiers from the Third in Falluja — a treacherous place where many Americans have been killed by guerrillas, including one on Friday — griped to the ABC News correspondent Jeffrey Kofman. One soldier said, "If Donald Rumsfeld was here, I'd ask him for his resignation."Jebb... allt saman kanadískt homma-samsæri!
The complaints infuriated some in the Bush administration, and the new Tommy Franks, Gen. John Abizaid, suggested that field commanders might mete out "a verbal reprimand or something more stringent."
Somebody at the White House decided not to wait. Matt Drudge, the conservative cybercolumnist, told Lloyd Grove, the Washington Post gossip columnist, that "someone from the White House communications shop" told him about the ABC story and also about a profile of the Canadian-born Mr. Kofman in The Advocate, a gay publication. Mr. Drudge quickly linked the two stories on his popular Web site, first headlining the Advocate piece, "ABC NEWS REPORTER WHO FILED TROOP COMPLAINTS STORY — OPENLY GAY CANADIAN." Eight minutes later, he amended the headline to read, "ABC NEWS REPORTER WHO FILED TROOP COMPLAINTS STORY IS CANADIAN," leaving readers to discover in the body of the story what the Bush provocateur apparently felt was Mr. Kofman's other vice.
- Maureen Dowd í NYT í dag.
Copyright 2003 The New York Times Company
júlí 19, 2003
My Big Fat Chinese Dinner
Eftir heilsusamlegan dag í faðmi hrossa og fjalla kom ég dauðþreyttur heim í kvöld.Nennti hvorki að elda né ná mér í einhvern mat þannig ég pantaði mér frá Nings. Pantaði kjúkling með hnetum og grænmeti og brún hrísgrjón með kjúklingi og grænmeti. Mikið af kjúklingi, grænmeti og hrísgrjónum. Úff, borðaði alltof mikið á meðan ég horfði á My Big Fat Greek Wedding. Þvílík snilldarmynd. Hafði ekki séð hana og hún stóð fyllilega undir væntingum og rúmlega það. Alveg óborganleg!
Gott veður
Nú er gott veður úti. Ég ætla að drífa mig aftur á hestbak.Var einn að smala stóðinu í gær í tæpa tvo tíma. Stóðið splittaðist í þrennt og voru átökin svo mikil (fyrir hestinn) að ég held ég hafi aldrei séð hann jafn sveittan. Endaði með því að síðustu trunturnar fóru kolvitlausa leið (það er svona þegar maður nær ekki að fara fyrir þær af því að maður er bara einn í þessu) og endaði með því að þær rákust upp fjallið eftir einhverjum þverhníptum götum sem voru á mörkum þess að vera færar hestum.
Langt síðan ég smalaði síðast en mikið djö. var það gaman. Verst að ég er gjörsamlega raddlaus eftir að hafa öskrað af öllum sálar kröftum í á annan klukkutíma :)
Íran
Góð grein eftir Reza Aslan, prófessor í íslömskum fræðum við Iowa háskóla, birtist í NYT í gær: Why Religion Must Play a Role in IranLesa áfram
júlí 14, 2003
Respiro
Ég fór í bíó í gær. Ítalska myndin Respiro varð fyrir valinu. Alveg stórgóð mynd að mér fannst. Ég reyndar hélt að ég væri að fara á mynd sem byggði á einhverri ítalskri þjóðsögu en ég hef sjálfsagt ruglað henni saman við einhverja aðra mynd. Reyndar kemur greinileg tenging við þjóðsögur í lokaatriðinu en maður verður ekki var við það fyrr.
Lesa áfram
júlí 13, 2003
Coupling
Í gærkvöldi horfði ég á 2. seríuna af Coupling á dvd með Siggu og Þóri.Þessir þættir eru SVO fyndnir að það jafnast fátt á við þá. Einn helsti kosturinn við þá er að þeir eru breskir og geta handritshöfundarnir því leyft sér ýmislegt hvað viðkemur beðmálum en bandarískir gamanþættir (Sex and the City augljósasta undantekningin). Maður sér því ekki alveg hvernig það á að ganga upp að endurgera þessa þætti fyrir bandarískt sjónvarp með fyrirsætu-útlítandi casti. Sally er orðin asísk í útliti Jane lítur út einsog lögfræðingur úr Ally McBeal. Jeff hinn ameríski er út af fyrir sig eitthvað sem maður sér ekki ganga upp (skyldi hann tala með Suðurríkja-hreim, svona til mótvægis við n-enska/skoska hreim hins breska Jeffs?).
NBC mun aldrei geta sýnt jafn "dónalega" þætti og Coupling á prime-time tíma. Þess vegna verður bandaríska útgáfan að vera ritskoðuð í samræmi við það. Helmingurinn af því sem sagt er verður að vera undir þvílíkri rós að það verður ekki fyndið, heldur amerískt. Auk þess hefur það margoft sýnt sig að Bandaríkjamenn hafa einfaldlega ekki húmor fyrir breskri fyndni.
Ætli það sé ekki viðeigandi að ljúka þessu á tilvitnun í Jeff:
Especially the tongues part. I love getting all that extra tongue. You know sometimes I eat really cold ice cream so my tongue goes numb and it feels like someone elses... but we all get lonely sometimes.Uh, já... eða ekki.
júlí 11, 2003
Grill & spil
Í gærkvöldi var grill og spilakvöld hjá Svan. Spiluðum Trivial og Actionary. Held að ég hafi tapað í öllum spilunum nema einu. Aftur á móti voru tilþrifin í Actionary ótrúleg á köflum. Sumir unnu hreinlega leiksigur með tungunni (sem því miður náðist ekki á filmu). Hér má aftur á móti sjá einbeitinguna in action...![]() |
Tvær fréttir
Iran's frustrated generationUnga kynslóðin er þreytt á ástandinu í landinu og vill frelsi. Ekkert nýtt en nokkuð sem mun gera þróunina í Íran næstu misseri mjög athyglisverða.
Mosque signals Muslims' return to Spain
Fyrst moskan á Spáni frá því að kristnir menn unni Grenada fyrir rúmulega hálfu árþúsundi var opnuð í gær. Föstudagsbænum er líklegast lokið þar fyrir nokkru í dag. Bygging moskunnar hefur verið rúmlega tuttugu ára ferli og hefur kallað á mótmæli íhaldsmanna.
júlí 09, 2003
Strákar
Skemmtileg grein: 10 myths about boysÞarna eru "10 staðreyndir um stráka" hraktar á skemmtilegan hátt.
Fyrr í vor las ég gríðarlega skemmtilega bók, Raising Boys: Why Boys Are Different - and How to Help Them Become Happy and Well-balanced Men, eftir ástralska barnasálfræðinginn/uppeldisfræðinginn Steve Biddulph. Bókin hefur verið metsölubók í Bretlandi og Ástralíu. Í inngangi lýsir Biddulph yfir að öll umræðan um uppeldi á síðustu 25-30 árum hafi (í besta falli) verið byggð á misskilningi. Strákar og stelpur eru einfaldlega ekki eins og þurfa mismunandi nálgun við uppeldið. Bókin fjallar síðan um uppeldi stráka og hvernig best verður að því staðið (að mati Biddulph). Inn í þetta spinnst síðan mikil umræða um eðli karlmanna. Þetta er alls engin "vörn" fyrir karla, eða karlrembuáróður, heldur bendir hann m.a. á ýmsar rannsóknir um áhrif mismunandi líkamsstarfsemi kynjanna á hegðun þeirra og atferli. M.a. hvernig standi á mismuninum á heilaberki kynjanna, seinni hreyfiþroska stráka þegar skólaganga byrjar, hvers vegna allt frá lesblindu til hegðunarvandamála er algengara meðal stráka í skóla, svo eitthvað sé nefnt. Mjög skemmtileg bók sem mæli með að sem flestir lesi, sér til ánægju og fróðleiks :-)
júlí 07, 2003
Eiga erl. fjárfestingar rétt á sér?
Það var athyglisvert að hlusta á Spegilinn á eftir kvöldfréttunum í kvöld.Þar var verið að velta fyrir sér spurningunni hvort að erlendar fjárfestingar ættu rétt á sér. M.ö.o. hvort að það væri forsvaranlegt að Íslendingar væru að fjárfesta í útlöndum. Hvort þessi peningur skilaði sér aftur til landsins o.s.frv.
Ég átti einfaldlega bágt með að trúa því að ég væri að hlusta á þessa umræðu árið 2003, því þetta minnti mann á allt það kjaftæði og þvælu sem einkenndi alla umræðu á Íslandi um efnahagsmál fyrir ekki nema 5-10 árum síðan.
Stór hluti almennings virðist hinsvegar, því miður, ekki skilja það að peningar sem fara úr landi skila sér aftur í formi arðgreiðslna (og skattgreiðslna) og að lítið hagkerfi getur ekki (og í raun ekkert hagkerfi) lifað það af að loka fyrir fjármagnsflutninga til og frá því.
Pöpulískir stjórnmálamenn þreytast aftur á móti ekki á því að röfla um þetta einsog þetta sé sem blæðandi sár í hagkerfinu. Þeir eru ekki svo ólíkir þeim fyrirgreiðslupólitíkusum sem nú mest væla yfir því að ákveðið hafi verið að fresta jarðgangnaborunum milli bæja í NA-kjördæmi.
Er nema von að maður verði pirraður út í umræðuna sem er í gangi í þjóðfélaginu í dag.
Flokkun: Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation , Stjórnmál , Viðskipti , Ísland
Stóri bróðir
Athyglisvert: Website turns tables on government officialsTveir gaurar við MIT hafa búið til kerfi á internetinu sem gerir almenningi kleift að skrá niður upplýsingar um pólitíkusa, rökstuddar eða órökstuddar, sem hver sem er getur svo skoðað á netinu, óritskoðað.
Kerfið er aðgengilegt hér: opengov.media.mit.edu
Þetta kerfi er smíðað að hluta til til að mótmæla "stóra bróðurs" kerfi stjórnvalda, Total Information Awareness program (TIA) en yfirlýstur markmið þess er að finna hryðjuverkamenn með því að skanna alls kyns upplýsingar um borgaranna. Total var reyndar breytt í Terrorist, það þótti hljóma betur.
En þetta verða aftur á móti að teljast nokkuð mögnuð mótmæli við þessu ógnvekjandi kerfi, sem aldrei hefði fengist samþykkt nema í hræðsluástandinu eftir hryðjuverkaárásirnar 11/9 '01. Nú eru menn hinsvegar að velta fyrir sér hvort að kerfi MIT-gauranna brjóti í bága við persónuvernd.
Ol' Strom (once again)
Skemmtileg grein á Slate.com: Strom's Skeleton.Ol' Strom gat víst dóttur með svartri þjónustustúlku á þriðja áratugnum.
Já, menn voru víst ekki alvöru rasistar í suðurríkjunum nema eiga lausaleikskróa með þeldökkum ambáttum eða (í seinni tíð) þjónustustúlkum.
Alveg meinfyndin mynd af komu Stroms til himna (eftir Doug Marlette):
![]() |
júlí 06, 2003
6. júlí
Í dag eiga afmæli Sylvester Stallone og George W. Bush. Þeir eru báðir fæddir 6. júlí 1946 og eru því 57 ára.Athyglisvert að Rambó og Bush séu fæddir sama daginn.
júlí 05, 2003
Náttúrulegt umhverfi
Það er alveg rosalegt hollt að geta brugðið sér af og til út fyrir borgarmörkin, hlaupið á eftir hestum, riðið um fjöll og firnindi og borðað grillað mat.Svo er voðalega þægilegt að geta farið heim aftur í heita sturtu, fengið sér einn Guinness og sofnað svo út frá góðri bók.
Svo er dagurinn búinn að vera hjá mér í dag og í gær.
júlí 03, 2003
Ég sé um hestinn...
Áðan fór ég að kaupa hest. Það tók ekki langan tíma.Annars horfði ég rétt áðan á einhvern þátt í Ríkissjónvarpinu um sögu undirfata kvenna. Það er mjög áhugaverður þáttur. Ýmislegt sem maður vissi ekki um nærfatnað á 18. og 19. öld.
Lesa áfram
Stór bomba
Þegar fréttir bárust af því í vikunni að Björn Bjarnason hefði skrifað grein í Moggann um meint samsæri Bandaríkjastjórnar til að koma Davíð frá völdum vissi maður eiginlega ekki hvort maður átti að hlæja eða gráta. Á svipuðum tíma birtist frétt um að HHG væri að skrifa ævisögu Laxness. Það var því sem að kominn væri 1. apríl!Ef þetta er hinsvegar virkilega það sem Björn heldur, þá held ég að það sé full ástæða til að efast um geðheilsu dómsmálaráðherra landsins - og það ekki í fyrsta sinn í Íslandssögunni.
júlí 02, 2003
SMS
Ég held að síminn minn sé í andaslitrunum. Í gær ákvað hann að hætta að senda sms nema í 10.-20. tilraun (og að lokum neitaði hann því alfarið). Á sama tíma tók hann ekki við neinum smsum nema að maður sendi sjálfum sér sms, svona einsog að ýta á refresh.Síma þennan keypti ég á sumardaginn fyrsta 1999. Áður hafði ég átt Motorola Slimlite síma frá því haustið '98. Honum náði ég að stúta endanlega með að missa hann (í 100. skiptið) í marmarann í Verzló og sparkaði í hann um leið þannig hann dúndraðist í marmarastólpa. Notaði hann samanlímdan í nokkra daga eftir þetta þangað til að ég keypti 6110-símann minn sem ég nota enn. Hann missti ég í gólfið hérna heima á 4. degi og kostaði viðgerðin á honum 10 þús. krónur. Síminn hafði sjálfur kostað 12 þús. nýr á Tal-tilboði til 12 mánaða.
Ég er því að velta fyrir mér að kaupa mér litla, högghelda 5210-símann, þegar sá gamli geyspar golunni endanlega. Held að annað myndi ekki endast mánuðinn hjá mér :)
- - - - - - - - - - -
Talandi um gsm-síma. Í dag sá ég eldri konu senda sms af miklum móð (nema hún hafi verið að leika sér í Snake). Þetta var hin virðulegasta kona og hefur verið einhvers staðar um sjötugt á að giska. Mér fannst þetta svolítið skemmtileg sjón, því hún pikkaði ekki einsog einhver aukvisi, heldur einsog true professional :þ

