júlí 13, 2003
Coupling
Í gærkvöldi horfði ég á 2. seríuna af Coupling á dvd með Siggu og Þóri.Þessir þættir eru SVO fyndnir að það jafnast fátt á við þá. Einn helsti kosturinn við þá er að þeir eru breskir og geta handritshöfundarnir því leyft sér ýmislegt hvað viðkemur beðmálum en bandarískir gamanþættir (Sex and the City augljósasta undantekningin). Maður sér því ekki alveg hvernig það á að ganga upp að endurgera þessa þætti fyrir bandarískt sjónvarp með fyrirsætu-útlítandi casti. Sally er orðin asísk í útliti Jane lítur út einsog lögfræðingur úr Ally McBeal. Jeff hinn ameríski er út af fyrir sig eitthvað sem maður sér ekki ganga upp (skyldi hann tala með Suðurríkja-hreim, svona til mótvægis við n-enska/skoska hreim hins breska Jeffs?).
NBC mun aldrei geta sýnt jafn "dónalega" þætti og Coupling á prime-time tíma. Þess vegna verður bandaríska útgáfan að vera ritskoðuð í samræmi við það. Helmingurinn af því sem sagt er verður að vera undir þvílíkri rós að það verður ekki fyndið, heldur amerískt. Auk þess hefur það margoft sýnt sig að Bandaríkjamenn hafa einfaldlega ekki húmor fyrir breskri fyndni.
Ætli það sé ekki viðeigandi að ljúka þessu á tilvitnun í Jeff:
Especially the tongues part. I love getting all that extra tongue. You know sometimes I eat really cold ice cream so my tongue goes numb and it feels like someone elses... but we all get lonely sometimes.Uh, já... eða ekki.
Agust skrifaði 13.07.03 13:54
Flokkun: Daglegt líf , Menning
Comments
Hljómar vel...
bio skrifaði 13.07.03 14:19ég keypti einmitt fyrstu seríuna af þessum þáttum eftir að ég hafði heyrt marga góða hluti um þá. Hinsvegar fannst mér fyrsti þátturinn svo slappur að ég hef ekki nennt að horfa meira. Þetta hlýtur þó að batna, miðað við allt góða umtalið
Einar Örn skrifaði 13.07.03 15:03Já, kannski ekki hægt að dæma þetta allt af 1. þætti 1. seríu. Myndi endilega klára seríuna áður en þú afskrifar hana. Ef þér finnast þetta hinsvegar hundleiðinlegir þættir máttu alveg gefa mér dvd-diskinn ;)
Ágúst skrifaði 13.07.03 17:20Jæja, er búinn að horfa á tvo þætti í viðbót og þetta er mun betra núna.
Samt fyndið að á NBC síðunni eru þeir með Sneak Preview af seríunni. Það er greinilegt að þættirnir eru teknir orðrétt og færðir til USA. Ég þekkti allavegana öll atriðin, sem voru sýnd.
Einar örn skrifaði 14.07.03 23:33