júlí 24, 2003
Matur á sanngjörnu verði
Útlendinar sem eru staddir hérna í vinnuferð fram í ágúst hafa verið að leita ráða hjá mér með ýmislegt á Íslandi, m.a. veitingahús. Þeir eru búnir að taka ástfóstri við Ítalíu og finnst það góður staður en full dýr fyrir budgetinn. Þeir eru að leita að góðum mat á sanngjörnu verði. Er hann til á Íslandi? Einhverjar tillögur? (Sent með SMS)
sms skrifaði 24.07.03 11:10
Flokkun: SMS
Einhvern veginn finnst mér austur indíafélagið aldrei vera dýr staður, frekar bara sanngjarn. Reyndar hafa þeir hækkað verðið síðan ég fór þangað síðast og einfaldað eitthvað matseðilinn en óttalega er þetta góður matur.
Gummi Jóh skrifaði 24.07.03 11:24Jamm, búinn að benda þeim á það. Aftur á móti eru þeir meira að leita að alvöru mat. Hvað skal segja, einn þeirra er ítalskur, ef það segir þér eitthvað ;)
Þeir vilja ekki junk food (fannst Stællinn allt í lagi sem fast food), vilja bara verða saddir og borga hæfilega fyrir það. Ekkert fancy-smancy.
Vandamálið er hinsvegar að það er bara gjá á milli annars vegar fullt af skyndibitastöðum og svo yfir-meðallagi dýrum stöðum á borð við Ítalíu. Svo er nóg til af virkilega góðum (og rándýrum) stöðum. Þeir t.d. hættu við að fara á Argentínu þegar þeir sáu að verðið var þrefalt Kanadaverð sem þeir eru vanir.
Hefur einhver prufað Grillhúsið, Tryggvagötu? Er það í lagi. Sá það á "veitingahúsagagnrýni Doktors Gunna". Er Potturinn og pannan ekki líka frekar sanngjarnt prísuð?
Ég er búinn að komast að því að ég einmitt þekki bara annars vegar skyndibitastaði og svo út-að-borða staði sem eru full dýrir.
Ágúst skrifaði 24.07.03 12:00Ég held allavega að ódýrasti humarinn á höfuðborgarsvæðinu sé til staðar á Pottinum og pönnunni ;)
Mér finnst alltaf ágætt að fara þangað, maður borgar ekkert of mikið og ekki annað hægt en að fara heim saddur
Vera skrifaði 24.07.03 12:14Er ekki Askurinn klassískur?
Óli skrifaði 24.07.03 14:19Þú ert væntanlega ekki að tala um skyndibita.
Það er ekki mikið um svona ódýra alvöru veitingastaði. Dettur einna helst í hug Laugaás. Ég fór einu sinni alltaf með pabba i hádeginu einu sinni í viku og fannst maturinn mjög góður.
Grillhúsið er fínn staður, en samt ekki svona ótrúlega frábær einsog Dr. Gunni gefur í skyn.
Einar Örn skrifaði 24.07.03 14:55Hafðu ekki áhyggjur, Einar, ég er búinn að benda þeim á Serrano ;)
Ágúst skrifaði 24.07.03 15:44Humm... þú ættir að spurja svan. Hann er búinn að fara bókstaflega út um allt.
En annars er Hornið (Hafnarstræti 15) staðurinn sem ég mundi benda á. Þegar ég fór þangað var þetta hinn fullkomni milliklassa staður. Ágætis matur á mjög sanngjörnu verði.
Hér er (hallærislega) heimasíðan þeirra (verð eru á matseðlinum).
http://www.hornid.is/
Strumpakveðjur :)
Strumpurinn skrifaði 24.07.03 17:19Mama's Tacos.
Steindór skrifaði 24.07.03 23:39Djöfull er þetta steiktur bær sem ég bý í, Garðabærinn, svona þegar maður fer að velta veitingastöðum fyrir sér. Er einhver matsölustaður í bænum annar en Pizzan hans Gumma? Svan? (Sælg og ví/Bitabær eru ekki matsölustaðir :)
Hvað varð um McDonald's sem átti að setja fyrir neðan Pharmaco? :)
Tolli skrifaði 25.07.03 00:27Ég prufaði Mama's Taco um daginn. Alltílæ svosem en gvakamóle í remúlaðitúbum er ekki alveg að gera sig. Bærilegt junk food en mér finnst Serrano betri. Reyndar meira úrval á Mama's, sem er kostur.
Ágúst skrifaði 25.07.03 00:38NONNABITI
Stefán Einar Stefánsson skrifaði 25.07.03 09:53Ágúst minn!
Ég skal bara redda þessu fyrir þig, sendu þá heim í mat til mín í Kópavoginn. Eins og þú veist er ég "sérstaklega" rómuð fyrir matargerðarhæfileika mína...!
Dísa skvísa skrifaði 25.07.03 12:52Tolli: Bæjarstjórnin í Garðabæ(D) var á móti McDonalds fyrir neðan Pharmaco vegna þess að þeir voru svo hræddir um að skólakrakkarnir í Flataskóla og Garðaskóla myndu hanga þar daginn út og daginn inn :)
Þessvegna gufaði hann upp.
Það er gæti verið einn annar staður í bæjarfélaginu með mat heldur en bara Pizzan. Kaffihúsið sem var sett á Garðatorgið gæti verið með eitthvað líka..........
Óli G. Håk skrifaði 25.07.03 15:17