júlí 28, 2003

Er mjólk góð?

Nú hef ég ekki neytt mjólkurafurða í 6 vikur, utan smá skvettu útá Weetabixið á morgnanna, og virðist ég nú kominn í hóp hörðustu mjólkurandstæðinga, sem ég áður leit svipuðum augum og grænmetisætur, sumsé fólk sem neitaði sér um fæðu að óþörfu. Nú er ég aftur á móti farinn að prédika gegn brjálaðri mjólkurneyslu Íslendinga, svo bregðast krosstré sem önnur tré.
Nú er spurningin, er mjólk góð eða er það bara áróður MS og landbúnaðarmafíunnar? (Sent með SMS)


sms skrifaði 28.07.03 11:57

Flokkun: SMS
Comments

Stanslaus áróður mjólkurfyritækja fær fólk til að halda að mjólk sé mun hollari en hún er.

Nánast allar auglýsingarnar tala um kosti kalks. Staðreyndin er hins vegar sú að það er hægt að fá kalk úr fjöldanum öllum af fæðutegundum, sem eru betri en mjólk, til dæmis brokkolí, fisk og fleiru.

Svo kostar mjólkin náttúrulega okkur skattgreiðendur mikinn pening.

Sjálfur nota ég bara mjólk (undanrennu) ofan á Alpenið á morgnana. Tek svo fjölvítamín, sem inniheldur nóg af kalki.

Sjá athyglisverða grein

Einar Örn skrifaði 28.07.03 13:30

Kostnaður vegna beingreiðslnanna til mjólkurframleiðenda (kúabænda) eru rúml. 20 þús. krónur á ári. Fjögurra manna vísitölufjölskyldan ber því kostnað upp á rúmar sjö þúsund krónur á mánuði, óháð mjólkurneyslu.

Þetta er m.v. 6 milljarða í beingreiðslur á ári til mjólkurframleiðenda, man ekki nákvæma tölu.

Ágúst skrifaði 28.07.03 13:57

Annars bjóst ég við að harðasti mjólkurneysluandstæðingurinn hefði eitthvað um málið að segja ;)

Ágúst skrifaði 28.07.03 13:58

Ég þarf að fá að fá tíma til að jafna mig á þessari umræðu. Ég mun koma í hana seinna þegar ég hef farið erlendis og búinn að ná fullum bata. Ég vil biðja alla að hætta að ræða þetta þangað til.

Gulli skrifaði 28.07.03 14:30

Puh! Það er nú ekki marka þig, Gulli, þú ert sjálfur beljubóndi :-þ

Ágúst skrifaði 28.07.03 14:51

Tja fyrst þú predikar gegn mjólkurneyslu væri áhugavert að þú segðir frekar frá hver rökin gegn mjólkurneyslu eru.

Hrafnkell skrifaði 28.07.03 20:31

Jesús kristur á þetta að vera umræðuefni.

Víst að við erum með heimskuleg umræðuefni þá vil ég benda á einn hlut. Súrefnisnotkun er einn af þeim hlutum sem fer verst með okkur. Stór hluti öldrunaráhrifa er ofureinfaldlega súrefnið að tætta okkur í sig. Lungun fara mjög illa út af súrefninu og er ellidauði af mörgum talinn bein afleiðings súrefnis í andrúmsloftinu. Talið er að maðurinn gæti ekki lifað að mikið lengur en hann gerir, þó ekki væri nema vegna þess að súrefnið tærir líkamann og þá sérstaklega öndunarfæri jafnt og þétt. Á þessu er augljóslega bara ein lausn.

Hættum að anda.

Einhver með fleiri heimskulegar hugmyndir um hluti til að berjast gegn?

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 29.07.03 03:10

Hættum að anda - þetta gæti verið átak landlæknisembættisins. Ég styð það heilshugar. Þá strax losnum við fólk sem ekki hugsar og er genaral heimskt, er ginkeypt af auglýsingum og tískusveiflum. Burt með svoleiðis fólk.

Þetta myndi að vísu hafa það í för með sér að www.semsagt.net myndi hætt að starfa.

Gulli skrifaði 29.07.03 14:10