júlí 28, 2003

Barnastjörnur

Barnastjörnur eru alltaf hálf aumkunarverðar, greyin. Dæmin sanna a.m.k. að líf barnastjarnanna verður gjarnan hálf stormasamt í kringum unglingsárin og eru þær ófáar útbrunnar um tvítugt.

Það er ekki bara vandamál í einkalífinu sem fylgja því þegar barnastjarna fer að fullorðnast, a.m.k. ekki af viðkomandi barnastjarna er stjarnan í sjónvarpsþætti. Þá þýðir aukinn þroski aukin vandamál fyrir framleiðendur þáttanna.
Það er einmitt það sem er að gerast í kringum þættina um Malcolm in the Middle: Don't Wanna Grow Up Cuz Puberty Isn't Funny
Agust skrifaði 28.07.03 17:49

Flokkun: Menning