júlí 28, 2003
Amazon-pakki
Ég var að fá pakka í hús frá Amazon.co.uk sem ég pantaði fyrir helgi. Það er alltaf gaman að fá Amazon-pakka (verst hvað vaskur og tollur hækkar verðið).Meðal þess sem ég pantaði núna var Inventing Japan, sem ég bíð spenntur eftir að sökkva mér í gegnum. Hún fékk mjög góða dóma í Economist og hefur þann stóra kost að vera ekki nema 200 síður. Semsagt uppfyllir annað grundvallarskilyrðið um bækur sem ég kaupi án umhugsunar (annaðhvort innan við 200 bls. eða 1.000 krónur).
Ég keypti líka tvær bækur um alþjóðavæðinguna, eina hágæða breska kerlingabók (með mjög bleiku coveri) og bók handa litlu systur (eftir Jacqueline Wilson einsog alltaf).
Einn geisladisk keypti ég, 5000 Spirits Or the Layers of the Onion, og þrjár vídjóspólur: Love and Death með Woody Allen og Diane Keaton (alltaf góð blanda), The Rocky Horror Picture Show (þarfnast engra útskýringa en nauðsynlegt að hljóðið sé í stereo) og myndin sem ég hef leitað að alllengi en hvergi fundið (nema á uppsprengdu verði hjá Videohöllinni), Monty Python's Life Of Brian.
Nóg um það. 5000 Spirits eru ekki að valda vonbrigðum. Dúddírúddídú...
Agust skrifaði 28.07.03 21:33
Flokkun: Daglegt líf
Minnir reyndar að Life of Brian hafi nú verið til í 2001 á Hverfisgötunni á ágætu verði. Alltaf gott að kíkja í 2001. Um daginn keypti ég mér Live at Wembley með Queen á dvd þar á 2790 á meðan diskurinn kostaði 4290 í Skífunni (var reyndar á 3490 á tilboði í viku).
Óli Gneisti skrifaði 28.07.03 22:07Mér finnst mjög leiðinlegt hvað tollur og vaskur hækka verð á öllum nauðsynjum einsog golfsettum og bókum. Ég ætla t.d. að kaupa mér golfsett hér heima sem kostar 74.000 kr. Í Bandaríkjunum kostar það 46.000 kr. en svo má ég margfalda með 1,4 til þess að fá verðið sem ég fæ það á inn til landsins en það verður þá 64,400 og svo kostar að flytja það en DHL gerir það fyrir 14.500 kr. Þá kostar golfsettið 78.900 kr. En annars hefði það kostað með flutningskostnaði 60.500 og ég sparað 13.500 kr. sem ég hefði verið mjög sáttur við.
Stefán Einar Stefánsson skrifaði 29.07.03 09:27