júlí 29, 2003

"Kynvilluótti"

Var að horfa á seinni hlutann af Seinfeld. Góðir þættir, verst að þeir eru sýndir á slíkum tíma að ég gleymi þeim alltaf.
Hvað um það, Seinfeld sagði homophobic og þýðandinn þýddi það sem sem "kynvilluótta". Bætti svo um betur og þýddi heterosexual sem "kynvísi".
Skyldi þýðandinn vera í Krossinum?
Agust skrifaði 29.07.03 18:28

Flokkun: Jafnréttismál
Comments

Það á náttúrulega að senda þessari sjónvarpsstöð tölvupóst og kvarta yfir svona forneskjuþýðingum.

Már Örlygsson skrifaði 29.07.03 18:49

Held að þetta sé upprunalegu þýðingarnar, ca. 10 ára gamlar - en það er engin afsökun.

Ágúst skrifaði 29.07.03 20:16

Jamm, ég sá þetta líka. Ég hélt alveg pottþétt að ég hefði mislesið eitthvað. Hvar finna þeir svona fólk?

Einar Örn skrifaði 29.07.03 20:18

...svona fyrir utan að við erum að tala um þýðingu á þætti, þar sem í einum þættinum Jerry og George voru álitnir hommar og fræga setningin "not that's anything's wrong with it" var sérstaklega sögð til að undirstrika að ekki væri verið að gera grín á kostnað homma, meira viðkvæmi gagnkynhn. karla við að vera álitnir hommar.

Ágúst skrifaði 29.07.03 20:34

Já, by the way. Magnað að þú skulir vera með heilan flokk, sem heitir Jafnréttismál!!!!!

Einar Örn skrifaði 29.07.03 23:43

Trúlega er þýðandinn klaufskur frekar en illviljaður. Maður veit þó aldrei.

Það er samt margt undarlegra til. Talar Mogginn ekki ennþá um "Múhameðstrúarmenn"?

Sverrir skrifaði 30.07.03 14:16

Ekki bara Mogginn, Ólafur Ragnar sagði líka Múhameðstrúarmenn í einhverri ræðu. Magnað að menn í þeirri stöðu skuli ekki vita betur.

Einar Örn skrifaði 30.07.03 20:13

Það er nú líka alltaf talað um Búrma, svona ef menn vilja velta sér upp úr vankunnáttunni. Maður hefur líka lesið um landið "Belarus" o.fl. í þeim dúr. Mér finnst aftur á móti tal um "múhameðstrúarmenn" sýna vanþekkingu, ekki fordóma í sjálfu sér.

Að sama skapi heyrir maður oft í umræðunni talað um múslima og araba einsog sama hlutinn.

Af tvennu illu er heimskur maður þolanlegri en fordómafullur.

Ágúst skrifaði 30.07.03 22:31