júlí 29, 2003
Thomas Friedman
Ég var að horfa á viðtal við Thomas Friedman um alþjóðavæðinguna eftir 11. september 2001 á yaleglobal.yale.edu, sem er fróðlegur vefur. Þar er einnig hægt að nálgast transcript af viðtalinu og fleiri videoupptökur af áhugaverðum fyrirlestrum o.fl..Fyrirlestur (og spurt&svarað eftir hann) sem Friedman hélt í Yale í lok janúar í ár er einnig að finna á vefnum. Aðalumræði fyrirlestrarins (og umræðunnar á eftir) var Mið-Austurlönd, nema hvað. Í umræðunni kemur hann inn á mjög góða punkta varðandi innrásina í Írak (sem varð ekki fyrr en rúmum mánuði eftir að fyrirlesturinn var haldinn).
Mjög áhugavert. Fyrirlesturinn sýnir líka að Friedman er ekki aðeins góður blaðamaður, heldur einnig skemmtilegur fyrirlesari.
Áhugasamir ath! Þetta er mjög stórir videofælar (Real Player) í góðum gæðum, fyrirlesturinn er þrjú korter, umræðan á eftir 38 mínútur og viðtalið er 16 mínútur.
Agust skrifaði 29.07.03 23:17
Flokkun: Hnattvæðing/Globalisation , Mið-Austurlönd
Comments
Er hann eitthvað skyldur Kinky nokkrum Friedman???
Sibba skrifaði 01.08.03 19:39