júlí 31, 2003

Heilagt stríð páfans gegn samkynhneigðum

Nú hefur George W. Bush ekki aðeins sagt samfestri sambúð samkynhneigðra stríð á hendur, heldur páfinn líka: Vatican drive to curb gay marriage
Fyrir hvað stendur kaþólska kirkjan í dag? Jú, í fyrsta lagi hefur hún berist gegn getnaðarvörum, sérstaklega í Afríku, þar sem hún mótmælir fræðslu líknarsamtaka um getnaðarvarnir í baráttunni gegn eyðni, auk þess sem dreifing slíkra samtaka á smokkum til fátækra er að meti Páfastóls ekkert annað en glæpur gegn mannkyninu. Í öðru lagi kynsveltir hún þjóna sína og stendur þar vörð um miðaldauppfinningu þáverandi Servus servorum á 11. öld, Benedikts VIII. (eða Gregoríusar VII. eftir því hvernig á það er litið) sem kom til í pólitískum tilgangi. Og í þriðja lagi berst hans heilagleiki og hans hirð gegn mannréttindum samkynhneigðra.
Reyndar dettur mér alltaf í hug Monty Python textinn úr Meaning of Life, þegar ég heyri umfjöllun/umræðu um baráttu kirkjunnar manna við getnaðarvarnir:
Every sperm is sacred,
every sperm is great,
If a sperm is wasted,
God gets quite irate.
Það var og.
Agust skrifaði 31.07.03 22:24

Flokkun: Heimspeki , Jafnréttismál , Mannlíf á jörðu , Stjórnmál
Comments

Það var og. Takk fyrir þetta.

Gulli skrifaði 01.08.03 03:00

Það er ekki ofsögum sagt að katólska kirkjan hafi ekki verið sérlega framfarasinnuð í gegnum tíðina. Í dag eru þeir þó (vonandi) hættir að brenna villutrúarmenn (les. vísindamenn)...

Er það misminni hjá mér að hjónabönd samkynhneigðra séu leyfð á Íslandi, eða var það bara arfaléleg blaðamennska Fréttablaðsins í morgun að gleyma að bæta því inn í fréttina frá AP?

Finnbogi skrifaði 01.08.03 09:30

Samkynhneigðir mega skrá sig í staðfesta sambúð og geta því hommar og lesbíur t.d. talið saman fram til skatts og verið höndlaðir af "kerfinu" sem hjón. Ættleiðingar eru leyfðar á börnum annars aðilans en ekki "nýættleiðingar". Kirkjan lútherska gúdderar ekki hjónabönd samkynhneigðra hér en sumir prestar veita þeim "blessun".

Ágúst skrifaði 01.08.03 10:03

Já, þetta minnti mig - það verður seint logið upp á Fréttablaðið í þessum efnum.
Staðfest sambúð er sem sagt fullgilt hjónaband fyrir mönnum en ekki guði - það ætti nú að duga flestum Íslendingum enda eru þeir hvort eð er bara trúaðir á jólunum.
Ef ég man rétt var eitthvað talað um frumættleiðingar og glasafrjóvganir samkynhneigðra á síðasta þingi - þeir hljóta nú að fara að kippa þessu í liðinn...

Finnbogi skrifaði 01.08.03 14:25