ágúst 05, 2003
Öfugir símar
Af hverju eru allir símar með "öfugu" lyklaborði? Ég er alltaf að hringja vitlaust í vinnunni, þegar ég hoppa af reiknivélarborðinu yfir á símann. Stimpla inn 1987 í stað 7321 o.s.frv.
Af hverju í ósköpunum er þetta ekki eins? Ég er orðinn þreyttur á öllum þessum skökku númerum! (Sent með SMS)
sms skrifaði 05.08.03 15:20
Flokkun: SMS
Comments
Misjafnt milli síma. Sumir eru öfugir aðrir réttir.
Strumpurinn skrifaði 05.08.03 20:20Minnir mig reyndar á atvikið þegar ég "lagaði" þetta hjá ritaranum í vinnunni, gerði takana eins og á síma. Hún varð VOND.
Ég næ nú alltaf að massa símann rétt þó að ég hafi verið að nota talnaborðið lengi. Var samt ekki alveg nógu sáttur þegar ég var með tvo borðsíma hlið við hlið, annan réttan, hinn rangan (það er síðan up for debate hvort sé hvað :)
Tolli skrifaði 05.08.03 21:53