ágúst 05, 2003

Kaffi er gott fyrir kroppinn

Coffee 'boosts exercise stamina'
Sko! Kaffi er kannski eftir allt saman allra meina bót, einsog Ragnheiður samstarfskona mín heldur alltaf fram.
Reyndar hef ég aldrei mótmælt koffeinneyslu, enda versti koffeinfíkill sem fær fráhvarfseinkenni fái ég ekki "skammtinn" minn fyrir hádegi. "Skammturinn" hefur þó minnkað til mikilla muna, drakk 2-3 glös (já, glös, "hagstæðara" í kaffiteríunni í HR) að meðaltali f.h. í vetur en fæ aðeins hálfan núna vegna magavesens. Ragnheiður aftur á móti hefur ráðlagt mér að drekka kaffi við magaveseninu og er sannarlega sú eina sem hefur gert það.

Þess má geta að expresso-kaffi er sú ristunaraðferð sem gefur kaffinu minnsta koffeinmagnið, þvert á það sem margir telja (hér eru fleiri skemmtilegir fróðlegsmolar).
Agust skrifaði 05.08.03 19:44

Flokkun: Daglegt líf , Matur og vín
Comments

Þó ég viti ekkert hvað er að þér í maganum að þá er ég sjálfur með magarugl í mínum líkama og kaffi hefur oftar en einu sinni rifið mig af stað ef maginn hefur verið illa fyrir kallaður. Smá kaffi og allt fer í gang.

Gummi Jóh skrifaði 05.08.03 19:57