ágúst 06, 2003
FM 90.9
Nú ætla þeir að stofna enn eina útvarpsstöðina. Skonrokk á hún að heita, skv. heimasíðu Doktors Gunna.Og útsendingartíðnin? Nei, ekki 97.7 þar sem hin skrelfilega útvarpsstöð X-ið var (og ég held reyndar að sé komin aftur). Ekki 102.2, þar var einhver barnarás síðast þegar ég vissi, Útvarp Latibær eða eitthvað álíka. Nei, það fyrsta sem var tilkynnt - á undan nafninu - var að tíðnin yrði 90.9.
NEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!!
Ég fór að geta hlustað á útvarp eftir langt hlé fyrir rúmum tveimur árum. Þá fóru Norðurljós að endurvarpa BBC World Service á gömlu Aðalstöðvar/Gull-tíðninni.
Þegar Norðurljós tóku yfir Fínan miðil var eitt af því sem Norðurljósa-spekingunum datt í hug að leggja niður X-ið og sameina það Radíó. Sú síðarnefnda hafði verið stofnuð X-inu til höfuðs. Nei, það var nóg að halda úti einni stöð fyrir þennan markhóp. Að sama skapi var Gullið lagt niður, enda ekki hægt að halda úti útvarpsstöð fyrir "örfáa leigubílsstjóra" einsog einhver yfirmaður hjá Norðurljósum orðaði það. Engu að síður höfðu Norðurljós séð ástæðu til að stofna svipað stöð og Gullið á 102.2, þannig greinilegt var að nægilega miklar auglýsingatekjur og hlustun fór til Gullsins til að stofna sér útvarpsstöð henni til höfuðs, en ekki nægilega miklar tekjur og hlustun til að reka hana eina og sér. Undarleg arðsemisgreining það, einsog svo margt annað hjá því ágæta fyrirtæki Norðurljósum.
Hvað um það, fyrri part ársins 2001, minnir mig, fóru þeir að útvarpa jazz tónlist á 97.7 og um svipað leyti fóru þeir að endurvarpa BBC á 90.9.
Og ég fann loksins eitthvað til að hlusta á.
Nú á aftur á móti að stofna sérstaka útvarpsstöð utan um Zombie þáttinn sem sá yfirbrunni "fyndni karl" Sigurjón Kjartansson og landsins frægasta tónlistargúrú, Doktor Gunni, stjórna. Gott og vel.
Það er aftur á móti algjör óþarfi að svipta hugsandi fólk einu leiðinni til að fá fréttir og fréttaskýringar, viðtöl og heimildaþætti í útvarpi, unna og skrifaða af fagfólki, sem bæði hefur þekkingu á efninu og - það sem ekki skiptir minna máli - afgang og tungu til að tala við rétta fólkið og fá sérfræðinga í viðtöl. Fréttaskýringar á Íslandi kallast það þegar Sigurður G. Tómasson - eða einhver álíka útvarpssveinn - ströggla við að þýða einhvern texta af fréttavef á netinu.
Ástandið í Líberíu? Já, reynum endilega að fá einhvern íslenskumælandi til að ræða það, good luck! Lífskjör fólks í Mið-Asíu lýðveldunum? Já, ekki málið að finna einhvern íslenskumælandi heimamann til að ræða við okkur!
Óteljandi fróðlegir þættir, sem ekki í villtustu draumum fréttafíkla væri hægt að bjóða upp á á Íslandi, Outlook, Everywoman, Analysis, From Our Own Correspondent, Go Digital o.s.frv. Ekki það að það er einstaka sinnum hundleiðinlegt að hlusta á rásina. Ég nenni t.d. ekki að hlusta á leikritin eða þegar það eru beinar lýsingar frá ensku knattspyrnunni, óþolandi.
Ég - og fleira hugsandi fólk - verð því sviptur öllu þessu þegar enn ein X-stöðin verður sett á tíðni BBC W-S. Engar fréttaskýringar, engir heimildaþættir, engar upplýsingar um umheiminn nema útdrættirnir sem íslenskir fréttamenn þýða ofan í okkur með misgóðum/lélegum árangri. Engin fróðleikur. Engin upplýsing. Ekkert. Bara enn ein útvarpsstöðin stofnuð utan um Sigurjón Kjartansson. Ég ætla að gerast svo djarfur að "Fyndnasti maður Íslands" verði bráðlega kominn með þátt á nýju stöðinni.
Agust skrifaði 06.08.03 23:40 | TrackBack
Flokkun: Daglegt líf , Fréttir , Menning , Viðskipti , Ísland
Ég er algjörlega sammála þér. Þetta er eina útvarpsstöðin sem ég hlusta á, allt hitt er meira eða minna rusl. Ég skil ekki afhverju verið er að stofna útvarpsstöð utan um kulnandi stjörnu eins og Sigurjón K.
Ivar skrifaði 07.08.03 00:19Það er nokkuð gaman að lesa svona reiðan Flygenring. Miðað við efnistökin á síðunni skil ég alveg reiðina og úrskurða þetta réttláta reiði.
En er ekki bara það sem gerðist það sama og þú segir "Undarleg arðsemisgreining". Ég hef aldrei skilið hvernig Norðurljós getur sent út. Þekki ekki kostnaðinn á bak við stöðina en ef þeir fá ekki stuðning frá sendiráði Breta eða eitthvað álíka þá eru tekjurnar engar. Eða eru tekjur 90,9 einhverjar?
bio skrifaði 07.08.03 08:23ég gleymdi aðalatriðinu...
þú þarft náttúrlega ekkert að hætta að hlusta á BBC World Service.
Veist væntanlega að þú getur hlustað hér...
http://www.bbc.co.uk/worldservice/
Það er greinilega bara eitt ráð í stöðunni. Maður verður að fá sér nettengingu í bílinn og hlusta svo á straumaða útgáfu BBC :-)
Jensi skrifaði 07.08.03 08:52Ég er nú á því að rás 2 sé oft til fyrirmyndar en þó aðallega í tónlist og þjóðvegaspjalli.
Algjör hneysa að verða af BBC W-S! Spurning um að ríkisútvarpið bryddi upp á því að endurvarpa öðru ríkisútvarpi?
Annars var ég nú tekin viðtal af BBC úti. Spurning dagsins var "male grooming" og var efnið "the sack and crack wax". Ég hafði ekki mikið að segja...
Oli skrifaði 07.08.03 10:17Ég er á því að þetta er einn skemmtilegasti pistillinn, sem þú hefur skrifað í langan tíma. Gott að tappa aðeins af reiðinni :-)
Annars er þetta náttúrulega rugl. Kannski fá Norðurljós ekki miklar tekjur af þessu, en það má líka spyrja sig hversu mikill kostnaður er af þessu. Væri ekki hægt að fá einhvern sponsor, sem kæmi inn á 10 mínútna fresti. Ég er viss um að einhver virðulegur banki væri til í það.
Einar Örn skrifaði 07.08.03 11:47Björgvin, ástæðan fyrir að þessi fróðómur er sendur út á tíðni Norðurljósa var að NL áttu þarna tíðni sem þeir þurftu að "geyma". Ef ekkert er sent út á tíðinni eiga þeir á hættu að missa hana. Þá gætu einhverjir aðrir stofnað útvarpsstöð og það vilja NL-menn auðvitað ekki.
Ég veit ekki betur en að BBC W-S sé ókeypis fyrir NL, en þeir hafa á móti engar tekjur af stöðinni.
Reyndar sé ég ekki alveg hvernig Útvarp Sigurjón Kjartansson muni standa undir sér. Svona m.v. allan kostnaðinn sem fer í að starta svona dæmi - til þess að það lifi í 2-3 ár áður en það er byrjað upp á nýtt frá grunni... eða bara lagt niður.
Annars væri gaman að vita hversu stór hópur það er sem hlustar á BBC W-S hér á landi. Ég veit reyndar að útlendingar sem staldra hér við hlusta á fréttirnar þarna, enda engar aðrar að fá á ensku í útvarpi, nema stutt fréttayfirlit á Rás 1 einu sinni á dag (minnir mig).
Það er alveg skelfilegt að missa þessa vin í eyðimörkinni til þess að NL geti ausið peningum í að éta hlustendur af sjálfum sér. BBC W-S hlustendurnir munu hinsvegar flestir slökkva á viðtækjunum eða pirra sig á því hve íslenskt útvarp er skelfilega leiðinlegt.
Já og Jens, það er einmitt vandamálið, ég bý í Hafnarfirði og ek því í a.m.k. hálftíma á dag, stundum á annan klukkutíma ef ég þarf að útrétta eitthvað etc. Ég hlusta nær eingöngu á BBC W-S í bílnum. Ætli ég verði ekki að fara að hafa geisladiska í bílnum, eins leiðinlegt og er að hafa ekkert til að hlusta á þegar maður er með autopilotinn í gangi á milli bæjanna.
Einar, ég er alveg sammála. Senda breska sendiherranum bréf, útvarpsstjóra BBC og Bjarna Ármannssyni eða einhverjum álíka. Jafnvel Björgúlfi, I don't care. Aðalatriðið er að BJARGA BBC!!
Ekki það að ég hef enga trú á öðru en að ég þurfi að fara að hlusta á geisladiskana mína.
Ágúst skrifaði 07.08.03 12:16Já, það má þá kannski hugsa sér að taka upp straumana á netinu, brenna þá á disk og hafa í bílnum?
Hugsanlega of mikil nördaskapur? Ég veit það ekki!
Jensi skrifaði 08.08.03 00:51Það mætti kannski athuga samband þess að nokkrunveginn á sama tíma og æslendingar hefja hvalveiðar á ný sjá Norðurljós sér hag í að droppa BBC. Forðum þegar fitugi framsóknarrostungurinn var sjávarútvegsmálaráðherra komst hann upp með að ljúga landann fullan um að hvalveiðar hefðu ekki hin minnstu áhrif á æslenska hagsmuni erlendis. Um leið var verið að loka okkar fiskiverskmiðjum út um allan heim í beinu sambandi við fyrirlitningu erlendra á hvalveiðum okkar.
Nú eins og þá þarf að stappa þjóðernisgorgeirnum í lýðinn en það gæti veist erfiðara ef óritskoðaðar fréttir dynja á honum að utan um það hvað við erum óvinsæl vegna hvalveiðanna.
Man einhver nákvæmlega hvaða dagsetningar það voru sem veiðarnar hófust og Norðurljós skrúfuðu fyrir BBC Worldservice?
Ólafur skrifaði 31.08.03 13:33