ágúst 07, 2003
Hlutir sem ég umber ekki
Ég er prinsipmaður. Sumt er nær algilt af prinsipástædum. Tvennt af því sem ég umber ekki í fari fólks eru óheiðarleiki og undirferli, að koma ekki hreint fram. Slíkt er óafsakanlegt og óþolandi. (Sent með SMS)
sms skrifaði 07.08.03 16:10
Flokkun: SMS
Dæmi um slíkt væri þá væntanlega t.d. ef forsætisráðherra mundi lofa (fyrir kosningar) án þess að nokkur vafi léki á, að tryggja línuívilnanir fyrir smábáta, en svíkja það svo við fyrsta tækifæri?
Fleiri skemmtileg dæmi væri eflaust hægt að telja til.
Ragnar skrifaði 07.08.03 16:32Já... ég hafði nú meira svona vinur/vinkona stingur vin sinn/vinkonu sína í bakið í huga.
Pólitíkusar hafa það að atvinnu að blekkja. Maður hefur aftur á móti meiri trú og býst við meiru af vinum/vinkonum sínum.
Ágúst skrifaði 07.08.03 17:50Því miður þekki ég engan sem aldrei hefur verið óheiðarlegur og undirförull, síst af öllu vini mína. En auðvitað eru viss mörk.
Ármann skrifaði 08.08.03 09:15Dæmi um svona er t.d. fólk sem siglir undir fölsku flaggi á internetinu, það er prinsipp sem er algerlega heilagt. Líka fólk sem eyðir kommentum út af síðum, það er óþolandi.
Jón skrifaði 09.08.03 18:26Þú ert alltaf jafn fyndinn, Óli Njáll (Jón). Svo fyndinn að ég skal birta það sem þú varst búinn að skrifa hérna áður af þinni alkunni hótfyndni.
8.8.2003 kl.02:19Þú ert samur við þig, það máttu eiga. Ágúst skrifaði 10.08.03 01:03
Já eins og til dæmis þegar fólk skrifar á internetið og þykist vera einhver annar. Það er sjúkt.
9.8.2003 kl.00:43
Alveg hjartanlega sammála. Það er fátt meira óþolandi en svikult og undirförult fólk, t.d. það sem kemur fram undir röngu nafni á internetinu og eyðir kommentum annarra á miður góðum heimasíðum.