ágúst 17, 2003
D. 8202-8203
Í gær fór ég í partý til Veru og Haffa. Þar þekkti ég engan þegar ég kom - nema Veru. Var því munaðarlausi gesturinn í smá tíma ;)Þema partýsins var skegg! Mér hefur aldrei áður fundist ég öðruvísi vegna þess að ég var skegglaus.
Síðan komu Bjarni og Unnur bæði skegglaus. Bjarni plataði mig til að láta vinkonu Veru teikna skegg á mig. Hann fékk einskonar Zorro skegg en ég fékk mér semi-Salvador Dali skegg (eina skiptið sem ég hef verið svartskeggjaður).
Karlmennska okkar jókst þarna um helming með einu pennastriki. Þrátt fyrir það fékk my infamous metrosexuality nokkur skot á sig.
Þegar niður í bæ var komið ætlaði ég að hafa upp á nýstúdentnum en við ætluðum að hittast í menningunni. Hann var þá á heimleið og kominn upp í Mosfellssveit. Við ákváðum því að hittast á miðri leið og tókum hús á Þóri. Þar sátum við og spjölluðum þangað til guðfræðineminn verðandi þurfti að drífa sig aftur heim í sveitina. Gaman að hitta Stefán en ég hitti hann síðast í apríl.
Á leiðinni heim ætlaði ég að stoppa í 10-11 en uppgötvaði þá að ég var með áteiknað, upprúllað skegg á mér. Beilaði á að versla þannig og fór heim og þreif framan úr mér. Fór aftur í búðina og keypti grænmeti í hrísgrjónarétt og eldaði mér heima. Merkilegt samt hvað það er alltaf nokkrir að versla í matinn um miðjar nætur um helgar (segi ég sem er einn af þeim).
Í dag fór ég svo á hestbak. Lét henda mér af baki. Held að ég sé hættur að reyna að ríða berbakt, búinn að láta henda mér af baki þannig tvisvar sinnum í vikunni, líka á fimmtudaginn. Hef ekki gert þetta síðan ég var 8 ára og fékk langa flugferð í smalamennsku. Ætlaði að yfirstíga óttann við þetta og það hefur tekist. Er svolítið aumur í rassinum eftir síðustu byltuna en veit þó að ég þori þessu.
Svo bar ég á sólpallinn þegar ég kom heim. Að öðru leyti tíðindalítill dagur. Síðasti mánudagurinn í vinnunni á morgun, síðan er kominn skóli. Ég er einmitt búinn að hugsa töluvert um BS-hugmyndina mína nýjustu um helgina. Lýst orðið ansi vel á hana.
Tónlist dagsins:
Big Brother & The Holding Company: samnefnd plata
Big Brother & The Holding Company: Cheap Thrills
Janis Joplin: I Got Dem Ol' Kozmic Blues Again Mama!
Janis Joplin: Pearl
(Já, það var kominn tími á Janis!)
Agust skrifaði 17.08.03 21:12
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Mér fannst þú einstaklega fínn með þetta líka fína pennastriks-skegg ;)
Vera skrifaði 17.08.03 22:33