ágúst 19, 2003

When a subject becomes totally obsolete we make it a required course

Í ljósi þess að BS-hugmyndin mín stefnir í að verða BS-ritgerðin mín, þá vonast ég til að ná einhverjum lestri á einhverjum af þeim bókum í kvöld sem ég ætlaði að vera búinn að lesa u.þ.b. núna. Hef af ýmsum ástæðum ekki afrekað það ennþá og þar sem helgin mun fara að vanda í hestastúss og svefn þá ætlaði ég að klára eitthvað af þessu í vikunni.

Orðin hér að ofan eru höfð eftir eftirlætis stjórnspekigúrúinu mínu Peter Drucker. Efni BS-ritgerðarinnar gæti vart verið fjarri hinum dæmigerðu skyldukúrsum :)
Agust skrifaði 19.08.03 20:28

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Smartur kall Drucker. Minnir að hann hafi sagt að Internetið væri sniðugt, við værum bara ekki búin að uppgötva hvað það væri sniðugt fyrir - þ.e. til hvers við ættum að nota það. Kannski frekar sósíal tæki en viðskiptatæki.

Salvör skrifaði 19.08.03 21:53

Nú er ég orðinn frekar forvitinn að fá að vita meira um BS hugmyndina. Kannski að ég fái að plata þig til að senda mér línu og segja mér frá?

Oli skrifaði 19.08.03 23:23