ágúst 20, 2003

Ormurinn langi

Ég hef ekki fengið mikið af "ormapósti" síðustu daga. Aftur á móti reyndi ég árangurslaust að senda nokkra e-maila milli níu og tólf í gærkvöldi. Það tókst ekki. Hafði kveikt á tölvunni í nótt og hún sendi automatískt í gegnum Margmiðlun þegar sú þjónusta varð aftur virk. Semsagt.net var aftur á móti enn óvirkt til póstsendinga þegar ég athugaði málið klukkan sjö í morgun. Þá breytti ég bréfunum sem ég var að reyna að senda með semsagt og sendi í gegnum Margmiðlun, sem gekk. Ég vona bara að þau hafi komist á leiðarenda þar sem þetta voru allt saman e-mailar sem ég hefði endilega viljað koma til skila.
Allan þennan tíma gekk að fá póst, bara ekki hægt að senda. Í augnablikinu eru enn einhver vandræði með semsagt.net, get fengið, ekki sent, en Margmiðlun er í lagi.
Mér finnst þó merkilegt að ég hef fengið alveg óhemju lítið magn af ruslpósti í dag og í gær. Venjulega hlaupa þeir á nokkrum tugum per dag. Greinilegt að þjónustuaðilarnir eru með allar klær úti og reyna að stoppa sem mest (það allavega "meikar mestan sens" fyrir mér að sé skýringin).

Tónlist dagsins:
Nick Drake: Time of No Reply

Ekki tónlist dagsins af kapítalískum ástæðum:
Rolling Stones á tónleikum í Amsterdam
Agust skrifaði 20.08.03 19:28

Flokkun: Fréttir , Internetið